Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐANKosningar 2013 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 Vegna mikils fjölda greina í aðdraganda alþingiskosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Hámarkslengd greina er 3.000 slög með bilum. Er þetta gert svo efnið verði að- gengilegra og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Alþingiskosningar Þegar alþingiskosn- ingar eru framundan kemst maður ekki hjá því í aðdraganda þeirra að velta fyrir sér hinum ýmsu framboðum því svo sannarlega er af nógu að taka nú, sem aldrei fyrr. Ég hef aldrei skilið það fólk, sem stendur að framboðum þessara smá- flokka, sem frá fyrstu hendi og skoðanakannana sýna að ekki er hinn minnsti möguleiki á að koma manni á þing. Er þarna um athyglissýki að ræða eða hvað, svo ekki sé talað um alla þá peninga, sem þetta brambolt kostar? Öll þau atkvæði, sem falla til þessara smáframboða, eru áhrifalaus og detta „dauð niður“ eins og sagt er. Hvað er fólk að hugsa, sem kastar atkvæði sínu svo gjörsamlega á glæ og hefur engin áhrif? Það er illskiljanlegt. Einnig hef ég tekið eftir að stefnu- skrár nokkurra smáframboðanna eru hreint eins og þær hafi verið kóperaðar upp úr stefnuskrá Framsóknarflokks- ins, sem um þessar mundir er í mikilli uppsveiflu og mælist stærsti stjórn- málaflokkur landsins svo það er nátt- úrlega ekki leiðum að líkjast. Réttast væri auðvitað fyrir þessi framboð að ganga einfaldlega til liðs við Framsóknarflokkinn og þar með taka þátt í þeirri öflugu sókn, sem hann er í undir styrkri stjórn formannsins, Sig- mundar Davíðs Gunnlaugs- sonar, og verða sigurvegarar að verðleikum. Ég kemst ekki hjá að minna fólk á að Sigmundur Davíð var eini stjórnmálafor- inginn, sem stóð einarður á móti því að samið yrði um Icesave, og þar með var þjóð- inni bjargað frá milljarða skuldbindingum þegar aðrir stjórnmálamenn vildu semja og leggja þar með þungar fjárskuldbindingar á þjóðina svo hún hefði sligast undan um ókomin ár. Nóg er nú samt. Flugvallarmálið hefur enn á ný kom- ist í umræðuna og vil ég í því sambandi minna landsbyggðarfólk og auðvitað Reykvíkinga líka á að Framsókn- arflokkurinn ályktaði á flokksþingi sínu í vetur, einn flokka, svohljóðandi skýrt og skorinort: „Flugvöllurinn í Reykja- vík verði áfram í Vatnsmýrinni, sem hornsteinn fyrir samgöngur lands- manna vegna almenningsþarfa.“ Einnig að „tryggt verði að aðgangur að flugsamgöngum verði eins og best verður á kosið á landsbyggðinni“. Og líka að „tryggð verði tilvist mið- stöðvar innanlandsflugs í næsta ná- grenni við helstu heilbrigðis-, mennta- og stjórnsýslustofnanir landsins“. Ný skoðanakönun sýnir að 80-90% landsmanna allra vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. Framsóknarflokkurinn er flokkur, sem þorir. Þetta er illskiljanlegt Hjörleifur Hallgríms Höfundur er framkvæmdastjóri. Eftir Hjörleif Hallgríms Stjórnendur verða að forgangsraða verkefnum svo tími þeirra nýtist sem best. Til þess eru verkefni gjarnan flokkuð í mik- ilvæg verkefni, sem eru til lengri tíma og stefnumót- andi, og áríðandi verkefni, en þau krefjast að jafnaði skjótra úrlausna til að bregðast við brýnum og oft óvæntum uppákomum. Til þess að endalaus tími fari ekki í að slökkva elda og taka erfiðar ákvarðanir á hlaupum verða stjórnendur að helga stefnumótandi ákvörðunum sem mest- an tíma því slíkt fækkar til muna uppá- komum sem krefjast áríðandi skamm- tímalausna. Fráfarandi ríkisstjórn vann lítið eftir þessu kerfi. Hún sóaði nánast alfarið tíma sínum í að slökkva elda. Enda- lausar deilur í þingflokkum og milli þingflokka, afsagnir ráðherra, plástrar á gjaldþrota Íbúðalánasjóð og mýmörg önnur dæmi eru til marks um þetta. Hvert fór skjaldborgin? Kjörtímabilið hefur liðið án nothæfr- ar stefnumörkunar varðandi lausnir fyrir heimilin að því undanskildu að vinstri þingmönnum tókst að markaðs- setja innantóma slagorðið: Skjaldborg um heimilin. Sökum úrræðaleysis rík- isstjórnarinnar í skuldamálum