Morgunblaðið - 20.09.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 20.09.2012, Síða 1
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2012 VIÐSKIPTABLAÐ Auðlegðarskatturinn getur bitnað hart á einstökum fjárfestum. Sogar í burtu allan arð 2 Langtímaverkefni að byggja upp jákvæða ímynd fyr- irtækis. Svigrúm með góðu orðspori 10 Mikil sókn hefur verið í fiskeldi á Vest- fjörðum síðustu ár. Kapphlaupið í fiskeldi 6-7 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is „Ég held að þetta sé stærsta er- lenda fjárfestingin frá hruni,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í sam- tali við Morgunblaðið. Bandarísk- ir fjárfestar keyptu fyrirtækið ár- ið 2010, eftir að móðurfélagið DeCode fór í greiðslustöðvun, og í febrúar var farin fjárfestingarleið Seðlabankans þegar fyrirtækið gaf út 5,1 milljarðs króna skulda- bréf sem erlendir aðilar fjár- mögnuðu. Kári segir að skulda- bréfaútgáfan sé hluti af því fé sem nýtt var til að koma fyrirtækinu aftur á fót. Skuldabréfið ber ekki vexti en greiða þarf verðtryggingu einu sinni á ári. Höfuðstólinn á að greiða í heilu lagi eftir tíu ár, sam- kvæmt gögnum sem Morg- unblaðið hefur undir höndum. Saga Investment, sem er hópur bandarískra fjárfesta, keypti Íslenska erfðagreiningu árið 2010. Fjárfestahópurinn er leiddur af Polaris Ventures og ARCH Venture Partners. Um er að ræða fjárfesta sem hafa áður verið í hluthafahópi Íslenskrar erfðagreiningar. Þeir leggja áherslu á fjárfestingar á sviði líf- tækni. Fjárfestingarleiðin Fjárfestingarleið Seðlabankans gengur út á að fjárfestar komi með erlendan gjaldeyri til lands- ins, skipti honum í krónur og fjár- festi hér til lengri tíma, en gulrót- in fyrir fjármagnseigendur er að krónurnar eru um 20% ódýrari en ef þær hefðu verið keyptar með hefðbundnum hætti. Þessi leið er liður í því að reyna að leysa hinn svokallaða aflandskrónuvanda, svo hægt sé að aflétta gjaldeyr- ishöftunum. Umræddur vandi er að erlendir fjárfestar eiga hér mikla fjármuni í krónum sem þeir geta ekki farið með úr landi vegna gjaldeyrishaftanna. Fram hefur komið í fjölmiðlum að af- landskrónuvandinn er um átta hundruð milljarðar. Morgunblaðið/Kristinn Fjármögnun Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 5 milljarða skuldabréfaútgáfa er liður í að endurreisa fyrirtækið. „Stærsta er- lenda fjárfest- ingin frá hruni“  Eigendur Íslenskrar erfðagreiningar fjármagna endurreisn með fjárfestingarleið Seðlabankans Eigi evrusvæðið að lifa af þær hremmingar sem skekja myntbandalagið er ljóst að aukið samstarf þarf til á sviði fjármálastöðugleika og ríkisfjármála og sameiginlegt bankabandalag. Áður en að því kemur er ekki ólíklegt að það muni kvarnast úr myntsvæðinu samfara því að sum evruríki telji hagsmunum sínum betur borgið utan þess. Í nýjasta riti Seðlabankans um gjaldmiðlamál er því haldið fram að ef vel tekst til í þeim efn- um gæti það orðið „áhugaverðari valkostur en áður“ fyrir Ísland að gerast aðili að mynt- bandalaginu. Þá staðhæfingu má hins vegar draga í efa. Aukið ríkis- og fjármálasamstarf evruríkja mun óhjákvæmilega fela í sér veru- lega skerðingu á fjárhagslegu fullveldi aðild- arríkja evrunnar og nánara pólitískt bandalag. Hagsmunir Íslands felast óumdeilanlega ekki í því að gerast þátttakandi í pólitísku sam- bandsríki með miðstýrðan fjárhag og lánasýslu þar sem þýskar áherslur verða í fyrirrúmi. Að sækja um aðild að ESB við þær aðstæður er ein- kennilegt hagsmunamat. Ísland verður aldrei Þýskaland. Hagsveiflan á Íslandi hefur lítil sem engin tengsl við hag- sveifluna í kjarnaríkjum evrusvæðisins. Vænt- ingar um agaðri ríkis- og fjármálastefnu, með upptöku evrunnar, mun ennfremur ekki koma í veg fyrir alvarleg efnahagsáföll hér á landi. Og þegar slíkar aðstæður koma upp verður Ísland fast í spennitreyju myntbandalags þar sem úr- ræði stjórnvalda munu einskorðast við aukið atvinnuleysi og launalækkanir með handafli. Skoðun Gjaldmiðlamál Hörður Ægisson hordur@mbl.is Versti tíminn OYSTER PERPETUAL SUBMARINER DATE Sími 511 1234 • www.gudjono.is Hraði! Skilvirkni! Sveigjanleiki! Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | www.vib.is VÍB er eignastýringarþjónusta Íslandsbanka Eignastýring fyrir alla Í Eignasöfnum Íslandssjóða er áhættu dreift á milli eignaflokka og hafa sérfræðingar VÍB frumkvæði að breytingum á eignasöfnunum þegar aðstæður breytast. Einföld og góð leið til uppbyggingar á reglubundnum sparnaði. Í boði eru tvær leiðir: Eignasafn og Eignasafn – Ríki og sjóðir Þú færð nánari upplýsingar á www.vib.is eða hjá ráðgjöfum VÍB í síma 440 4900

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.