Morgunblaðið - 20.09.2012, Síða 10

Morgunblaðið - 20.09.2012, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2012 10 Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380 GÆÐI — ÞEKKING — ÞJÓNUSTA DÚKALEIGA Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is A ndrés Jónsson segir áhugaverða og jákvæða breytingu hafa átt sér stað í almannatengslamálum ís- lenskra fyrirtækja síðustu ár: „Ástandið var þannig fyrir hrun að atvinnulífið taldi sig ekki skulda nein- um svör og árið 2007 var nánast ómögulegt fyr- ir blaðamann að finna fólk sem vildi tjá sig und- ir nafni. Bæði óttuðust menn kannski hugsanlegar neikvæðar afleiðingar þess að tjá sig og svo var enginn kúltúr fyrir því að tala óhikað við fjölmiðla. Í þeim fyrirtækjum þar sem lengst var gengið voru settar reglur sem beinlínis bönnuðu starfsmönnum að tjá sig um nokkurn hlut í fjölmiðlum, jafnvel um eitthvað sem væri alveg óviðkomandi starfsemi fyr- irtækisins.“ Sársaukalaus sannleikur? Andrés lýsir gamla viðhorfinu á þann hátt að fyrirtæki hafi litið á almannatengsl sem tæki til að þjóna mjög þröngum hagsmunum fyrirtæk- isins. „Það mátti aðeins segja jákvæða hluti og jafnvel reyna að fela sannleikann ef því var að skipta. Þetta er ekki góð stefna, enda kveða siðareglur almannatengla á um að þeir hafi einnig í huga hagsmuni almennings. Í raun á langtímastarf almannatengilsins, og stjórnand- ans um leið, að miða að því að fyrirtækið hafi ekkert að fela og njóti nægjanlegs álits og trausts í samfélaginu til að það þurfi ekki að óttast afleiðingar þess að segja sannleikann.“ Íslensk fyrirtæki virðast hafa tekið út mik- inn þroska á sviði almannatengsla á þessum síðustu stormasömu árum. Andrés bendir á að fyrirtækin og stjórnendurnir finni núna mjög vel fyrir gildi þess að viðhalda góðu orðspori. „Orðsporsáhætta er mönnum ofarlega í huga í dag. Þau fyrirtæki sem eru af ein- hverjum sökum með laskað orðspor gera sér mjög skýra grein fyrir því að með því takmark- ast svigrúm þeirra til athafna. Íslenskir neyt- endur virðast reyndar lítið gera af því að kjósa með fótunum og „boycotta“ vörur og fyrirtæki vegna hneysklismála, en neikvæð umfjöllun og slæmar ákvarðanir draga samt alltaf einhvern dilk á eftir sér,“ útskýrir Andrés. Undir smásjánni „Fyrirtæki sem hafa t.d. fengið ríkulegar af- skriftir, umdeildir bankar og óvinsælar stofn- anir, eru meira undir smásjánni en nokkru sinni fyrr og hættan á því að fá á sig gagnrýni er því alltaf tekin með í reikninginn í öllum ákvörðunum í rekstrinum. Það skerðir svig- rúmið í starfseminni ef allt fer í háaloft út af uppsögnum, launamálum eða arðgreiðslum. At- hafnarými stjórnenda minnkar svo mikið með slæmu almenningsáliti að jafnvel getur þurft að gera breytingar á tóni og umfangi auglýs- ingaherferða fyrirtækisins í kjölfar slíkra ímyndaráfalla. Þeir sem eru vel þokkaðir hafa, aftur á móti, allt annað svigrúm í sinni starf- semi en þeir sem njóta ekki góðs álits almenn- ings.“ Þótt íslenskir neytendur verði að teljast nokkuð umburðarlyndir og hafi leyft ýmsum fyrirtækjum og athafnamönnum að komast upp með eitt og annað leggur Andrés á það áherslu að gott almenningsálit sé mjög verðmæt auð- lind. „Gott dæmi er t.d. áhrifamáttur auglýs- inga, sem getur sveiflast mikið eftir almenn- ingsálitinu. Það getur jafnvel magnað upp neikvæðar tilfinningar ef fyrirtæki birtir dýra auglýsingaherferð með skilaboðum sem ríma ekki við skoðanir almennings á fyrirtækinu. Svo hefur neikvæð ímynd vitaskuld óæskileg áhrif á andann meðal starfsmanna og samskipti við önnur fyrirtæki, hið opinbera og aðra hags- munaaðila – fáir eru beinlínis mjög áhugasamir að vinna hjá eða eiga í samstarfi við fyrirtæki sem er illa þokkað úti í samfélaginu.