heim- ilanna virðast margir kjósendur ætla að grípa á lofti loforð framsóknarmanna um „lausn“ þess vandamáls. Þegar kemur að kosningum verða einmitt oft mestu hitamálin þau mál sem eru mest áríðandi hverju sinni. Sumir stjórnmálaflokkar meta meira að segja hvað kjósendum finnst áríðandi áður en þeir leggja fram sína sýn til að tryggja sér atkvæði. Það er þannig inn- byggt í kosningafyrirkomulagið að ræða skammtímalausnir fremur en langtímaverkefni sem hafa áhrif til langs tíma. Mikilvægu málin víkja fyrir þeim áríðandi. Skuldir hverra? Kosningabaráttan nú snýst þannig nær eingöngu um einn afmarkaðan, en vissulega raunverulegan, vanda. Kosn- ingaloforðin sem eiga að leysa vandann bera þess merki að vera nánast mótuð á hlaupum milli fjölmiðlaviðtala. Þannig er stærra samhengi málsins eða langtímaafleiðingar lítt ræddar. Um- ræðan um jafnræði milli misskuldsettra heimila fer varla fram. Eng- inn þorir að tala um fjölskyld- una sem býr enn í litlu gömlu íbúðinni. Þessi fjölskylda skuldar minna en gengur og gerist en er samt ætlað að borga brúsann með sköttum framtíðarinnar. Enginn er talsmaður þeirra sem ákváðu að leigja sér húsnæði síðustu árin í stað þess að skuldsetja sig fyrir allt of dýrum fast- eignum. Fáir reynast tals- menn lausna sem henta börn- unum okkar best sem felast í niðurgreiðslu skulda hjá illa stæðum ríkissjóði. Nauðsynleg breyting Til þess að ríkisstjórnir og stjórn- málaflokkar geti horft lengra fram í tím- ann og unnið með stefnumarkandi ákvarðanir þarf að ráðast að kjarna vandans. Hann er sá að þingið verði fært um að ná sem mestri sátt um stór- ar, stefnumarkandi ákvarðanir. Eins og tekið er skýrt fram í skýrslu McKinseys um framtíð Íslands verður framtíðaruppbygging efnhagskerfis ómarkviss með öllu nema þingflokkar geti sameinast um grundvallarsjón- armið. Það er okkur sem þjóð nauðsyn- legt að þingið læri af nágrönnum okkar í þessum efnum en danskir stjórn- málaflokkar hafa t.a.m. í yfir tuttugu ár samið um stefnumótandi ákvarðanir áð- ur en ný lagafrumvörp eru lögð fram. Þannig eru langtímaákvarðanir best teknar. Að sjálfsögðu hafa stjórnmálaflokkar ólíkar áherslur á sama hátt og lands- menn hafa mismunandi skoðanir á hlut- unum. Alþingi hefur hins vegar nánast alfarið misst traust samfélagins einmitt af því að ekki eru gerðar neinar tilraunir til þess að ræða hvort sátt geti náðst í stórum málum. Vinnubrögðin felast, ólíkt því sem þekkist í Danmörku, frem- ur í að nokkuð ýtarlega unnin frumvörp eru lögð fram sem skapa strax ágrein- ing um heildarmyndina. Ef markmiðin eru sambærileg hjá flokkum á þingi, eins og að hjálpa verði heimilum í miklum skuldavanda, þá er vel gerlegt að ræða hugmyndir allra stjórnmálaafla og vinna sameiginlega að settu marki. Öruggt er að slík vinnu- brögð skili okkur miklu betri stefnu- mörkun og ákvörðunum til lengri tíma og fækki verulega allt of tíðum óvænt- um uppákomum, skammtímalausnum og slökkvistörfum í íslensku samfélagi. Að slökkva elda Eftir Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi. Í frægu sjónvarpsviðtali sem tekið var við bítilinn John Lennon á sínum tíma lét hann þau orð falla að allir þyrftu að trúa á eitthvað: „… sumir trúa á Woolworth’s eða jafnvel fjandans Marks & Spencer“, sagði Lennon sem taldi bresku bítlana jafnvel vinsælli en sjálfan Christus. Allt varð hringlandi vitlaust. Nú er öll sannfæring flogin út í veður og vind. Hér er ekki ætlunin að ræða trúmál eða pólitík. Frekar um sannfæringu þeirra sem hlaupa sem fætur toga undan persónu- legum og pólitískum ofsóknum sem dreift er kerfisbundið á hendur forystumönnum í íslenskum stjórnmálum. Með þeim afleiðingum að alger pólitísk- ur glundroði og upplausn ríkir í landinu, svona eins og þegar uppkastið barst til landsins 1907. Þar seinkaði fullveldinu um 10 ár vegna öfundar og fláttskapar minni háttar manna í íslenskri pólitík. Einn af heiðarlegustu stjórnmálamönnum á Íslandi síðustu aldar er Matthías Bjarnason. Vestfirðingur og þingskörungur. Hann