Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 5

Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 5
Í KAPLAKRIKA Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar lið gefa andstæðingnum blóm- vönd fyrir leik í Kaplakrika. Jóhann- es Karl Guðjónsson fyrirliði ÍA af- henti Gunnleifi Gunnleifssyni fyrirliða FH einn slíkan þegar liðin áttust við í þriðju síðustu umferð Pepsi-deildarinnar í gær og Skaga- menn töpuðu 2:1. Það sama gerðist í ágúst þegar FH gaf KR blómvönd eftir að síðarnefnda liðið varð bik- armeistari fimm dögum áður. KR vann 3:1 og blómvöndurinn góði fór fyrir lítið! Það var þó Dean Martin sem kom- inn er á fimmtugsaldurinn sem skor- aði fyrsta mark leiksins en 19 ára piltur Emil Pálsson, jafnaði metin. Atli Guðnason tryggði svo FH stigin þrjú með síðustu spyrnu leiksins. Úrslitin voru sanngjörn enda bjarg- aði Páll Gísli Jónsson, markvörður ÍA sínum mönnum nokkrum sinnum í leiknum auk þess sem tréverkið þvældist fyrir heimamönnum í tví- gang. Gestirnir áttu aðeins eitt skot á markið á meðan heimamenn létu átta sinnum reyna á áðurnefndan Pál Gísla. Einar Karl ljósið í myrkrinu Það var þó greinilegt á leik heima- manna að mikilvægi leiksins var lítið fyrir þá. Fyrri hálfleikurinn var tíð- indalítill ef frá eru talin tvö skot Ein- ars Karls sem var ljósið í myrkrinu í fyrri hálfleik. Í þeim síðari hresstist yfir sókn- arleik heimamanna og þá sér- staklega eftir mark gestanna. Það var eins og að þá áttuðu Íslands- meistararnir sig á að þeir vildu ekki tapa og vildu raunar vinna. Þeir átt- uðu sig á því rétt í tíma því ekki mátti tæpara standa. ÍA áhrifavaldur í fallbaráttunni? Úrslitin eru hinsvegar afar slæm fyrir ÍA sem er í harðri baráttu um Evrópusæti. Þrjú stig hefðu verið kjörin og eitt stig betra en ekki neitt. Nú eru þeir hinsvegar í 6. sætinu með 29 stig en liðið hefur aðeins safnað tveimur stigum í síðustu þremur leikjum. Nýliðarnir eiga þó erfiða leiki eftir gegn liðinum sem berjast á botni deildarinnar, Fram og Selfossi. Það eru alltaf erfiðir leikir sér- staklega í ljósi þess að fallbaráttan gæti ráðist í síðustu umferð. 93 árgerðin sá um jöfnunarmarkið FH hefur að litlu að keppa í síðustu tveimur umferðunum. Þeir geta þó enn jafnað stigametið í 12 liða deild sem þeir settu sjálfir árið 2009. Liðið fékk þá 51 stig en sigur gegn bæði ÍBV og Val í síðustu umferðinni þeg- ar bikarinn fer á loft í Kaplakrika, tryggir það. Heimir Guðjónsson þjálfari liðsins getur leyft sér þann munað að gefa yngri leikmönnum liðsins tækifæri. Það ætti að vera eftirsóknarvert fyrir hann að gefa þeim fleiri mínútur í deild þeirra bestu. Sérstaklega í ljósi þess að eins og Heimir benti á eftir leikinn komu þrír leikmenn fæddir 1993 að jöfnunarmarkinu. Einar Karl átti sendingu á Kristján Gauta Em- ilsson sem skallaði að marki og Emil Pálsson hirti frákastið og skoraði. Morgunblaðið/Ómar Bræðurnir Garðar B. Gunnlaugsson og Bjarki B. Gunnlaugsson eigast við í Kaplakrikanum í gærkvöld. Bjarki hafði betur þegar upp var staðið. Ekki gefa blóm í Kaplakrika  FH-ingar geta jafnað stigametið Morgunblaðið/Ómar stöðu að vera annar þjálfara ÍBV, daginn fyrir leik. Hann vék úr byrjunarliðinu en kom inná þegar leið á leikinn og hér reyna þrír Valsmenn að hafa við honum. ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 SLÁ 29. Einar Karl Ingv-arsson átti skot í slána á marki ÍA, beint úr aukaspyrnu. Flott skot hjá Einari. STÖNG 56. Afturbjargaði tré- verkið gestunum en Atli Guðna- son var einn og óvaldaður í teign- um og skallaði í stöng af stuttu færi. 0:1 62. Af harðfylgi skallaðiDean Martin boltann í netið af stuttu færi en Gunnleifur Gunnleifsson misreiknaði send- ingu Andra Adolphssonar. 1:1 74. Einar Karl sendi bolt-ann á kollinn á Kristjáni Gauta Emilssyni í teignum sem skallaði að marki en Páll Gísli Jónsson varði. Emil Pálsson tók frákastið og skoraði af stuttu færi. FÆRI 79. Kristján Gautivar í dauðafæri á markteignum eftir sendingu frá Emil. Kristján skallaði boltann hinsvegar rétt yfir markið. 2:1 90. Þegar tvær mínúturvoru komnar framyfir venjulegan leiktíma sendi Krist- ján Gauti langa stungusendingu í gegnum miðja vörnina á Atla Guðnason sem hljóp af sér varn- armenn ÍA og kom boltanum framhjá Páli Gísla. I Gul spjöld:Engin. I Rauð spjöld: Engin. MMM Enginn. MM Enginn. M Einar Karl Ingvarsson (FH) Atli Guðnason (FH) Emil Pálsson (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH) Freyr Bjarnason (FH) Andri Adolphsson (ÍA) Dean Martin (ÍA)  Viðtöl við Heimi Guðjónsson þjálfara FH og Þórð Þórðarson þjálfara ÍA eru að finna á mbl.is.  Allir þrír leikmenn FH sem komu að jöfnunarmarkinu eru fæddir 1993, Einar Karl Ingvars- son, Kristján Gauti Emilsson og markaskorarinn Emil Pálsson. Þetta gerðist í Kaplakrika „Við þjöppuðum okkur bara sam- an og ætlum að spila þessa leiki sem eftir eru af fullum krafti eins og við sýndum í þessum leik. Við vorum með þenn- an leik í okkar höndum allan tímann,“ sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson leik- maður ÍBV eftir 3:0 sigurinn á Val í gær í fyrsta leik eftir að Magnús Gylfason hætti sem þjálfari. „Auðvitað var mönnum brugðið yfir þessu. Það héldu allir að tíma- bilið yrði klárað. Svona gerist í fót- boltanum og það er ekkert hægt að svekkja sig á því. Maður verður bara að búa sig undir næsta leik,“ sagði Þórarinn sem gaf lítið fyrir kjaftasögur um að leikmennirnir sjálfir hefðu viljað að Magnús færi frá liðinu. „Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Fyrir mitt leyti þá var ekki um neitt slíkt að ræða,“ sagði Þórarinn sem fagnar því að Hermann Hreiðarsson snúi nú aftur til Vestmannaeyja. sindris@mbl.is „Mönnum var brugðið yfir þessu“ Þórarinn Ingi Valdimarsson Kaplakriki, Pepsi-deild karla, 20. um- ferð, fimmtudag 20. september 2012. Skilyrði: Logn, þurrt og um átta stiga hiti. Völlurinn tættur en annars góður. Skot: FH 21 (8) – ÍA 8 (1). Horn: FH 6 – ÍA 5. Lið FH: (4-3-3) Mark: Gunnleifur Gunnleifsson. Vörn: Guðjón Árni Ant- oníusson, Freyr Bjarnason, Pétur Við- arsson, Viktor Örn Guðmundsson. Miðja: Bjarki Gunnlaugsson, Einar Karl Ingvarsson (Ólafur Páll Snorrason 85.), Björn Daníel Sverrisson. Sókn: Hólmar Örn Rúnarsson (Emil Pálsson 67.), Albert Brynjar Ingason (Kristján Gauti Emilsson 59.), Atli Guðnason. Lið ÍA: (4-5-1) Mark: Páll Gísli Jóns- son. Vörn: Theodore Furness, Kári Ár- sælsson, Ármann Smári Björnsson, Einar Logi Einarsson (Guðjón Heiðar Sveinsson 82.). Miðja: Dean Martin (Aron Ýmir Pétursson 76.), Jóhannes Karl Guðjónsson, Arnar Már Guð- jónsson, Jesper Holdt Jensen (Hallur Flosason 30.), Andri Adolphsson. Sókn: Garðar Gunnlaugsson. Dómari: Garðar Örn Hinriksson – 9. Áhorfendur: 1260. FH – ÍA 2:1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.