Morgunblaðið - 22.08.2012, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Lést í mótorhjólaslysi
2. Féll fram af 11. hæð í Kópavogi
3. Stökk út úr sjúkrabíl á ferð
4. Ben Stiller býr í Skuggahverfinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Melchior heldur tón-
leika á Café Rosenberg annað kvöld
kl. 21 og flytur lög af nýútkominni
plötu sinni, Matur fyrir tvo. Sunnu-
daginn 26. ágúst kl. 16 heldur hljóm-
sveitin svo tónleika á Gljúfrasteini.
Hljómsveitina skipa Hilmar Oddsson,
Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Karl
Roth, sem syngja og leika á gítara og
hljómborð, Kristín Jóhannsdóttir
söngkona, Gunnar Hrafnsson bassa-
leikari og Kjartan Guðnason trommu-
leikari.
Melchior á Rosenberg
og Gljúfrasteini
Óskar Guðjóns-
son saxófónleikari
og brasilíski gítar-
leikarinn Ife
Tolentino héldu
fyrstu tónleika
sína af átta í gær-
kvöldi í gróður-
húsinu við Nor-
ræna húsið en
þeir munu halda tónleika í gróður-
húsinu á hverju kvöldi kl. 22 fram til
28. ágúst.
Tónleikar á hverju
kvöldi til 28. ágúst
Judy Garland Kabarett nefnist ný-
útkomin hljómplata en á henni syng-
ur leikkonan Lára
Sveinsdóttir þekkt-
ustu lög Garlands.
Diskurinn kemur í
framhaldi af sam-
nefndri sýningu
sem var í
Þjóðleikhús-
kjallaranum sl.
vetur.
Lára syngur lög
Garlands inn á plötu
Á fimmtudag Norðaustan 5-13 m/s, en hægari S-læg átt SV-
lands. Rigning með köflum og hiti 10 til 17 stig.
Á föstudag Víða rigning á S-verðu landinu. Hiti 8 til 15 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvessir NV-til með morgninum, norðaustan
8-13 m/s síðdegis. Rigning með köflum víða um land, einkum S og
SV-til. Hiti víða 13 til 18 stig, en svalara A-lands.
VEÐUR
Þór/KA lætur engan bilbug
á sér finna í baráttunni um
Íslandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu kvenna en liðið
vann Aftureldingu 1:0 í gær-
kvöldi og er með sex stiga
forskot á Stjörnuna þegar
aðeins þrjár umferðir eru
eftir. Liðið getur því orðið
meistari í næstu umferð
sem er eftir viku. Fallbar-
áttan er hins vegar hnífjöfn
en Afturelding fór niður í
fallsæti í gær. »4
Þór/KA meistari í
næstu viku?
Stórskyttan Ólafur Gústafsson mun
ylja íslenskum handboltaáhuga-
mönnum á komandi leiktíð en hann
hefur ákveðið að spila áfram með FH-
ingum. Félög í Þýskalandi og Dan-
mörku sóttust eftir kröftum Ólafs en
hann ákvað að semja við FH. »1
Ólafur neitaði erlendum
liðum og spilar með FH
Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik mátti sín lítils gegn sterku liði
Ísraels í undankeppni Evrópumótsins
í Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Ísrael vann 27 stiga sigur, 110:83, en í
hálfleik munaði fjórtán stigum á lið-
unum. Haukur Helgi Pálsson skoraði
flest stig fyrir Ísland eða 19. Næsti
leikur er í Svartfjallalandi á föstu-
daginn. » 2-3
Ísrael vann stórsigur á
Íslendingum í Höllinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
Líf færist á nýjan leik í grunnskóla
landsins í dag þegar kennsla hefst
með formlegum hætti.
Það var ys og þys í bóka- og rit-
fangaverslunum höfuðborgarinnar
þegar blaðamann Morgunblaðsins
bar þar að garði í gær. Hvarvetna
mátti sjá núverandi sem og tilvon-
andi námsmenn ásamt foreldrum,
vopnaða innkaupalistum sem sögðu
til um hversu margar stílabækur,
blýanta, strokleður og annan nauð-
synjabúnað þyrfti fyrir veturinn
framundan.
Yfir 42 þúsund nemar í vetur
Alls hefja rúmlega 42 þúsund
grunnskólanemar nýjan námsvetur í
171 skóla vítt og breitt um landið
þessa viku, samkvæmt tölum
Hagstofunnar.
Þar af eru rúmlega 4.300 sex ára
nemar sem upp til hópa eru að hefja
formlega grunnskólagöngu. Er að
vonum mikil eftirvænting ríkjandi í
þeirra hópi og mátti sjá ófáa stolta
skólatöskueigendur í og við þær
verslanir sem blaðamaður heimsótti.
Var það samdóma álit þeirra barna
sem tekin voru tali að öll væru þau
spennt fyrir komandi skólaári og
hlakkaði til að byrja eftir að hafa átt
skemmtilegt sumar með fjölskyldu
og vinum.
Að sögn Elínar Bjargar Ragnars-
dóttur, verslunarstjóra hjá Griffli í
Skeifunni, var búinn að vera mikill
erill og fjör í versluninni undanfarna
daga. Sömu sögu var að segja í
versluninni A4 skammt frá.
Aðgát í umferðinni
Ekki er úr vegi að umferðarregl-
urnar séu aðeins rifjaðar upp þegar
skólaárið fer í hönd, enda ófáir ungir
einstaklingarnir að hætta sér út á
göturnar. Þá skiptir einnig miklu
máli að ökumenn sýni aðgát, ekki
síst við skólalóðir.
Að sögn Þóru Magneu Magnús-
dóttur, verkefnastjóra fræðslumála
hjá Umferðarstofu, hefur Umferðar-
stofa sent öllum börnum sem verða
sex ára á árinu bæklinginn „Á leið í
skólann“. Er þar farið vel yfir um-
ferðarreglurnar, svo sem rauða og
græna karlinn, mikilvægi þess að
líta vel í kringum sig áður en farið er
yfir götur og annað það sem gott er
að hafa á hreinu.
Líf færist í grunnskóla landsins
Fyrsti skóladagur-
inn eftir sumarfrí
um land allt í dag
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Önnum kafnar Kristný Elna Baldursdóttir hefur nám í 2. bekk Rimaskóla í dag. Var hún í óða önn að kaupa inn
fyrir skólann í Griffli í Skeifunni í gær þar sem hún naut aðstoðar Guðnýjar Láru, litlu systur, við innkaupin.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skólastúlkur Systurnar Katrín Júlía og Emily Rún voru í Kringlunni að
kaupa inn fyrir skólann en þær hefja nám í Álftamýrarskóla í dag.
Skannaðu kóðann
til að horfa á myn-
skeið um byrjun
skólaársins