Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 24
SVIÐSLJÓS Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Þ að er ekkert nýtt komið fram um þennan tiltekna orkukost síðan allt þetta ferli fór fram,“ segir Gústaf Adolf Skúlason, framkvæmdastjóri Samorku. Hann vísar þar til rammaáætlunar um nýt- ingu orkukosta sem Alþingi sam- þykkti í vetur. Landvernd lagði ný- lega til að virkjun í Bjarnarflagi yrði sett í biðflokk. Umhverfisstofnun setti Mývatn nýlega á rauðan lista yf- ir svæði sem talin eru í verulegri hættu. Áform um Bjarnarflagsvirkj- un eru meðal ógnana sem tilgreindar eru vegna óvissu um áhrif virkj- anaframkvæmda á vistkerfi Mývatns. Meðal þess sem sett hefur verið fram í umræðunni eru áhyggjur um að virkjunin raski kísilþörunga- framleiðslu í vatninu. Verkefnisstjórn um rammaáætl- un orkukosta hefur verið að störfum um árabil. Alþingi fjallaði um málið í vetur og þá sendi Landsvirkjun inn viðbótarumsögn. Niðurstaða Alþingis var sú að Bjarnarflag er í nýting- arflokki. Nógu heitt til kísilupptöku Í umsögn Landsvirkjunar segir að í rannsókn á mati á umhverfis- áhrifum komi fram að þótt affalls- vatnið sé fremur efnissnautt af kísil miðað við volga grunnvatnstrauminn þá sé það nógu heitt til að taka upp allan kísil í bergi á leiðinni. „Rammaáætlunarferlið tók lang- an tíma og fór í gegnum ýmsa snún- inga. Það voru gerðar miklar breyt- ingar á niðurstöðum verkefnis- stjórnar og enduðu mun færri orkukostir í nýtingarflokki en ætla hefði mátt af niðurstöðum verkefn- isstjórnar,“ segir Gústaf Adolf. Landsvirkjun hefur áfangaskipt virkjuninni og ráðgerir að fyrsti áfangi verði 45 MW en 3 MW virkjun hefur verið á staðnum síðan 1969. Ráðgert er að hún muni hverfa ef og þegar unnið verður að frekari virkjun á svæðinu – en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort eða hvenær sótt verður um virkjunarleyfi. Í greinargerð Landsvirkjunar til nefndasviðs Alþingis í desember 2012 segir að ekki séu talin umtalsverð áhrif af affallsvatni umfram það sem hafi verið undanfarna áratugi af upp- töku úr svæðinu sem hafi verið um 50 kíló á sekúndu. Þá segir að í mati á umhverfisáhrifum sé gert ráð fyrir djúpdælingu niður á 1.200 til 2.000 metra sem tilraun en að heimilt verði að losa affall á yfirborð í byrjun. Djúpdæling er talin æskileg til góða fyrir jarðhitakerfið. Fram kemur að djúpdæling hafi reynst vel við Kröflu þar sem dælt hefur verið niður á 2.000 metra dýpi í um tvo áratugi. Svæðið sé vaktað af smáskjálftamælingum og að ekki sé að sjá að niðurdælingin hafi aukið skjálftavirkni umtalsvert. Minni kísilstyrkur breyti litlu Landsvirkjun telur ólíklegt að einhver samdráttur í kísilstyrk í inn- rennsli Mývatns breyti neinu um lífs- skilyrði kísilþörunga í vatninu. Með- alstyrkur yfir veturinn er 10 mg/lítrann og fer niður í 3 mg/lítrann á sumrin, meðan kísilþörungar eru í vexti. Í hafinu umhverfis Ísland er meðalstyrkurinn 0,15 mg/lítrann en getur lækkað á vorin niður í 0,03 mg/ lítrann, samkvæmt rannsókn frá 2008. Vitnað er til stöðuvatna á Íslandi þar sem kísilþörungar geta framleitt þangað til styrkur fer niður í 0,1 mg/ lítrann, sem er svipað og í hafinu um- hverfis Ísland. Meðalstyrkur í slíkum vötnum er 2 mg/lítrann, eða um helm- ingur af lægsta styrk í Mývatni. „Það er himinn og haf á milli þess styrks sem virðist takmarka framleiðslu kísilþörunga í hafinu og þess styrks sem lægstur mælist í Mý- vatni,“ segir í greinargerðinni. Engin ný gögn um áhrif á lífríki Mývatns Ljósmynd/Landsvirkjun Frá 1969 Landsvirkjun hefur rekið 3 MW gufuaflsvirkjun í Bjarnarflagi frá 1969. Sú virkjun hverfur við byggingu fyrsta áfanga nýrrar virkjunar. 