Morgunblaðið - 22.08.2012, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Tökum á Hollywood-kvikmyndinni
Noah er lokið hér á landi og sendi
fjölmiðlafulltrúi myndarinnar frá
sér tilkynningu í gær með ýmsum
upplýsingum um tökurnar og svo-
hljóðandi kveðju frá leikstjóra
myndarinnar, Darren Aronofsky:
„Nú þegar tökum á myndinni er
lokið á Íslandi vil ég þakka okkar
frábæra íslenska starfsfólki fyrir
sína gríðarlega miklu vinnu og öll-
um Íslendingum fyrir sína miklu
gestrisni er þeir buðu Noah vel-
komna til landsins. Ísland er
töfrandi staður og hér höfum við
fundið ótrúlega og gríðarlega fjöl-
breytta tökustaði fyrir myndina.
Takk, Ísland. Ég hlakka til að koma
aftur.“
Í tilkynningunni kemur fram að
148 Íslendingar hafi farið með
smærri hlutverk í kvikmyndinni og
tökustaðir myndarinnar hér á landi
hafi verið fleiri en í nokkurri Holly-
wood-mynd sem tekin hefur verið
hér á landi en tökur fóru m.a. fram
á Djúpavatnsleið, í Sandvík, Lamb-
hagatjörn, Undirheimanámu við
Kleifarvatn, Hafursey, Reynisfjöru,
Raufarhólshelli í nágrenni Víkur og
Leirhnjúkum við Mývatn.
Gistinætur þeirra sem komu að
gerð myndarinnar á íslenskum hót-
elum voru 3.650 og átti tökulið við-
skipti við yfir 300 þjónustuaðila, s.s.
bílaleigur, veitingahús o.fl. Bílaflot-
inn var umfangsmikill, leigðir voru
30 jeppar, 10 sendibílar og 75 fólks-
bílar. Undirbúningur fyrir tök-
urnar hófst í nóvember í fyrra og
stóðu þær yfir í um fjórar vikur.
Efnið sem tekið var upp hér á landi
nemur um þriðjungi myndarinnar
og færast nú tökur til New York.
Stefnt er að því að frumsýna mynd-
ina í mars 2014.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Nói Flutningabílar á einum tökustaða Noah við Reynisfjall en tökur fóru
m.a. fram í Reynisfjöru. Tíu sendibílar voru leigðir til að ferja búnað.
Fleiri tökustaðir
en nokkru sinni
Leikstjóri Noah þakkar fyrir sig
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Saxófónleikarinn Jóel Pálsson leikur
í kvöld kl. 21 á tónleikum á Café Ró-
senberg með tríói danska djasspían-
istans Simonar Toldams og eru þeir
hluti af Jazzhátíð Reykjavíkur. Tol-
dam er á vef hátíðarinnar sagður
meðal mikilvirtustu djassleikara af
sinni kynslóð í Evrópu en yfirskrift
tónleikanna er „Tenórtröllið og Tol-
dam“.
„Hann er einn af þessum „heitari“
gaurum af yngri kynslóðinni þarna,“
segir tenórtröllið Jóel um píanóljón-
ið Toldam. En hvernig hófst þeirra
samstarf? „Það var í rauninni
Listahátíðin í Århus sem kom okkur
saman. Þeir höfðu samband við mig
og spurðu hvort ég hefði áhuga á að
koma fram með þessu tríói, Simon
Toldam-tríói. Þannig byrjaði þetta
nú,“ segir Jóel, hann þekki ekki for-
sögu málsins frekar. „Þetta er stórt
festival og út frá því voru bókaðir
tónleikar í Kaupmannahöfn líka og
við erum að fara í þetta núna í byrj-
un september. Þá varð til þessi hug-
mynd að við myndum byrja hérna á
Íslandi, á Jazzhátíðinni.“ Með Tol-
dam leika í tríóinu þeir Nils Dav-
idsen á bassa og Knut Finsrud á
trommur.
Póstmódernískur djass
Spurður út í efnisskrá tónleikanna
segir Jóel að uppistaðan verði tónlist
tríósins sem hann muni koma inn í
og svo lög eftir hann sjálfan. „Ætli
þetta sé ekki bara póstmódernískur
djass, ef það segir eitthvað,“ segir
Jóel, spurður að því hvers konar
djass verði fluttur á tónleikunum.
„Þeir koma til landsins á morgun (í
dag) og við tökum bara hressilega
æfingarispu fram að tónleikunum.
