Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 3
Morgunblaðið/Ómar
þessu?
Á SELFOSSI
Guðmundur Karl
sport@mbl.is
Selfyssingar stjórnuðu leiknum
gegn Keflavík á Selfossvelli í gær-
kvöldi að stærstum hluta og eru
ákveðnir í að fórna öllu í fallbarátt-
unni. Sigur Selfoss var sannfær-
andi þó að þeir hafi fengið skrekk
þegar Keflavík minnkaði muninn í
2:1 þegar tíu mínútur voru eftir.
Þeir vínrauðu héldu þó sínu og
framundan er gríðarleg barátta við
Framara en liðin eru nú jöfn að
stigum en Fram með betri marka-
tölu.
Eftir 5:0 stórsigur gegn Fram í
síðustu umferð mættu Keflvíkingar
værukærir til leiks og Selfyssingar
réðu lögum og lofum á vellinum í
rúman hálftíma. Hvorugu liðinu
tókst að skapa sér opin færi og
áhorfendur voru farnir að huga að
hálfleikskaffinu þegar Egill Jóns-
son kom Selfyssingum yfir á 45.
mínútu. Markið var af dýrari gerð-
inni þar sem Egill þrumaði bolt-
anum upp í samskeytin af 30 metra
færi.
Bullandi sjálfstraust
gæti reynst drjúgt
Strax á fjórðu mínútu síðari hálf-
leiks kom Viðar Örn Kjartansson
Selfyssingum í 2:0 með marki úr
vítaspyrnu og á eftir fylgdi góður
kafli þar sem Selfyssingar voru
miklu líklegri til að bæta við mörk-
um en eins og oft áður í sumar
féllu hlutirnir ekki fyrir þá í vítat-
eignum.
Liðið er hins vegar með bullandi
sjálfstraust eftir góða spila-
mennsku í síðustu umferðum og
það gæti fleytt þeim framúr Fröm-
urum á lokasprettinum.
Zoran Ljubicic gerði tvöfalda
skiptingu á 65. mínútu og setti þá
Jóhann Birni Guðmundsson og
Hörð Sveinsson inná. Það hefði
hann mátt gera fyrr því þeir fé-
lagar voru mun sprækari en and-
lausir félagar þeirra og Jóhann
Birnir lét strax til sín taka á miðj-
unni. Hann skoraði síðan stór-
glæsilegt mark á 80. mínútu og
setti hjartað á Selfyssingum í bux-
urnar. Lærisveinar Loga náðu sér
þó aftur á strik og voru yfirvegaðir
í uppbótartímanum þar sem Kefl-
víkingum tókst ekki að gera þeim
skráveifu.
Tapið gerði Evrópudraum Kefla-
víkur líklega að engu og liðið mun
sigla lygnan sjó í lokaumferðunum.
Selfyssingar eru hins vegar ekki
hættir að láta til sín taka.
Morgunblaðið/Golli
Drjúgir Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson komu mikið við
sögu hjá Selfyssingum sem eru í hörðum slag fyrir lífi sínu í deildinni.
Sannfærandi Selfyssingar
Innbyrtu sigur eftir skrekk í lokin Glæsileg mörk hjá Agli og Jóhanni
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
FÆRI 37. Gunnar ÖrnJónsson skoraði fyr-
ir Stjörnuna í opið markið en mark-
ið var réttilega dæmt af þar sem
hann lagði boltann fyrir sig með
hendinni.
I 63. Samuel Tillen prjónaðisig í gegnum vörnina. Jó-
hann Laxdal elti hann og renndi sér
á eftir honum. Tillen pikkaði í bolt-
ann og Jóhann var aðeins of seinn
og felldi Tillen rétt innan vítateigs.
Þorvaldur dæmdi vítaspyrnu og gaf
Jóhanni beint rautt spjald.
FÆRI 64. Samuel Tillentók vítið sjálfur og
skaut yfir markið.
1:0 73. Almarr Ormarsson léklaglega upp að vítateigslín-
unni og skaut í hornið hægra megin.
Ingvar varði frábærlega en boltinn
féll fyrir fætur Kristins Inga Hall-
dórssonar sem kom honum í opið
markið hægra megin í markteign-
um. Varnarmenn Stjörnunnar sofn-
uðu á verðinum og gleymdu að
fylgja Kristni eftir.
1:1 90. Boltinn barst inn á teig-inn og féll fyrir Tryggva
Bjarnason sem þrumaði knettinum
í þverslána. Garðar Jóhannsson
fékk frákastið og kom boltanum í
netið úr miðjum vítateignum.
I Gul spjöld:Doninger (Stjörnunni) 26.
(brot), Scholz (Stjörnunni) 45.
(brot), Tillen (Fram) 60. (brot),
Sveinbjörn (Fram) 74. (brot), Ög-
mundur (Fram) 87. (leiktöf).
MMM
Enginn.
MM
Enginn.