kallaði hlaupadýrin í íslenskum stjórnmálum gróðapunga. Fólk sem hleypur milli stjórnmálafylkinga eftir því hvar mest og best er að éta. Refaskytta í Borgarfirðinum í þá gömlu góðu daga sagði mér einu sinni að erfiðast væri að eiga við hlaupadýrin. En ekki dugir að skamma saklaust fólk upp úr skónum, sérstaklega ef það hefur verið afvegaleitt af samvískulausum sölumönnum glundroðans. Þeir haga sér eins og skáldið á Borg sem sáldraði silfrinu á völl- inn til þess að hleypa fútti í umræður. Svo grófu þeir upp hauskúpuna af karlinum í kirkjugarðinum á Mos- felli. Lömdu í með hamri og sögðu: „Jahá, það er eng- in lygi með hann Egil, það var þykkur á honum haus- inn.“ Hver er annars pólitísk afstaða fólks sem hleypur milli stjórnmálaflokka eftir matseðlinum? Ætlar það loks að bera hönd fyrir höfuð sér þegar útsendarar ríkisins eru komnir heim til þess að sækja matinn úr ísskápnum til að vinna með honum góðverk á öðrum? Hvar eru mörkin? Má hundur nágrannans drita í garð þess þriðja en ekki hjá þér? Hennar hátign Þingvallardrotting hefur nú bannað mönnum að veiða í sjálfri þjóðargerseminni á kvöldin og næturnar, einmitt þegar silungurinn vakir eftir flugunni. Ætlið þið að láta svona pólitískt gertæki yfir ykkur ganga? Lætin í hyskinu sem nú stjórnar Íslandi bárust alla leið upp í Garðastræti eftir „Þjóðviljabyltinguna“ á Austurvelli 30. mars 1949. Forsætisráðherrann stóð á tröppunum hugrakkur, hreinn og beinn eins og hann var alla tíð. Tveir kónar stukku upp á bakið á honum. Enginn hreyfði sig til varnar fyrr en kona sem stóð á svölum í næsta húsi hrópaði: „Ætlið þið að láta þessa andskota drepa hann Ólaf?“ Kryddsíldin á Stöð tvö á nýársdag árið 2000 og snyrtilegur fréttamaður spyr: „Hver var nú merkilegasti stjórnmálamaður á Íslandi á 20. öld? Enginn, ekki einn ein- asti þeirra sem þar snæddu „fleskesteg“ mundi eftir manninum sem aldrei brást; Ólafi Thors. En kannski þarf þetta ekki að koma á óvart fyrst menn hlaupa á harða spretti þangað sem reykur sést úr háfi og ilmar af feitu keti. Hlaupadýr allra flokka gætu gert vel í því að stofna einn flokkinn enn og haldið sig þar. Ekki er á þau treystandi á ögurstundu. Það var það sem biskupinn fann á eigin skinni í kirkjugarðinum á Sauðafelli haustið 1550, er Ombudsmanden Halldórsson braut úr honum tennurnar með hesjunni. Áletrunin á bauta- steini hans í Skálholti segir allt sem segja þarf. Ís- lendingar hafa hingað til séð fyrir sínum þjóðhetjum sjálfir. En það er samt svo að til er fólk í þessu landi sem heldur hópinn fyrir hugsjónir og samkennd, velvilja og trúmennsku hvað til annars. Þeir sem hugsa svona vilja ekki láta bjána eða afbrotamenn skrifa fyrir sig lögin. Goðinn á Ljósavatni er löngu genginn og sömu- leiðis þingskörungur frá öldinni sem leið, er sagði að það væri athugandi við úrlausn erfiðra mála að láta þá ráða sem betur vita. Það er nú ekki í tísku. Undir nú- verandi kansellí er hið pólitíska líf orðið einn sam- felldur listrænn viðburður. Þegar afleiðingar tækifærismennskunnar eru ljósar eftir næstu kosningar geta menn farið að telja aurana sína og undirbúa afhendingu þeirra til loforðsgjaf- anna. Það er grundvallarregla í íslenskum rétti að lof- orð er gilt þá er það hefur borist til vitundar loforðs- móttakandans. Upp með veskið og veðbókarvottorðið! „Stand and deliver!“ hrópuðu ræningjar á breskum þjóðvegum á 18. öld. Skrattinn sá þar um sína eins og annarsstaðar enda hleypur hann hraðar en enskir eða íslenskir vagnhestar. Við sem trúum á einstaklingsfrelsi, gildi laganna, sanngirni, réttlæti og vináttu sem byggist á sam- stæðum lífsskoðunum ætlum að halda hópinn. Við lút- um ekki pápísku foringjaræði. Pólitísk tilvist okkar snýst ekki um það. Forystumenn okkar fara fremstir í hópi jafningja sem trúa á lýðræði fremur en gerræði. Látum það ráða. Glundroði og gerræði Eftir Guðmund Kjartansson Guðmundur Kjartansson Höfundur er hagfræðingur og skipar 12. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.