Djassinn er náttúrlega þannig að
menn eru bara í miklum díalóg og
samspili þannig að þetta verður bara
ævintýri. Ég hef aldrei hitt þessa
menn áður og þess vegna er þetta
smá ævintýraferð fyrir mig. Við vit-
um ekkert hvað gerist.“
-En þekktirðu til þeirra áður en
þú fékkst boð um að spila með þeim?
„Já, ég hef heyrt þessi nöfn, þekki
þau og svo er ég náttúrlega búinn að
kynna mér þá betur eftir að þetta
samstarf kom til, hlusta á músíkina
þeirra.“
Jóel segir tríóið skipað færum
mönnum, þeir séu mjög opnir og
greinilega tilbúnir í alls konar til-
raunastarfsemi og hvers lags æv-
intýri. Þá hafi Toldam hlotið afar já-
kvæða gagnrýni í dönskum
fjölmiðlum, m.a. dagblaðinu Politi-
ken en þess má geta að Jóel hefur
sjálfur hlotið lof í dönskum miðlum
fyrir sín verk.
Þess má að lokum geta að Jóel
leikur á fleiri tónleikum á Jazzhátíð
Reykjavíkur, með Jack Magnet
Quintet í Silfurbergssal Hörpu laug-
ardaginn 25. ágúst kl. 20 og á tón-
leikum Stórsveitar Reykjavíkur
helguðum Glenn Miller og hljóm-
sveit hans í Eldborgarsal Hörpu
föstudaginn 31. ágúst.
Tríó sem er til í hvers
konar ævintýri
Jóel Pálsson djassar með tríói Simonar Toldams
Píanóljón Simon Toldam kemur fram á Jazzhátíð Reykjavíkur á Café
Rósenberg í kvöld með tríói sínu og saxófónleikaranum Jóel Pálssyni.
Tenórtröllið Jóel Pálsson er spennt-
ur fyrir því að leika með Toldam.
Frekari fróðleik um Toldam má
finna á vef hans, simontoldam-
.com. Vefur Jazzhátíðar Reykja-
víkur er á slóðinni reykjavikjazz.is.
KVIKMYNDIR.IS
HOLLYWOOD REPORTER
SÉÐ OG HEYRT
MBL
58.000 GESTIR Á 24 DÖGUM
STÆRSTA MYND SUMARSINS
VINSÆLASTA DANSSERÍA ALLRA TÍMA
MÖGNUÐ DANSATRIÐI!
BESTA MYNDIN Í SERÍUNNI TIL ÞESSA
EGILSHÖLL
12
12
L
L
L
L
L
7
7
7
L
L
L
ÁLFABAKKA
12
12
12
STEP UP REVOLUTION 3:40-5:50 - 8 - 10:20 2D
BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 3D
BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 2D
BRAVE ENSKU.TALI KL. 8 - 10:20 2D
SEEKING A FRIEND KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D
DARK KNIGHT RISES KL. 6 - 8 - 10 2D
DARK KNIGHT RISES VIP KL. 4 - 8 2D
MADAGASCAR 3 ÍSL.TALI KL. 3:40 2D
UNDRALAND IBBA ÍSL.TALI KL. 3:40 2D
7
KRINGLUNNI
L
12
12
12
STEP UP REV. KL. 5:50 - 8 - 10:202D
DARK KNIGHT RISES 5:30 - 9 2D
BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 3D
SEEKING A FRIEND KL. 8 2D
MAGIC MIKE KL. 10:20 2D
L
7
12
12
AKUREYRI
BRAVE HIN HUGRAKKA ÍSL.TALI KL. 6 3D
STEP UP REVOLUTION KL. 8 3D
DARK KNIGHT RISES KL. 10:10 2D
SEEKING A FRIEND KL. 6 - 8 - 10:10 2D
7
KEFLAVÍK
12
16
THE DARK KNIGHT RISES
KL. 6 - 8 - 10:10 2D
STEP UP REVOLUTION KL. 5:40 - 8 2D
STEP UP REV.. ÓTEXT.KL. 10:30 3D
TOTAL RECALL KL. 8 2D
BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:30 3D
BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 2D
BRAVE ENSKU TALI KL. 9 2D
Sýnd með íslensku og ensku tali – sýnd í 2D og 3D
Frá Framleiðendum Toy Story 3, Finding Nemo og Up.
- Miami Herald
- Rolling Stone
- Guardian - Time Entertainment
b.o. magazine
e.t. weekly
STEVE
CARELL
KEIRA
KNIGHTLEY
KYNNTU ÞÉR
VILDARKERFI SAMBÍÓA
THE EXPENDABLES 2 KL. 10:10 2D
STEP UP REVOLUTION KL. 8 2D
SEEKING A FRIEND KL. 8 - 10:10 2D