Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Samningur af þessum toga er lík- legur til að skapa störf. Þess vegna standa þjóðir Evrópu í bið- röð eftir því að gera slíkan samn- ing. Það að Ísland hafi náð að gera það gefur okkur forskot. Það er undir okkur sjálfum komið hversu vel við getum spilað úr honum,“ segir Össur Skarphéðinsson utan- ríkisráðherra um fríversl- unarsamning við Kína sem íslensk- ir og kínverskir ráðamann undirrituðu í Beijing í gær. Ísland varð þar með fyrsta Evr- ópuríkið til þess að gera fríversl- unarsamning við stórveldið Kína. Í honum felst meðal annars að tollar á allar helstu útflutningsafurðir Ís- lendinga verða felldir niður á fimm til tíu árum. Þeir hafa hingað til verið á bilinu 10-12%. Byggja upp kínverskan markað Össur segir að með samningnum sé ljóst að þétt sé undir grunninn fyrir hefðbundna framleiðslugrein- ar Íslendinga eins og landbúnað og kjötframleiðslu. Þannig sé mikil eftirspurn eftir íslensku kjöti í Kína en ryðja hafi þurft burt tol- lamúrum sem nú hafi verið gert. Þá sé markaður fyrir íslenskar fiskafurðir með rísandi millistétt í Kína sem vilji borða heilnæman mat. Kína sé nú þegar ómissandi markaður fyrir ýmsar aukaafurðir í íslenskum sjávarútvegi eins og grásleppu og sæbjúgu. Fríversl- unarsamningurinn búi til 25 manna vinnustöð út á sæbjúgun. „Íslendingar hafa náð táfestu á kínverska markaðnum fyrir frosin þorskflök. Ég er sannfærður um að með því að ryðja burt tollum með þessum samningi getum við náð miklu betri árangri og byggt Kína upp í framtíðinni sem markað fyrir hefðbundnar fiskafurðir,“ segir utanríkisráðherra. Þar fyrir utan segir Össur að samningurinn geti skapað markað fyrir framleiðslu í greinum sem tengja fiskvinnslu og matvæla- vinnslu eins og afurðir Marels og háþróaða framleiðslu eins og gervifætur stoðtækjaframleiðand- ans Össurar. Tækifærin bíði ef menn kunna að nýta þau Ýmis tækifæri felast í samn- ingum að sögn utanríkisráðherra. Nefnir hann til dæmis hugsanlega framleiðslu á basalti sem nýtist í koltrefjar sem sé byggingarefni framtíðarinnar í bíla og flugvélar. „Fyrir efnahagshremmingarnar horfðu menn til Íslands til að framleiða slíkt. Það er ljóst að það verður mikill markaður fyrir þetta í Kína en það var 17% tollur á koltrefjar frá Íslandi. Nú er búið að afnema hann í einu vetfangi og þá þegar hefur vaknað áhugi aftur hjá Japönum og Bandaríkjamönn- um sem vildu fjárfesta í þessu. Það eru svona tækifæri sem bíða ef við kunnum að nota þau,“ segir Össur. Samningur um vinnumál Auk fríverslunarsamningsins voru fimm samningar á milli ís- lenskra og kínverskra fyrirtækja undirritaðir og gengið verður frá fimm öðrum síðar í vikunni. Össur segist hafa tekið það sérstaklega upp við kínverska starfsbræður sína að íslensk fyrirtæki njóti at- beina kínverskra við leit og vinnslu á olíu á Drekasvæðinu. Segir hann Kínverja hafa tekið þeirri ósk með afar jákvæðum hætti. Spurður um þá gagnrýni sem komið hefur fram á það að gerður sé fríverslunarsamningur við Kína þar sem ástand mannréttindamála sé ábótavant og kemur meðal ann- ars fram í máli forseta ASÍ hér til hliðar segist Össur deila vilja hans til að tryggja rétt launamanna. „Þess vegna erum við að fara eftir þeirri forskrift sem ASÍ lagði upp með sem er að gera samning samhliða fríverslunarsamningnum um vinnumál. Fyrsta skrefið að því var tekið í [gær] í yfirlýsingu for- sætisráðherranna þar sem þeir lýstu yfir að ríkin myndu í framtíð- inni hafa með sér sérstakt samráð um vinnumál. Við stefnum að því að hafa lokið gerð þessa samnings í haust áður heldur en Alþingi fær fríverslunarsamninginn til af- greiðslu. Þegar upp er staðið held ég að við Gylfi munum báðir ná markmiðum okkar,“ segir Össur. Ísland fái forskot á önnur lönd Undirritun Össur Skarphéðinsson og Gao Hucheng, viðskiptaráðherra Kína, undirrita fríverslunarsamninginn í Beijing. Fyrir aftan fyrir miðju standa þau Jóhanna Sigurðardóttir og Li Keqian, forsætisráðherra Kína.  