Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 8
HANDBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Akureyri handboltafélag er yngsta
liðið í N1-deild karla í handbolta.
Það var sett saman úr erkifjend-
unum Þór og KA sumarið 2006 og
hóf leik í efstu deild sama haust. Það
var nær falli en úrslitakeppni fyrstu
þrjú árin en liðið komst fyrst í úr-
slitakeppnina 2010.
Leiktíðina 2010/2011 mættu Ak-
ureyringar með ógnarsterkt lið til
leiks og urðu deildarmeistarar sem
var fyrsti titill hins nýja félags. Ak-
ureyri þurfti aftur á móti að lúta í
gras fyrir FH í úrslitum um Íslands-
meistaratitilinn. Í vor sló FH svo
Akureyri aftur úr úrslitakeppninni,
nú í undanúrslitum.
Liðið hefur misst sterka leikmenn
á borð við markvörðinn Sveinbjörn
Pétursson, Guðlaug Arnarsson,
Hörð Fannar Sigþórsson og Daníel
Einarsson. Á móti hefur Akureyri
fengið heim Hrein Þór Hauksson,
Andra Snæ Stefánsson og tvo er-
lenda markverði. Þá getur varnar-
tröllið úr Mosfellsbænum, Ásgeir
Jónsson, leikið allt tímabilið með lið-
inu en hann var meiddur lengi vel í
fyrra.
Atli Hilmarsson lét af störfum
sem þjálfari Akureyrar eftir síðasta
tímabil og við tóku Heimir Örn
Árnason og Bjarni Fritzson sem eru
spilandi þjálfarar.
Stútfullt á leikmannakynningu
„Stemningin er fáránlega mikil
fyrir liðinu. Gæti vart verið miklu
betri,“ segir hornamaðurinn knái,
Oddur Gretarsson, um Akureyr-
arliðið og spenninginn norðan heiða
fyrir komandi tímabili.
„Það var leikmannakynning um
daginn og það var alveg troðfullt
hús. Fólkið er spennt eins og við.
Svo er búið að bæta við sætum í
Höllina. Það er búið að bæta við sæt-
um fyrir neðan stúkuna þannig
áhorfendur geta verið ennþá nær
átökunum. Þetta eru einhver 400
sæti sem bættust við þannig að það
verður skemmtilegt að sjá hvernig
verður að spila þarna,“ segir Oddur.
„Sjálfir erum við búnir að æfa eins
og brjálæðingar í sumar og þrátt
fyrir að missa nokkra góða leikmenn
erum við staðráðnir í að gera vel í
vetur,“ segir Oddur.
Ekki á flæðiskeri staddir
Akureyri hefur misst fleiri leik-
menn en það hefur fengið en Oddur
er samt sem áður ánægður með hóp-
inn. Þá sérstaklega nýja svartfellska
markvörðinn Jovat Kukobat.
„Hann er búinn að standa sig gríð-
arlega vel í leikjunum á undirbún-
ingstímabilinu. Hann lítur virkilega
vel út en svo sjáum við hvernig þetta
verður í vetur,“ segir Oddur en það
verða líka ungir spilarar sem fá mín-
útur.
„Við fengum Hrein Hauksson aft-
ur og svo varð 2. flokkur náttúrlega
Íslandsmeistari í fyrra. Þar erum við
að fá upp flotta stráka þannig að við
erum ekki á flæðiskeri staddir með
efnilega leikmenn. Svo er líka kom-
inn tími á að þeir sem hafa fengið
minna að spila undanfarin ár sanni
sig,“ segir Oddur.
Heimir og Bjarni alltaf stjórnað
Þegar Atli Hilmarsson sagði starfi
sínu lausu hjá Akureyri eftir síðasta
tímabil réð liðið tvo leikmenn til
starfa. Heimir Örn Árnason, fyrirliði
liðsins undanfarin ár, og markavélin
Bjarni Fritzsson eru saman spilandi
þjálfarar. Oddur er ánægður með
þá.
„Þeir eru mjög flottir. Sumarið
hefur verið vel skipulagt og gengið
vel. Við erum búnir að æfa vel og ég
er virkilega ánægður. Það hefur
samt í raun ekkert mikið breyst.
Bjarni og Heimir stjórnuðu þessu
mikið í fyrra. Sævar [Árnason]
stjórnar þessu áfram á bekknum en
Heimir og Bjarni eru annars með
allt. Þeir eru miklir leiðtogar og eru
núna í réttum stöðum finnst mér.
Þeir hafa verið að stjórna þessu und-
anfarin ár en núna er komin meiri
ábyrgð á þá sem þjálfara, sem ég
veit að þeir munu standa undir,“
segir Oddur.
N1-deildin í handbolta hefst
næstkomandi mánudagskvöld, 24.
september, með heilli umferð. Morg-
unblaðið kynnir öll liðin í N1-
deildinni til leiks.
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Þjálfari Hornamaðurinn reyndi Bjarni Fritzson skoraði tæp átta mörk að með-
altali í leik fyrir Akureyrarliðið í fyrra, eða 163 mörk í 21 leik í deildinni. Nú er
hann annar spilandi þjálfara liðsins, ásamt Heimi Erni Árnasyni.
