Morgunblaðið - 21.09.2012, Qupperneq 7
HANDBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
FH ætti að geta gert tilkall til sigurs
í N1-deildinni í handbolta á komandi
leiktíð en liðið vann sinn fyrsta Ís-
landsmeistaratitil í langan tíma fyrir
rúmlega ári síðan. Handboltahefðin
er mikil í FH en liðið á að baki 16 Ís-
landsmeistaratitla og fimm bik-
armeistaratitla. Í Kaplakrika er
gerð krafa um árangur og liðið í ár
getur farið alla leið.
FH er búið að missa þrjá sterka
leikmenn. Línumaðurinn Atli Rúnar
Steinþórsson er hættur sem og
skyttan Hjalti Pálmason og þá fór
Örn Ingi Bjarkason aftur heim í Aft-
ureldingu. Til liðsins eru komnir þrír
Framarar; hornamaðurinn Einar
Rafn Eiðsson, línumaðurinn Jóhann
Karl Reynisson og Arnar Birkir
Hálfdánsson.
Einar Andri Einarsson stýrir FH-
liðinu nú einn eftir að hafa verið
Kristjáni Arasyni til aðstoðar und-
anfarin ár. Einar Andri þekkir hand-
boltafræðin vel þó hann sé ungur að
árum og er einn alefnilegasti þjálfari
landsins.
Erum að þróa okkar leik
FH var spáð 2. sæti í árlegri spá
fyrirliða og þjálfara fyrir Íslands-
mótið á eftir erkifjendum sínum í
Haukum sem vantaði aðeins þrjú
stig upp á fullt hús. Aðspurður hvort
eitthvað hafi komið á óvart varðandi
spána, segir Ólafur Gústafsson, stór-
skytta FH-inga:
„Nei, ekki þannig. Við vitum að
þetta verður hörkubarátta um annað
til áttunda sætið og við göngum ekki
að neinu vísu þar. Við vitum að við
þurfum að leggja okkur alla fram til
að ná árangri í vetur.“
Hann er þokkalega ánægður með
undirbúning liðsins. „Við erum búnir
að spila tólf leiki og það hefur gengið
svona upp og niður. Við höfum náð
að þróa okkar leik vel og erum að
koma nýjum mönnum inní liðið,“
segir hann, en hvernig líst skyttunni
á leikmannahópinn?
„Hópurinn er mjög góður. Það eru
ekki mikla breytingar frá því í fyrra
en það eru einhverjir farnir út og
einhverjir nýir komnir inn. Þetta er
að slípast vel saman og nýju menn-
irnir koma vel inn í liðið enda góður
mórall þar fyrir. Það verða ekki
miklar breytingar á okkar leik í vet-
ur en einhverjar áherslubreytingar
samt,“ segir Ólafur.
Treysti Einari 100 prósent
„Það er líf eftir Kristján,“ segir
Ólafur, spurður um brotthvarf þjálf-
arans Kristjáns Arasonar sem skil-
aði titlinum í hús eftir langa bið FH-
inga.
„Kristján var mjög góður þjálfari
og hafði mikið til málanna að leggja
en Einar hefur líka verið með okkur
lengi og þekkir vel inn á okkur.
Hann hefur líka sjálfur lært af
Kristjáni. Ég treysti Einari 100 pró-
sent í þetta verkefni,“ segir Ólafur,
en hvert stefna FH-ingar á tíma-
bilinu?
„Ég held að markmiðið sé bara að
vera á meðal fjögurra efstu og sjá
svo til. Það verður alveg nægilega
krefjandi verkefni því deildin verður
svo jöfn. Að ná einu af efstu fjórum
sætunum er bæði raunhæft og verð-
ugt markmið,“ segir Ólafur.
Ætlar sér í atvinnumennsku
Mörgum handboltaspekingum
finnst Ólafur ekki hafa verið nálægt
því að sýna sitt rétta andlit undan-
farin ár en við miklu er búist af hon-
um í vetur. Sjálfur ætlar hann sér
stóra hluti.
„Ég set aðallega pressu á sjálfan
mig og er ekkert að pæla í því sem
aðrir segja. Ég ætla mér stærri hluti
í boltanum og ætla að vera einn af
bestu leikmönnunum í vetur. Mark-
miðið er að spila vel og komast út.
Ég var með tilboð fyrir þetta tíma-
abil en ákvað að halda áfram hjá FH
og taka þennan vetur með trompi,“
segir Ólafur.
Hann fékk smá bragð af því
hvernig það er að vera í íslenska
landsliðinu í sumar en það var eitt-
hvað sem hvatti Ólaf til dáða.
„Það sýndi mér að ég er fær um
miklu meira en ég bjóst við. Ég
lærði mikið af Gumma í sumar og nú
dreymir mig um að vinna mér inn
landsliðssæti. Ég held að fólk geri
sér ekki grein fyrir því hvað þetta er
stór pakki. Þetta er mun stærra
stökk en maður býst við. Allt í einu
er maður mættur á æfingu með frá-
bærum leikmönnum þar sem enginn
er lélegur. Ég var lélegi gaurinn,“
segir Ólafur Gústafsson.
N1-deildin í handbolta hefst
næstkomandi mánudagskvöld, 24.
september, með heilli umferð. Morg-
unblaðið kynnir öll liðin í N1-
deildinni til leiks.
Morgunblaðið/Ómar
Lykilmaður Ólafur Gústafsson verður örugglega í stóru hlutverki hjá FH.