24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sprengju-tilræði viðalmenning eru algeng víða. Fréttir berast reglubundið um mannskæðar árásir á saklausa, varnarlausa borgara. Afganist- an, Írak, Sýrland, Jemen og allmörg ríki Afríku fá stóran skammt af slíkum ódæðum. Fólk þar hefur ekki frekar til svo ills unnið en aðrir, en er varnarlausara en flestir. Þrátt fyrir viðbjóðslegan óhugnaðinn sem birtist í frétta- miðlunum er eins og að vaxandi doði hafi fylgt þessum fréttum. Menn hafi einfaldlega vanist þeim, svo fáránlega sem það hljómar. Svo berast fréttir frá Boston af sprengjutilræði sem særir og fellir fólk sem ekkert hefur til saka unnið. Og okkur er illa brugðið. Eru mælikvarðar okkar mis- jafnir eftir því hver á í hlut? Ekki endilega. Eðli glæpaverk- anna er hið sama. En menn finna öðruvísi til þegar nærri er höggvið. Það fundu allir Ís- lendingar við óhugnaðarverk ódæðismannsins sem lagði til ungmenna á friðsælli samkomu í Útey í Noregi. Tilræðið í Boston er smávægilegt miðað við sum önnur í manndrápum og örkumlun mælt. En það á sér stað við aðstæður þar sem menn hafa ástæðu til að ætla að engrar hættu væri von. Enda- punktur alþjóðlegs íþrótta- atburðar er valinn sem vett- vangur ódæðisins. Þar tóku tugir hlaupara frá Íslandi þátt. Eftir atburðina kennda við 11. september 2001 hefur ekkert ríki lagt eins mikið fé, tækni og mann- skap til forvirkra aðgerða gegn voða- verkum af þessu tagi og Banda- ríkin. Það er enginn vafi á að það hefur skilað miklum ár- angri, þótt þær hafi að sönnu þrengt að svigrúmi almennings og gert einstaklingum að þola áleitið eftirlit, sem gengur nærri friðhelgi þeirra. Þrátt fyrir slíka fyrirhyggju með öll- um sínum aukaverkunum var mönnum ljóst að fullkomið ör- yggi verður aldrei tryggt. Eitt dæmið í þeirri sönnun birtist í Boston í gær. Auðvitað liggja takmarkaðar upplýsingar fyrir þegar þetta er skrifað. Enginn hefur lýst hryðjuverkinu á hendur sér. En vafalítið er að viðbrögðin verða hörð. Ekkert verður til sparað og yfirvöld hætta ekki fyrr en þau hafa haft hendur í hári þeirra sem voru að verki. Og þótt þessi hryllingur sé, eins og fyrr sagði, ekki stór, mælt á hina alþjóðlegu mæli- stiku óhugnaðar, þá verði af- leiðingin af honum, auk hins persónulega skaða, að kostur fólks til áhyggjulausrar um- gengni verður enn þrengdur. Því finna flugfarþegar og ferðamenn óþyrmilega fyrir á hverjum degi og taka því án þess að mögla. Þau óþægindi og aukakostnaður er hið al- menna gjald fyrir hatur í heimi, sem kemur í þeirra hlut. Ann- arra hlutur er miklu dýrseldari en það. Atburðirnir í Boston komu yfirvöldum í opna skjöldu} Tilræðin í Boston Eins og benthefur verið á er spá Hagstof- unnar um vöxt efnahagslífsins á næstu árum afar dökk. Spáð er 1,9% hagvexti í ár, 2,7% á næsta ári og 2,9% árið 2015. Allt er þetta langt undir því sem nauðsynlegt er til að lyfta landinu upp úr öldu- dal atvinnuleysis og lífs- kjaraskerðingar. Ef viðunandi bati ætti að nást þyrftu þessar hlutfallstölur að tvöfaldast. Það sem blasir hins vegar við þegar spá Hagstofunnar er skoðuð er að hún er að öllum líkindum mikið ofmat á vænt- anlegri atvinnuvegafjárfest- ingu og þar með á hagvexti næstu ára. Hagstofan, líkt og aðrir sem spá fyrir um þróun efnahags- mála, hefur allt kjörtímabilið gert ráð fyrir að framundan væru meiri framkvæmdir í at- vinnulífinu en orðið hefur raunin. Þetta á ekki síst við um stórframkvæmdir, en enginn hefur séð fyrir hversu mjög stjórnvöldum gæti tekist að þvælast fyrir þeim eða annarri al- mennri uppbygg- ingu í ýmsum greinum atvinnulífsins. Vegna kosninganna kann að vera ástæða til að ætla að úr geti ræst og að spár um fjár- festingar geti loks orðið að veruleika. Ekki er ólíklegt að ríkisstjórn þar sem núverandi stjórnarflokkar eru ekki í að- stöðu til að þvælast fyrir at- vinnuuppbyggingu geti komið hlutum hratt í gang og tryggt viðunandi hagvöxt. En þetta gerist ekki af sjálfu sér og ekki að óbreyttu. Ríkisstjórn þar sem annar þessara flokka, þeir báðir eða systurflokkur geta haldið áfram að hindra fram- kvæmdir er ekki líkleg til að hleypa lífi í efnahag landsins og tryggja bætt lífskjör á kom- andi árum. Ekki einu sinni hóg- vær