„Stemningin gæti
vart verið miklu betri“
Mikil spenna og áhugi á Akureyri Misstu sterka leikmenn en ungir meist-
arar fá að spreyta sig Tveir spilandi þjálfarar Stúkan stækkuð til muna
Þjálfararnir
» Heimir Örn Árnason og
Bjarni Fritzson tóku við af Atla
Hilmarssyni í sumar og verða
spilandi þjálfarar Akureyrar.
» Báðir tveir hafa verið á með-
al bestu leikmanna deild-
arinnar undanfarin ár og Bjarni
einn af þeim markahæstu.
» Bæði Bjarni og Heimir hafa
leikið sem atvinnumenn og
saman eiga þeir yfir 60 lands-
leiki að baki.
» Þetta er fyrsta þjálfarastarf
þeirra beggja.
Leikmannabreytingar
» Komnir:
Hreinn Þór Hauksson (námi
erlendis), Jovan Kukobat
(Jugovica), Thomas Olason,
(Odder)
» Farnir:
Daníel Örn Einarsson (HK),
Guðlaugur Arnarsson (hætt-
ur), Sveinbjörn Pétursson
(EHV Aue), Hörður Fannar Sig-
þórsson (Kyndil), Jón Heiðar
Sigurðsson, (Gróttu), Halldór
Tryggvason (FH), Hlynur Elmar
Matthíasson, (Víking).
Fyrstu fimm leikir
Akureyrar
» FH (h) 24. sept.
» Fram (ú) 27. sept.
» ÍR (h) 4. okt.
» HK (ú) 11. okt.
» Afturelding (h) 18. okt.
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Lykilmaður Hornamaðurinn Oddur Gretarsson er í stóru hlutverki hjá
Akureyri. Hann hefur verið viðloðandi íslenska landsliðið síðustu misserin.
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Gunnar Rafn
Borgþórsson var
í gær ráðinn
þjálfari kvenna-
liðs Selfoss í
knattspyrnu til
næstu tveggja
ára en hann hef-
ur þjálfað Vals-
konur undan-
farin tvö ár.
Gunnar tekur
við af Birni Kristni Björnssyni sem
hefur þjálfað Selfyssinga í tvö ár en
undir hans stjórn vann liðið sig upp
í efstu deild í fyrsta sinn í fyrra og
kom síðan skemmtilega á óvart í
sumar og náði að halda sæti sínu,
þvert ofan í flestar spár.
Gunnar Rafn er 31 árs gamall,
austfirskur að uppruna og spilaði
sjálfur lengi með Aftureldingu, en
var á Selfossi í nokkur ár áður en
hann tók við Valsliðinu haustið
2010. Undir hans stjórn varð Valur
bikarmeistari 2011 en endaði í
fjórða sæti Pepsi-deildarinnar á ný-
loknu tímabili. vs@mbl.is
Gunnar Rafn
tekur við liði
Selfyssinga
Gunnar Rafn
Borgþórsson
Stefán Már Stef-
ánsson lagaði
stöðu sína á 1.
stigi úrtökumót-
anna fyrir Evr-
ópumótaröðina í
golfi í Þýska-
landi í gær þegar
hann lék á 70
höggum sem er
tveimur höggum
undir pari vall-
arins.
Fínn hringur hjá Stefáni sem
náði sér í tvo fugla á lokasprett-
inum og kom sér undir parið.
Fyrstu tvo hringina hafði hann hins
vegar leikið á 75 höggum og vænt-
anlega þarf hann á draumahring að
halda í dag til að eiga einhverja
möguleika á því að komast áfram.
Stefán er í 55. sæti og hækkaði sig
um tíu sæti á milli hringja.
Þórður Rafn Gissurarson félagi
hans úr GR er í 85. sæti. Hann lék á
76 höggum og er samtals á þrettán
höggum yfir pari eða níu höggum á
eftir Stefáni. Þórður byrjaði vel í
mótinu á 71 höggi en síðan hefur
hallað undan fæti. kris@mbl.is
Stefán styrkti
stöðuna í
Þýskalandi
Stefán Már
Stefánsson
Ólafur Björn
Loftsson úr Nes-
klúbbnum er í 49.
sæti af 75 kepp-
endum í for-
keppni úrtöku-
mótanna fyrir
PGA-mótaröðina
í Bandaríkj-
unum. Ólafur er
samtals á fimm
höggum yfir pari
en hann lék annan hringinn á 71
höggi sem er högg yfir pari.
Ólafur lék fyrsta hringinn þar af
leiðandi á 74 höggum og er ekki lík-
legur til að komast áfram á 1. stig-
ið. 20 kylfingar eru undir pari á
þessum tímapunkti í mótinu og
Ólafur er því nokkuð langt á eftir.
Hvernig sem fer að loknum 72 hol-
um þá mun Ólafur einnig reyna við
Evrópumótaröðina og spilar í
London ásamt Ólafi Má Sigurðssyni
GR í byrjun október. kris@mbl.is
Ólafur á fimm
höggum yfir
pari samtals
Ólafur Björn
Loftsson