Krefjandi verkefni að
vera meðal fjögurra efstu
FH líklegt til afreka í vetur Kristján horfinn á braut Nýir menn koma sér
vel fyrir Ólafur Gústafsson ætlar sér að vera einn besti maður mótsins
Þjálfarinn
» Einar Andri Einarsson þjálf-
aði FH með Kristjáni Arasyni
en tók einn við liðinu eftir að
Kristján lét af störfum í sum-
ar.
» Einar hefur verið lengi við-
loðandi handboltann hjá FH
en hann þjálfaði lengi nýjustu
gullkynslóð félagsins (Aron
Pálmarsson m.a.).
» Hann var aðstoðarmaður
Elvars Arnar Erlingssonar
þegar liðið komst upp 2008
og á fyrsta tímabilinu í efstu
deild 2009. Einar þjálfaði svo
FH 2010 og með Kristjáni eft-
ir það.
» Einar Andri hefur einnig
þjálfað yngri landslið Íslands
með fínum árangri.
Leikmannabreytingar
» Komnir:
Einar Rafn Eiðsson (Fram), Jó-
hann Karl Reynisson (Fram),
Arnar Birkir Hálfdánsson
(Fram).
» Farnir:
Atli Rúnar Steinþórsson (hætt-
ur), Pálmar Pétursson (hætt-
ur), Hjalti Pálmason (hættur),
Örn Ingi Bjarkason (Aftureld-
ingu), Atli Hjörvar Einarsson
(Víking).
Fyrstu fimm leikir FH
» Akureyri (ú) 24. sept.
» Valur (ú) 27. sept.
» Fram (h) 4. okt.
» ÍR (ú) 11. okt.
» HK (h) 18. okt.
Morgunblaðiði/hag
Markmaðurinn Daníel Freyr Andrésson var öflugur í marki FH í fyrra.
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Tandri MárKonráðsson
verður ekki með
Íslandsmeist-
urum HK í hand-
knattleik á fyrstu
vikum eða mán-
uðum Íslands-
mótsins i vetur.
Tandri, sem vakti
talsverða athygli með Kópavogslið-
inu síðasta vetur, meiddist illa á baki
í sumar og óttast var að hann yrði
frá keppni í allt að hálft ár. Í viðtalið
við netmiðilinn handbolti.org segir
Tandri að hann eigi von á að fara í
myndatöku á ný í lok mánaðarins og
þá verði staðan endurmetin.
Bjarki Aðalsteinsson, sem lékmeð 2. deildarliði Reynis úr
Sandgerði í knattspyrnunni í sumar,
var valinn besti varnarmaðurinn í
austurdeild bandarísku há-
skóladeildarinnar í síðustu viku.
Bjarki leikur með liði James Madis-
on háskólans og vegnar þar mjög vel
á fyrsta ári en í frétt á heimasíðu
skólans segir að hann hafi átt stóran
þátt í tveimur mikilvægum sigrum í
vikunni. Hann fékk einnig sérstök
nýliðaverðlaun á dögunum fyrir
frammistöðu sína. Bjarki er 21 árs
og var var í leikmannahópi Breiða-
bliks en var lánaður til Reynismanna
í sumar.
Jack Wilshere, miðjumaður enskaknattspyrnuliðsins Arsenal,
æfði með liðinu af fullum krafti í
gær, í fyrsta skipti í fjórtán mánuði.
Wilshere, sem er aðeins tvítugur en
var þegar búinn að vinna sér sæti í
enska landsliðinu, meiddist á fæti og
missti af öllu síðasta tímabili og er
að verða leikfær fyrst núna.
Enski miðju-maðurinn
Joey Barton lék í
gærkvöld sinn
fyrsta leik síðan
hann fékk 12
leikja bann hjá
enska knatt-
spyrnusamband-
inu síðasta vor,
fyrir framkomu sína í leik QPR gegn
Manchester City í lokaumferð úr-
valsdeildarinnar. Barton var lánaður
frá QPR til Marseille í haust, og þarf
þar að afplána það sem hann á eftir
af banninu. Hann mátti hinsvegar
spila í Evrópudeild UEFA með
franska liðinu og lék í 70 mínútur
þegar það gerði jafntefli, 2:2, gegn
Fenerbache í Tyrklandi. Marseille
var reyndar 2:0 undir þegar Barton
var skipt af velli en náði að jafna
metin þegar Andre Ayew skoraði á
fjórðu mínútu í uppbótartíma.
John Andrewsvar í gær-
kvöld endurráð-
inn þjálfari
kvennaliðs Aftur-
eldingar í knatt-
spyrnu til næstu
tveggja ára.
Hann hefur stýrt
liðinu frá miðju
sumri 2010, og hafði áður verið að-
stoðarþjálfari þess frá 2008. Aftur-
elding hefur haldið velli í efstu deild
allan þennan tíma, alltaf eftir harða
baráttu. Andrews er 33 ára gamall
Íri og leikur með karlaliði Aftureld-
ingar.
Tiger Woods ætlar að láta RoryMcIlroy hafa fyrir sigrinum í
Fedex-úrslitakeppninni á PGA-
mótaröðinni í golfi. Lokamótið hófst
í gærkvöldi og er Tiger efstur að
loknum fyrsta hring á 66 höggum
sem er fjögur högg undir pari.
McIlroy og Phil Mickelson eru á
höggi undir pari. McIlroy er efstur í
úrslitakeppninni en Tiger og Mickel-
son nægir báðum að vinna lokamótið
til að vinna einnig úrslitakeppnina.
Fólk sport@mbl.is