Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 38

Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is SAGA nefnist ný sýning brúðuleikhópsins Wakka Wakka Productions sem frumsýnd var 8. mars sl. í New York. Í henni segir af ís- lenskri fjölskyldu sem lendir í miklum hremm- ingum í kjölfar efnahagshrunsins sem varð hér á landi síðla árs 2008. Verkið var heims- frumsýnt í Noregi 8. desember í fyrra og hélt hópurinn síðan til New York og vann sýn- inguna áfram, fram að frumsýningu þar í borg. SAGA hefur nú verið sýnt sex sinnum í viku í sex vikur í Baruch Performing Arts Center á Manhattan við góðar undirtektir. Leikkonan Andrea Ösp Karlsdóttir starfar með brúðuleikhópnum og er eini Íslending- urinn í honum en aðrir eru frá Bandaríkjunum, Noregi og Írlandi. Andrea segir sýninguna bráðfyndna með alvarlegum undirtóni og að hún hafi vakið þónokkra athygli vestra, m.a. verið fjallað um hana í New York Times og The Village Voice. Fleiri Íslendingar hafa þó starf- að með hópnum, m.a. hljóðmaðurinn Þórður Gunnar Þorvaldsson og leikkonan Charlotte Böving sem veitti hópnum aðstoð við gerð verksins með því að taka viðtöl við Íslendinga sem höfðu sögu að segja frá hruninu og lentu illa í því. SAGA fjallar um Gunnar Oddmundsson, eiginkonu hans og son þeirra. Fjölskyldan opn- ar ferðagistingu úti á landi með margs konar þjónustu við ferðamenn og Gunnar tekur fjölda lána til að koma rekstrinum í gang. Allt fer hins vegar á versta veg eftir að Geir Haarde biður Guð að blessa Ísland, að sögn Andreu. Eiginkona Gunnars fær starf í Noregi og flytur þangað með syni þeirra en Gunnar neitar að gefast upp og heldur kyrru fyrir á Ís- landi. „Sagan fer fram og aftur í tíma og sýnir meðal annars kynni Gunnars og Helgu á sveitaballi og bónorð Gunnars á fæðingardeild- inni. Þegar Helga fer svo fram á skilnað í sím- tali frá Noregi selur Gunnar það síðasta sem hann á eftir, hestana sína og kaupir sér miða út til að bjarga hjónabandinu, en þann dag gýs Eyjafjallajökull,“ segir Andrea. Löng vinna að baki „Ég er búin að vinna með Wakka Wakka frá því í júní á síðasta ári. Ég fór í prufu fyrir verk- ið í New York í júní og svo endurkomuprufu þegar þau komu til Íslands stuttu síðar,“ svar- ar Andrea, spurð að því hvenær hún hafi byrj- að að vinna með hópnum. Hún hafi byrjað á rannsóknarvinnu fyrir SAGA hér á landi, lagst yfir blaðagreinar í Þjóðarbókhlöðunni, valið úr þeim og þýtt fyrir hópinn. „Í október fórum við svo í átta vikna ferð til Stamsund í Noregi til að þróa verkið. Þar vorum við sex saman í frá- bærri aðstöðu í leikhúsi í pínulitlum bæ á eyju í Norður-Noregi og unnum nánast allan sólar- hringinn. Við komum svo til New York í byrjun janúar og héldum áfram að vinna verkið sem var svo frumsýnt í byrjun mars hérna úti.“ Andrea fer með öll kvenhlutverk verksins og þá m.a. hlutverk eiginkonu Gunnars, Helgu. „Það eru sex leikarar í sýningunni og við erum öll á sviðinu meira og minna. Það eru oft tveir til þrír leikarar á hverri brúðu þannig að ef ég er ekki að leika hlutverkin sem ég lána radd- irnar mínar þá er ég á fótunum á annarri brúðu eða eitthvað slíkt. Svona leiksýning er mjög mikil samvinna milli leikara og erum við öll sveitt og sæl að henni lokinni,“ segir Andrea og hlær. Leikararnir hafi allir tekið þátt í upp- setningu sýningarinnar og rannsóknarvinn- unni en höfundar verksins og leikstjórar séu Gwendolyn Warnock