Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Það er mikið gleðiefni að í árfagnar Íslenski dansflokk-urinn fertugasta starfsárisínu. Afmælisárið hefst
með sýningunni Walking Mad eftir
sænska danshöfundinn Johan Inger
og verkinu Ótta eftir Ásgeir Helga
Magnússon, Hjördísi Lilju Örnólfs-
dóttur og Unni Elísabeti Gunn-
arsdóttur, sem öll eru dansarar í Ís-
lenska dansflokknum.
Ótta var frumsýnt á nýja sviði
Borgarleikhússins hinn 22. nóv-
ember 2012 en hefur síðan tekið
nokkrum breytingum og verið að-
lagað nýju sviði. Verkið er mjög
sjónrænt, það fjallar um ólíkar at-
hafnir og sambönd fólks milli klukk-
an 3 og 6 að næturlagi. Það var virki-
lega gaman að sjá verkið á þessu
stóra sviði og nú er sviðsmyndin sem
byggist að miklu leyti á notkun lýs-
ingar, enn sterkari en fyrr. Verkið
hefði þó jafnvel þurft örlítið lengri
tíma til úrvinnslu þar sem enn var að
finna lausa enda. Til að mynda var
enn að finna hnökra á staðsetningum
dansaranna með tilliti til lýsingar í
hægari köflum verksins. Nýju part-
arnir voru vel heppnaðir og meðal
þeirra áhrifamestu í verkinu en þeir
veiktu þó heildarmynd þess þar sem
of margar stefnur og stílar flæktust
fyrir. Skemmtileg persónusköpun
týndist í hægari köflunum og verkið
varð nokkuð sundurleitt fyrir vikið.
Þrátt fyrir það var flutningurinn í
senn kraftmikill og ljúfur og sýnir þá
miklu breidd sem dansarar flokksins
búa yfir.
Walking Mad var frumsýnt í Lu-
cent Danstheater Den Haag í Hol-
landi árið 2001 og hefur síðan verið
flutt af nokkrum fjölda dansflokka
víða um heim. Um er að ræða gam-
ansamt verk sem fléttar saman húm-
or, galsa og geðveiki. Í verkinu tak-
ast dansararnir á við margbreytilega
sviðsmyndina, færanlegan vegg sem
skipar ákveðna þungamiðju í verk-
inu. Walking Mad krefst mikils af
dönsurunum, það reynir á tækni
dansaranna um leið og þeir þurfa að
hafa tök á því að túlka efni verksins
og persónur og tjá þær miklu tilfinn-
ingar sem tekist er á við í verkinu.
Dönsurum flokksins tekst vel til með
vinnslu verksins og þá má sér-
staklega nefna vel útfært og sam-
taka hópatriði sem uppskar mikið
lófatak áhorfenda. Eftir það varð
ákveðið rof á annars góðu flæði með
nýjum kafla þar sem vantaði tölu-
vert upp á samhengið. Um miðjan
seinni kafla verksins náði verkið aft-
ur hæðum sínum í átakamiklum og
fallegum dúett Hannesar Þórs Eg-
ilssonar og Aðalheiðar Halldórs-
dóttur.
Verkin eru nokkuð ólík í eðli sínu
en eiga það sameiginlegt að vera
mjög kraftmikil, þau reyna á tækni-
lega færni dansaranna auk þess sem
tjáning skiptir meginmáli. Bæði verk
kvöldsins eru þannig í eðli sínu að
sýningin ætti að ná til breiðs áhorf-
endahóps þar sem hún er aðgengileg
og sjónræni þátturinn vegur þungt.
Hressilegt fertugsafmæli Íd
Morgunblaðið/Golli
Ólík Sýningin „er aðgengileg og sjónræni þátturinn vegur þungt,“ skrifar rýnir. Úr verkinu Walking mad.