“ Slæmt orðspor skerðir svigrúmið  Samskipti fyrirtækja við fjölmiðla og almenning orðin opnari  Hægt að leyfa sér meira í rekstrinum með gott almenningsálit í farteskinu  Með netinu þurfa fyrirtæki að vera mjög hæf í að tjá sig  Vont almenningsálit bitnar á starfsanda og samstarfsmöguleikum Andrés hefur verið áberandi í fjölmiðlum og netheimum síðustu misseri. Hann er vinsæll álitsgjafi, pistlar hans um stjórn- mál og samfélagsmál eru mikið lesnir og á miðvikudag átti hann hvorki meira né minna en 2.807 vini á Facebook. Fyrir almannatengil felst óneitanlega mikill styrkur í að vera þekkt andlit, en Andrés bendir á að það skipti æ meira máli fyrir aðrar stéttir að vera kunnuglegt andlit eða þekkt nafn. „Samkeppnin er orðin svo mikil og til að skara fram úr getur þurft meira til en bara að vera vel menntaður og hæfur í sínu fagi. Með sýnileikanum eykst tiltrú fólks á þekkingu viðkomandi sem sérfræðings, en kannski er enn verðmætara hvað sýnileik- inn veitir mikla endurgjöf frá fólki. Þannig kemst maður í samband við mun stærri hóp fólks og er stöðugt að endurnýja þekkingu og læra af umhverfinu. Hvort og hvernig menn eru sýnilegir er nokkuð sem þarf að huga mjög vel að í dag ef ætlunin er að styrkja sig faglega.“ Sjálfur segir Andrés að sýnileikinn sem hann nýtur í dag hafi orðið til bæði fyrir tilviljun og ásetning. „Það gildir á mínu sviði eins og mörgum öðrum að um leið og maður byrjar að tjá sig og skrifa um fagið fer snjóboltinn að rúlla og hlaða utan á sig. Fólk verður að gæta þess að gefa færi á sér, taka því vel ef það er beðið að koma fram eða veita viðtal, og smám saman vex sýnileikinn skref fyrir skref. Þegar komið er yfir ákveðinn þröskuld fer sýnileikinn að viðhalda sér sjálfur: það er t.d. ekki nema ákveðinn hópur manna á hverju sviði í at- vinnulífinu sem fjölmiðlamenn temja sér að leita til að staðaldri.“ En hvað má segja opinberlega? Getur ekki sýnileikinn, sterkar skoðanir og virk þátttaka í umræðunni verið tvíeggjað sverð? „Þegar ég hóf minn almanna- tengslaferil komu ýmsir reyndari menn að máli við mig og gáfu mér föðurleg ráð, þar á meðal að ég skyldi vara mig betur á því hvað ég skrifaði á blogginu mínu því ég væri vís til að styggja fólk sem annars gæti orðið viðskiptavinir mínir í framtíð- inni,“ segir Andrés og kveðst ekki hafa hlýtt þessum heilræðum. „Mín reynsla er þvert á móti sú að það hjálpar til ef fólk veit að maður er beinskeyttur, fylgist vel með og er með ákveðnar skoðanir.“ Andrés gætir þess þó að skrifa af sann- girni og hæfilegri yfirvegun. „Góð þum- alputtaregla er að gæta þess að vera ekki of stóryrtur. Þetta þýðir ekki að maður eigi að slá í og úr, miklu skemmtilegra er að lesa texta sem er knappur og beinskeyttur. En maður verður að gæta þess að vera málefnalegur og um leið vera kankvís, svara gagnrýnendum, leiðrétta rangfærslur og biðjast afsökunar ef manni verður á í messunni,“ segir hann. „Síðan á maður aldrei að svara skrifum í reiði og ef ein- hver bregst of harkalega við einhverjum pistlinum er best að svara á góðlátlegan hátt og bæta við eins og einum broskarli. „Kill them with kindness“ eins og þeir segja.“ SÝNILEIKINN VERÐMÆTUR Borgar sig að segja hug sinn? Breytt nálgun við almannatengsl síðustu ár skýrist meðal annars af þeirri grund- vallarbreytingu sem orðið hefur á því hvernig umræðan mótast í samfélaginu. Umræða og fréttamiðlun er orðin mun dreifstýrðari og netið hefur búið til heilan herskara af beittum pennum sem taka mjög virkan þátt í umræðunni. „Fyrir vikið verður mun mikilvægara að fyrirtæki séu hæf í að tjá sig, jafnvel beint við almenn- ing ef því er að skipta,“ segir Andrés. „Það dugar ekki lengur að vera þumbaralegur og þögull heldur þarf að bregðast hratt við og taka beinan þátt í gegnum fleiri og fjölbreyttari miðla en áður.“ Breytingar í almannatengslum eiga sér líka stað utan fjölmiðla- og netumræð- unnar. „Við sjáum t.d. að á ráðstefnum og fundum þarf að matreiða hlutina miklu betur ofan í gesti ef skilaboðin eiga að komast áleiðis. Glærurnar verða að vera grípandi, ræðumaðurinn fimur og ekki dugar lengur að henda fram á aðalfundi hundrað blaðsíðna skýrslum með eintóm- um tölum og töflum – þá er fólk óðara far- ið að flakka á netinu í farsímanum sínum og hætt að fylgjast með. Það þarf að vinna sér inn athygli fólks og sístækkandi þátt- ur í starfi almannatengla eru hlutir eins og framkomuþjálfun fyrir stjórnendur, ræðu- skrif, glærugerð og aðstoð við framsetn- ingu gagna og annars kynningarefnis.“ NETIÐ BREYTIR LEIKREGLUNUM Læra að tjá sig upp á nýtt Hvers virði eru góð almannatengsl? Morgunblaðið/Styrmir Kári Breytingar „Orðsporsáhætta er mönnum ofarlega í huga í dag. Þau fyrirtæki sem eru af einhverjum sökum með laskað orðspor gera sér mjög skýra grein fyrir því að með því tak- markast svigrúm þeirra til athafna,“ segir Andrés Jónsson almannatengill.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.