Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012 9
Lausar eru til umsóknar tvær stöður við leikskólann Glaðheima, önnur er 100% staða
aðstoðarskólastjóra hin er 50% staða vegna stuðnings á deild fyrir 3-4 ára börn.
Umsækendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Leikskólinn Glaðheimar er 3ja deilda skóli með börn frá 1-6 ára. Áhersla er lögð á
lífsleikni og útiveru. Leikskólakennaramenntun er æskileg, annars verður ráðið í stöðuna með tilliti til
menntunar og fyrri starfsreynslu.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður leikskólastjóri í síma 456-7264 eða
á netfangið gladh@bolungarvik.is
Umsóknir berist á leikskólann Glaðheima Hlíðarstræti 16 Bolungarvík
eða á netfangið gladh@bolungarvik.is fyrir 20. október 2012
Leikskólakennarar óskast
við leikskólann Glaðheima Bolungarvík
Starfskraftur óskast
Vélar og skip ehf. óskar eftir að ráða fram-
tíðar-starfskraft á verkstæði fyrirtækisins.
Menntun á sviði vélfræði og/eða vélvirkjunar
er kostur. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Umsóknir skal senda á toti@vos.is fyrir
14. október nk. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Lögfræðingur
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum
auglýsir laust til umsóknar starf löglærðs
fulltrúa við embættið. Um er að ræða tíma-
bundna ráðningu til 1. júlí 2013.
Umsækjendur skulu hafa lokið kandídatsprófi í
lögfræði.
Laun eru skv. kjarasamningi STÉL (Stéttar-
félags lögfræðinga) og fjármálaráðherra.
Skriflegum umsóknum ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf óskast sendar með
tölvupósti til gauti@syslumenn.is eða bréfi til
Sýslumannsins í Vestmannaeyjum, Heiðarvegi
15, 900 Vestmannaeyjum.
Nánari upplýsingar veitir Karl Gauti Hjaltason
sýslumaður í síma 488 1000.
Umsóknarfrestur er til og með 22. október nk.
Gengið verður frá ráðningu samkvæmt nánara
samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut
kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Yfirmaður mötuneytis í foldaskóla
Foldaskóli óskar eftir að ráða yfirmann
í mötuneyti skólans.
Umsóknarfrestur er til 15. október 2012.
Allar frekari upplýsingar veitir Kristinn Breiðfjörð
Guðmundsson, skólastjóri í síma 540 7600 eða
netfangið kristinn.breidfjord.gudmundsson@
reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar
og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á
heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Helstu verkefni og ábyrgð:
Yfirmaður mötuneytis ber ábyrgð á matseld,
innkaupum, stjórnun, skipulagningu og framkvæmd
starfsins í eldhúsinu í samvinnu við skólastjóra.
Hæfniskröfur:
matreiðslu
mötuneyta
!
Kvenfélagasamband Íslands vill auk-
in framlög til starfsemi Leiðbein-
ingastöðvar heimilanna, sem það
hefur rekið sl. 50 ár. Þangað geta
allir leitað sér að kostnaðarlausu eft-
ir góðum ráðum við húsverkin, m.a. í
gegnum símaþjónustu, á netinu og í
útgefnu fræðsluefni
Í ályktun kvenfélaganna segir að í
tímans rás hafi ríkisvaldið stutt leið-
beiningastarfið mjög myndarlega. Á
síðustu misserum hefur í auknum
mæli verið leitað eftir ráðum; inn-
hringingum hafi fjölgað og eins
heimsóknum á vefsetur. Á sama
tíma hafi fjárframlög til starfsem-
innar dregist saman; hafi á síðasta
ári verið 6 millj. kr. en sé nú 1,5 millj.
kr. Af þessum sökum sé áframhald-
andi starfsemi í miklu uppnámi og
því er skorað á fjárveitingarvaldið
að bæta úr. sbs@mbl.is
Húsmæðurnar vilja fá hjálp
Morgunblaðið/Eggert
Matreiðsla Í eldamennsku er mikilvægt að geta fengið ráð þegar í vörðurnar rekur.
Leiðbeiningar-
stöð í vanda og
þarf stuðning