Fyrsti fríverslunarsamningur Evrópuríkis við Kína  Tollar á helstu útflutningsvörur Íslendinga verða felldir niður í áföngum  Rætt um aðstoð kínverskra fyrirtækja við olíuleit á Drekasvæði Jón Garðar Guðmundsson, aðstoðar- forstjóri Icelandic Group, kveðst sjá margskonar tækifæri með fríverslun- arsamningi Íslands og Kína. „Icelandic er helsti útflytjandi sjáv- arafurða frá Íslandi til Kína. Við erum með vaxandi sölu á þessum markaði. Icelandic hefur á undanförnum tíu ár- um verið með umsvif í Kína. Þau hafa verið mikið tengd vinnslu á vörum í Kína fyrir markaði í Evrópu. Mín sýn er sú að Kína sé framtíðarmarkaður. Ætlun okkar er að rækta hann sem meiriháttar markað og reyna að kom- ast í þá stöðu að vaxa með markaðn- um. Við erum búin að koma okkur upp vinnslu í Qingdao. Það eru tæki- færi fólgin í því. Þar erum við í dag að vinna fisk sem er seldur í Bretlandi. Við viljum nota þá vinnslu til að vinna fisk í Kína,“ segir hann. Í fyrsta lagi muni niðurfelling á tollum styrkja samkeppnisstöðuna. „Tollarnir hafa verið 10-12% að með- altali á sjávarafurðum. Mér skilst að tollar á vissum vörum falli niður strax en lækki í áföngum á öðrum vörum. Útflutningur frá Íslandi til Kína er um 50 milljónir bandaríkjadala og er Icelandic með um helming af því,“ bætir Jón Garðar við. Sú athygli sem Ísland fái muni einnig styrkja markaðsstarfið. Í Kína selur Icelandic grálúðu, makríl, loðnu og karfa. Ætlunin sé að byggja upp markað fyrir þorsk, ýsu og aðrar tegundir á næstu árum. „Þau erlendu fyrirtæki sem ná bestum árangri í Kína eru þau sem bjóða upp á bestu fáanlegu vörurnar. Við ætlum að rækta kínverska mark- aðinn með því að bjóða upp á bestu fá- anlegu vörur og byggja upp dreifi- kerfi sem gerir okkur kleift að komast eins nálægt neytendum og kostur er.“ Starfsmenn Icelandic í Kína séu um 100 og þar af tveir Íslendingar. Um 80 Kínverjar starfi í vinnslu í Qingdao. Fríverslunarsamningurinn kalli á frekari fjölgun starfsmanna og opnun skrifstofa víðar en í Qingdao. „Það eru miklir og stórir markaðir í kringum Peking og Shanghai. Við ætlum okkur að sækja fram á þessum stöðum.“ Ætla að rækta markaðinn í Kína  Um 100 í vinnu fyrir Icelandic í Kína „Kína er svo stórt land að það er ekki hægt að gera allt frá einum stað.“ Jón Garðar Guðmundsson Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gagnrýnir að ekkert sé kveðið á um mannréttinda- mál í fríverslunarsamn- ingnum. Það eina sem liggi fyrir sé yfirlýsing forsætis- ráðherra Íslands og Kína um að halda áfram að ræða vinnumál. „Okkar gagnrýni felst í því að við teljum eðlilegt að sú samræða fari fram áður en skrifað er undir samning. Ég fæ ekki séð hvernig menn ætla að reisa skuldbindingu á Kínverja utan samningsins. Hvað lá á að ganga frá þess- ari undirskrift ef þeir hafna því að taka þessi mannrétt- indamál upp með skuldbind- andi hætti? Ætla þá stjórn- völd að leggja til að samningurinn verði ekki staðfestur,“ spyr Gylfi. Hann telur að vitlaust hafi verið haldið á málum og gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa það ekki sem hluta af samningnum að það verði tryggð meiri samræða um mannréttindamál. „Ef að stjórnvöld vilja ná meiru fram þá verða þau auðvitað að vinna að því en ekki undirrita samning sem ekki er búið að semja um. Það er einfaldlega mótsögn. Við erum ekki sátt fyrr en við sjáum niðurstöður. Það dugar okkur ekki að íslensk stjórnvöld hafi þetta einhliða að markmiði,“ segir Gylfi. Samræðan fari fram fyrir undirritun FORSETI ASÍ ÓSÁTTUR GÆÐI - ENDING - ÁNÆGJA WWW.WEBER.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.