M
Kristján Hauksson (Fram)
Samuel Hewson (Fram)
Almarr Ormarsson (Fram)
Kristinn Ingi Halldórsson (Fram)
Ingvar Jónsson (Stjörnunni)
Alexander Scholz (Stjörnunni)
Hörður Árnason (Stjörnunni)
Atli Jóhannsson (Stjörnunni)
Kristinn Ingi Halldórsson skor-
aði sitt ellefta mark í deildinni í
sumar þegar hann kom Frömurum
yfir. Hann er annar markahæstur, á
eftir Atla Guðnasyni úr FH. Krist-
inn hefur skoraði sjö mörk í síðustu
sjö leikjum Framara og tekið við
keflinu eftir að Steven Lennon rist-
arbrotnaði í 13. umferð.
Þetta gerðist á
Laugardalsvelli
Selfossvöllur, Pepsi-deild karla, 20.
umferð, fimmtudag 20. september.
Skilyrði: Logn og blíða, 12°C hiti.
Skot: Selfoss 15 (8) – Kefl. 11 (6).
Horn: Selfoss 15 – Keflavík 5.
Lið Selfoss: (4-4-2) Mark: Ismet
Duracak.Vörn: Endre Brenne, Hafþór
Þrastarson, Bernard Brons, Ivar
Skjerve. Miðja: Jón Daði Böðvarsson,
Babacar Sarr, Egill Jónsson, Tómas
Leifsson (Ólafur Finsen 83.). Sókn:
Jon André Röyrane (Ingólfur Þór-
arinsson 90.), Viðar Örn Kjartansson.
Lið Keflavíkur: (4-5-1) Mark: Ómar
Jóhannsson. Vörn: Grétar Atli Grét-
arsson, Magnús Þór Magnússon, Har-
aldur Freyr Guðmundsson (Rafn M.
Vilbergsson 62.), Jóhann R. Bene-
diktsson. Miðja: Magnús Sverrir Þor-
steinsson (Hörður Sveinsson 65.),
Einar Orri Einarsson, Denis Selimovic
(Jóhann Birnir Guðmundsson 65.),
Frans Elvarsson, Sigurbergur Elísson.
Sókn: Guðmundur Steinarsson.
Dómari: Kristinn Jakobsson – 9.
Áhorfendur: 826.
Selfoss – Keflavík 2:1
STÖNG 9. Jón DaðiBöðvarsson átti
sendingu fyrir þar sem Magnús Þór
Magnússon rak tána í boltann og var
nálægt því að skora sjálfsmark en
boltinn fór í utanverða stöngina.
1:0 45. Jón Daði Böðvarssonsendi boltann fyrir markið,
Ómar Jóhannsson kýldi hann út í
teiginn þar sem varnarmenn Keflvík-
ingar hreinsuðu frá. Boltinn barst á
Egil Jónsson sem lét vaða upp í sam-
skeytin af 30 metra færi. Óverjandi
fyrir Ómar.
2:0 49. Magnús Þór Magnússonfelldi Jón Daða Böðvarsson
í vítateignum. Viðar Örn Kjartansson
fór á vítapunktinn og skoraði af fá-
dæma öryggi í hægra hornið.
FÆRI 53. Jón Daði Böðv-arsson tók góða auka-
spyrnu fyrir utan vítateig. Ómar Jó-
hannsson þurfti að hafa sig allan við
að verja.
FÆRI 63. Bernard Bronsmeð ágætan skalla að
marki eftir hornspyrnu en Keflvík-
ingar komast fyrir boltann á síðustu
stundu.
FÆRI 79. Jon Andre Röyr-ane fékk boltann á
auðum sjó í vítateignum. Ómar Jó-
hannsson varði með tilþrifum og frá-
kastið barst á Egil Jónsson sem náði
ekki að leggja boltann fyrir sig og
Keflvíkingar hreinsuðu í horn.
2:1 80. Jóhann Birnir Guð-mundsson með fyrirgjöf
frá hægri. Selfyssingar hreinsuðu
frá, beint fyrir fætur Jóhanns sem
lét vaða að marki hægra megin í
teignum óverjandi upp í fjærhorn-
ið.
I Gul spjöld:Hafþór (Selfossi) 77. (brot),
Jóhann Ragnar (Keflavík) 86.
(brot).
I Rauð spjöld: Engin.
M
Bernard Brons (Selfossi)
Jón Daði Böðvarsson (Selfossi)
Egill Jónsson (Selfossi)
Ivar Skjerve (Selfossi)
Viðar Örn Kjartansson (Selfossi)
Einar Orri Einarsson (Keflavík)
Guðmundur Steinarsson (Keflavík)
Jóhann B. Guðmundsson (Keflavík)
Selfyssingarnir Robert Sandnes
og Stefán Ragnar Guðlaugsson
fyrirliði voru báðir í leikbanni eftir
rauð spjöld í leiknum gegn Fylki í
síðustu umferð. Stefán verður aftur
í banni á sunnudaginn gegn Stjörn-
unni eins og varafyrirliðinn Endre
Ove Brenne sem hefur fengið sjö
gul spjöld í sumar.
Þetta gerðist á Selfossvelli