Morgunblaðið - 16.04.2013, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 16.04.2013, Qupperneq 3
ALMENNT HLUTAFJÁRÚTBOÐ Áskriftartímabili lýkur í dag kl. 16:00 Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með almennu útboði á 60% hlut í Vátryggingafélagi Íslands hf., en seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 70%. Fjárfestum eru boðnar þrjár áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðsbækur. Seljandi óskar eftir áskriftum á verðbilinu 6,75–7,95 krónur á hlut í tilboðsbækur A og B, en allir hlutir sem seldir verða í þeim bókum verða á sama verði. Framangreint verðbil samsvarar því að heildarandvirði hlutafjár í VÍS sé 16,9–19,9 milljarðar króna. Seljandi óskar eftir áskriftum í tilboðsbók C á lágmarksverði 6,75 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í þessari tilboðsbók útboðsins verður úthlutað á því gengi sem viðkomandi fjárfestir býður. Stefnt er að því að útboðið marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á VÍS og geri félaginu kleift að uppfylla lágmarksskilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár hjá félögum sem fá hlutabréf tekin til viðskipta í Kauphöllinni. Markmið seljandans er jafnframt að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína. 10% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði 100.000–50.000.000 kr. Fjár- festar skila áskrift rafrænt á vefArion banka, www.arionbanki.is. Til þess notar fjárfestir notandanafn sitt og lykilorð að netbanka Arion banka, eða kennitölu sína og lykilorð sem hann pantar á áskriftarvefnum og fær sent um hæl sem rafrænt skjal í netbanka sinn hjá hvaða íslenska viðskipta- banka sem er. 30,1% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði meira en 50 milljónir króna. Fjárfestar eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingar- bankasviðs Arion banka og skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og lykilorð sem hann fær sent í netbanka sinn. Fjárfestum boðnir fjórir 2,475% eignarhlutir, samtals 9,9%. Fjárfestar eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingarbankasviðs Arion banka og skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og lykilorð sem hann fær sent í netbanka sinn. Auk þessarar grunnskiptingar verður 10–20% hluta ráðstafað í eina eða fleiri af tilboðsbókunum eftir því sem verð og magn eftirspurnar gefur tilefni til. ÚTHLUTUN Komi til þess að eftirspurn í útboðinu verði meiri en sem nemur stærð útboðsins, þá verða áskriftir í tilboðsbók A skertar um allt að 75% (utan áskriftir 100–500 þús.kr. og áskriftir starfsmanna VÍS að hámarki 3 milljónir kr.) og þurfi að koma til frekari niðurskurðar verða hæstu áskriftir lækkaðar frekar. Úthlutun til fjárfesta í tilboðsbókum B og C verður samkvæmt einhliða ákvörðun seljanda, sem taka mun mið af markmiðum útboðsins. ÁSKRIFTARTÍMABIL OG ÞÁTTTAKA Áskriftartímabil stendur frá föstudeginum 12. apríl klukkan 10.00 til þriðjudagsins 16. apríl klukkan 16.00. Þátttaka í útboðinu er heimil aðilummeð íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir ogmeð þeim takmörkun- um sem kunna að leiða af lögum. Það þýðir m.a. að erlendir aðilar, skv. skilgreiningu 1.mgr. 1.gr. laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992, skulu sýna fram á að þeim sé heimilt að fjárfesta í verðbréfunum sem boðin eru í útboðinu, sbr. 13.gr.m og 13.gr.b. í gjaldeyrislögunum. Eindagi kaupverðs er áætlaður 23. apríl 2013. Stefnt er að því að 24. apríl 2013 verði fyrsti dagur viðskipta með hluti VÍS á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar umVÍS og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu VÍS dagsettri 27. mars 2013 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast rafrænt á vis.is/fjarfestar og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum VÍS að Ármúla 3 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um útboðið má nálgast á arionbanki.is, svo og með tölvupósti á visipo2013@arionbanki.is eða í síma 444 7000 milli kl. 9.00 og 20.00 meðan áskriftartímabilið stendur yfir. TILBOÐSBÓK A TILBOÐSBÓK B TILBOÐSBÓK C

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.