Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2013, Side 15
og stofnanir komnir. Við höfum
staðið á eigin fótum.“
Engin listamannalaun
Hvernig gengur þér að fá að
sýna í stóru listasöfnunum hér
heima?
„Íslensku listasöfnin hafa flest
breyst í það að vera eins og lítið
„Tate Modern“ í London, eins
hlálega og það hljómar. Menn
sækja ekki um að komast að til
að sýna eins og í gamla daga,
heldur sitja og bíða eftir að for-
svarsmenn listasafnanna hringi og
bjóði upp í dans. Ég er ekki oft
beðinn um að sýna, en hef verið
það heppinn að komast að í
Hafnarborg og þar er gaman að
sýna og starfsfólkið frábært. Og
Hafnarfjörður auðvitað minn
heimabær sem mér þykir mjög
vænt um. Nú er kominn tími
fyrir stóra sýningu en mér finnst
alltaf erfiðara og erfiðara að sýna
eftir því sem ég eldist. Viðhorfið
frá listasöfnunum er líka svo
skrýtið. Þegar ég bjó í Dan-
mörku var allt öðruvísi andrúms-
loft. Þar var hringt frá galleríum
sem kepptust um að bjóða mér
að koma til sín. En þar var
heldur engin pólitík eða klíku-
skapur að þvælast fyrir mönnum.
Ég var óskrifað blað og þótti
spennandi.
En ég tek svona hluti ekki
lengur inn á mig. Hér áður fyrr,
þegar ég var búinn að fá tíu
sinnum neitun hjá úthlut-
unarnefnd listamannalauna, var
ég farinn að hugsa með mér:
Hvað þarf ég að gera til að fá
úthlutun? Ég held sýningar þar
sem verkin seljast og fæ frábæra
dóma og frábæra aðsókn, en ég
fæ ekki listamannalaun. Viðhorfið
virtist vera að ég þyrfti ekki
listamannalaun af því að verk
mín seldust. Ég ákvað að hætta
að svekkja mig á þessu og hef
ekki sótt um listamannalaun síð-
ustu árin. Heldur reynt að
standa á eigin fótum.
Ég er að sýna við hlið málara
sem eru áskrifendur að lista-
mannalaunum ár eftir ár og
þurfa ekki að verðleggja myndir
sínar jafn hátt og ég, vegna þess
að þeir fá sín föstu mánaðarlaun
annars staðar frá. Eða jafnvel
setja upp óeðlilega háa prísa á
verkin, enda þurfa þeir ekkert að
selja. Þetta skekkir óneitanlega
listaverkamarkaðinn. Og mín við-
horf til þeirra.“
„Mér finnst ég aldrei vera að mála
sömu myndina. Sumar mynda minna
eru mjög grófar og hráar en aðrar eru
raunsæislegar segir Pétur Gautur.“
Morgunblaðið/Eggert
* „Myndlistarheimurinn er orma-gryfja. Þar er mikið baknag ogöfund og fólk raðar sér í klíkur. Ég hef
aldrei verið í klíkum.“
23.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Frískandi húðvörur úr
suðrænum sítrusávöxtum
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaíslandÚtsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir
Hin dásamlega sítruslína frá Weleda inniheldur afurðir úr lífrænt ræktuðum sítrónum frá Salamita
Cooperative á Sikiley. Hún dekrar við og frískar húðina - í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is