Walking Mad og Ótta bbbmn
Ótta eftir Ásgeir Helga Magnússon,
Hjördísi Lilju Örnólfsdóttur og Unni El-
ísabetu Gunnarsdóttur, í samstarfi við
dansara. Dansarar: Ásgeir Helgi Magn-
ússon, Brian Gerke, Cameron Corbett,
Ellen Margrét Bæhrenz, Hjördís Lilja
Örnólfsdóttir, Steve Lorenz og Unnur
Elísabet Gunnarsdóttir.
Walking Mad eftir Johan Inger. Aðstoð-
armenn danshöfundar: Hlín Diego
Hjálmarsdóttir og Carl Inger. Tónlist:
Maurice Ravel og Arvo Pärt. Ljósahönn-
un: Erik Berglund og Peter Lundin.
Sviðs og búningahönnun: Johann Inger.
Umsjón búninga: Elín Edda Árnadóttir
og Guðlaug Elsa Ásgeirsdóttir. Æf-
ingastjóri: Katrín Ingvadóttir. Dansarar:
Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi
Magnússon, Brian Gerke, Cameron Cor-
bett, Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja
Örnólfsdóttir, (Ellen Margrét Bæhrenz),
Karl Friðrik Hjaltason, Steve Lorenz og
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.
Stóra sviðið Borgarleikhúsinu, 12. apríl
2013.
MARGRÉT
ÁSKELSDÓTTIR
DANS
Breski hljómsveitarstjórinn sir Col-
in Davis er látinn, 85 ára að aldri.
Nafn Davis er nátengt London
Symphony Orchestra, enda hefur
enginn verið jafn lengi aðalstjórn-
andi þessarar helstu sinfón-
íuhljómsveitar Breta.
Davis stjórnaði hljómsveitinni
fyrst árið 1959 en 1995 varð hann
aðalstjórnandi hennar og gegndi
þeirri stöðu í meira en áratug, en
þá varð hann formaður stjórnar
hennar.
Um tíma stjórnaði Davis einng
hljómsveit breska ríkisútvarpsins
aui þess að geta sér orð fyrir árang-
ursríka samvinnu við Boston Symp-
hony Orchestra, New York Phil-
harmonic og Sinfóníuhljómsveit
bæverska útvarpsins. Tónlistarlega
er Davis hvað þekktastur fyrir tök
sín á verkum eftir Mozart, Sibelius
og Berlioz.
Hljómsveitarstjórinn Colin Davis látinn
Virtur Breski hljómsveitarstjórinn sir
Colin Davis hampaði verkum Berlioz.
Hörku
spennumynd
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Páskamyndin 2013
Stórkostleg
ævintýramynd
fyrir alla
fjölskylduna ÍSL TAL
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í USA!
EIN FLOTTASTA
SPENNUMYND ÁRSINS!
Stór og yfirdrifinn
teiknimyndahasar af betri gerðinni.
T.V. - Bíóvefurinn
Þriðjudagstilboð Þriðju
dagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
- T.K.
kvikmyndir.is
VJV
Svarthöfði
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
L
12
12
OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30
G.I. JOE 2: RETALIATION 3D Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
THE CROODS 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
I GIVE IT A YEAR Sýnd kl. 8
SNITCH Sýnd kl. 10:10
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
- V.J.V., SVARTHÖFÐI
- T.K., KVIKMYNDIR.IS
STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI!
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
OBLIVION KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
OBLIVION LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
G.I JOE RETALIATION 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
ADMISSION KL. 8 - 10.20 L
I GIVE IT AYEAR KL. 10.30 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
SAFE HAVEN KL. 8 14
- H.S.S., MBL
OBLIVION KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
GI JOE KL. 8 - 10.15 16 ADMISSION KL. 5.45 L
OBLIVION KL. 6 - 9 12
KAPRINGEN KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 5.45 L
SAFE HAVEN KL. 8 - 10.30 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 8 - 10.30 12
ADMISSION KL. 17.30 L