og Kirjan Waage. Víkingar og útrásarvíkingar Andrea segir upphaflega hafa staðið til að verkið fjallaði um Íslendingasögurnar. Hug- myndin hafi hins vegar þróast út í að blanda saman víkingunum úr víkingasögunum og sk. útrásarvíkingum. „Á endanum varð til þessi sýning sem gerist að meirihluta í nútímanum en hefur enn tengingar í víkinga og Íslend- ingasögurnar, þar er talað um valkyrjur, hefnd og fleira. Reiði Gunnars kemur fram í víkingi sem stækkar og stækkar eftir sem lengra líður á söguna,“ segir Andrea. Áhorfendur þurfi ekki að vera fróðir um Ísland eða Íslend- ingasögurnar til að njóta verksins. „Það er far- ið svakalega vel með efnið og margir Íslend- ingar sem hafa séð sýninguna hafa komið til mín með frábæra hluti að segja um hana, ánægðir með hversu íslensk hún er og skemmtileg.“ Andrea segir sýningunni hafa verið vel tekið vestra, hún hafi m.a. hlotið jákvæða dóma í The New York Times og The Village Voice. Og það eru ferðalög framundan hjá Wakka Wakka, m.a. átta vikna ferð um Noreg með Riksteateret. „Við erum að vonast til að kom- ast til Íslands og erum eins og er í viðræðum varðandi það. Það væri mjög gaman að sýna á Íslandi,“ segir Andrea að lokum. Íslensk fjölskylda í hremmingum  Efnahagshrunið á Íslandi er efniviður nýjustu sýningar brúðuleikhópsins Wakka Wakka Productions  Íslensk leikkona, Andrea Ösp Karlsdóttir, fer með öll kvenhlutverk í leikverkinu SAGA Ljósmynd/Wakka Wakka Fjölmenni Í aftari röð eru frá vinstri: Brendan Yi-Fu Tay, Conan Magee, Elizabeth Hara, Fer- gus J. Walsh og Þórður Gunnar Þorvaldsson. Í fremri röð eru frá vinstri: Andrew Manjuck, Andrea Ösp Karlsdóttir, Gwendolyn Warnock og Kirjan Waage. Ljósmynd/John Stenersen Lánaólán Sýningin fjallar um fjölskyldu sem opnar ferðagistingu úti á landi en við- skiptalánin stökkbreytast í hruninu. www.wakkawakka.org Þúsundir gesta söfnuðust saman í Amsterdam á laugardaginn var, þegar helsta listasafn hollensku þjóðarinnar, Rijksmuseum, var opnað að nýju eftir viðamiklar endurbætur sem hafa tekið heilan áratug. Beatrix drottning lýsti safnið opið að nýju en það var eitt hennar síðasta embættisverk, en hún stígur senn af veldisstóli. Rijksmuseum er eitt kunnasta listasafn heimsins og hýsir lyk- ilverk gömlu niðurlensku meist- aranna. Til að mynda eru hvergi fleiri verk eftir Rembrandt á ein- um stað – helsta djásn safnsins er stærsta og frægasta málverk hans, „Næturvaktin“, og þá má einnig finna í safninu „Mjólk- urstúlku“ Vermeers og „Káta drykkjumanninn“ eftir Frans Hals. Endurbæturnar á safninu kost- uðu um 60 milljarða króna og meðan á þeim stóð fór hluti safn- gripanna á flakk í farandsýn- ingum. Safnið mun nú verða opið alla daga ársins og eru öll fræg- ustu verkin kom þar upp á veggi, innan um húsgögn og hverskyns muni frá samtíma listamanna. Sýningarstjórarnir hafa að auki innleitt nýjungar, til að mynda gefur nú einnig að líta merka fatahönnun í safninu og orrustu- flugvél frá árinu 1917 er nú með- al safngripanna. Listaverkin aftur í Rijksmuseum  Hið fræga lista- safn opnað eftir 10 ára endurbætur AFP Hátíð Flugeldar lýstu Rijksmuseum upp þegar safnið var opnað. Sölustaðir: Apótek Hafnarfjarðar og Garðabæjar, Árbæjarapótek, Austurbæjarapótek, Femin.is, Garðsapótek, Heimkaup.is, Lyfja, Lyfjaval, Rimaapótek og Urðarapótek Þú færð silkimjúka fætur eftir aðeins eitt skipti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.