hagvaxtarspá Hagstofunnar gæti orðið að veruleika með núverandi stjórnarflokkum} Ekki að óbreyttu Í sögu hverrar þjóðar lifa mál sem eru öllum sem fleinn í holdi. Sárin gróa seint eða aldrei, jafnvel þótt persónur, leikendur og handritshöfundar hverfi af sviðinu. Allt fram undir þetta hefur til dæmis verið deilt um óeirðirnar á Aust- urvelli 30. mars 1949 þegar meirihluti Alþingis samþykkti að Íslendingar yrðu ein af stofn- þjóðum Atlantshafsbandalagsins. Annað veifið verður kalda stríðið, sem lauk fyrir margt löngu funheitt, s.s. þegar upplýst var fyrir nokkrum árum að lögregla hefði haft heimild til að hlera síma fólks sem stóð yst á vinstri væng stjórnmálanna og líklegt þótti til óspekta. Guð- mundar- og Geirfinnsmálin eru enn óuppgerð og verða áfram. Ný skýrsla um þau mál, þar sem fram kemur að sakborningar hafi verið beittir harðræði og illgjörnum meðulum, breyt- ir nánast engu þar um, svo margar eyður eru í málinu að niðurstaða mun aldrei fást. Nýjasta málið af þessum meiði er Búsáhaldabyltingin í janúar 2009. Þegar litið er til baka blasir við að hrun bank- anna – sem aftur leiddi af sér skipbrot þjóðarsálarinnar – myndi leiða af sér átök í samfélaginu. Hrun fjármálakerf- isins var mál af þeirri stærðargráðu að eldar hlutu að kvikna. Í hinu stóra samhengi þess máls skiptir litlu hvað nafngreind þingkona kunni að hafa sagt í símann eða í hvaða átt hún benti puttanum. Einfaldar staðreyndir liggja fyrir; fólkið barði potta og pönnur, kastaði skít í lög- regluna og bar Oslóarjólatréð á bálið. Í framhaldinu komst ný ríkisstjórn til valda. Ráðherrar hennar gáfu sig strax út fyrir að ætla í rústabjörgun og slökkvistarf – og vissulega hafa þeir sl. fjögur ár margt ágætt gert. En vandi þjóðarinnar nú liggur í umræðu dagsins. Fólk hefði þurft já- kvæðari skilaboð og að stjórnvöld sýndu raun- verulegan vilja til að lægja öldurnar. Hins veg- ar hefur verið róið í þveröfuga átt, svo sem með Landsdómsmálinu og klaufaskap í Ice- save-deilum, átökum við verkalýðshreyf- inguna, þjösnaskap í kvótamálum og svo mætti áfram telja. Andrúmsloftið hefur verið ósköp leiðinlegt og í engu samræmi við orð og vilja ráðamanna. „Okkur Íslendingum eru allir veg- ir færir ef við einsetjum okkur að horfa fram á veginn með jákvæðni að leiðarljósi,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir í ávarpi sínu við lok árs 2010. Um hvort hún hafi sjálf slegið þennan tón verður hver að dæma fyrir sig. Sjálfur tel ég svo ekki vera; satt að segja hefur Jóhanna verið konan sem kynt hefur ofn og eld átaka. Þeir stjórnmálaflokkar sem standa að núverandi rík- isstjórn njóta lítils fylgis skv. skoðanakönnunum. Ylsins af bálinu á Austurvelli nýtur ekki lengur og þeir sem með eldspýturnar voru binda nú trúss við aðra flokka. Sannast þá, að þeir stjórnmálamenn sem horfðu á búsáhaldabylt- inguna og brennu á Austurvelli með velþóknun skjálfa nú af kulda. Er það í samræmi við ljóðlínur Davíðs Stef- ánssonar: Fáir njóta eldanna /sem fyrstir kveikja þá. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Brennumenn skjálfa af kulda STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon „Það kemur okkur óneitanlega á óvart að það sé verið að álykta gegn virkjanakosti sem er nýbúið að samþykkja í rammaáætlun að eigi að vera í nýtingarflokki,“ segir Gústaf Adolf Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samorku. Hann segir það einnig vekja athygli að Umhverfisstofnun setji Mývatn á rauðan lista vegna mögulegra áhrifa virkj- unar, sem ekki er búið að reisa né taka ákvörðun um hvort verði reist, á lífríkið. Gústaf Adolf segir ýmislegt annað en áhrif af stærri Bjarn- arflagsvirkjun, talið upp í skýrslu Umhverfisstofnunar, sem valdi áhrif- um á lífríki Mývatns. „En Land- vernd sér ekki ástæðu til að álykta um neitt af þeim atrið- um,“ segir hann. Nýbúið að samþykkja RAMMAÁÆTLUN Gústaf Adolf Skúlason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.