Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2013, Síða 39
23.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
L
íf konunnar getur verið flókið og oft geta komið upp klikk-
uðustu aðstæður þegar síst er von á og þá er gott að vera
alltaf við öllu búin.
Í vikunni frétti ég af einni vandaðri konu sem hafði ákveð-
ið að halda sómasamlega upp á 17. júní – eins og konur gera. Konan
vaknaði snemma morguns hinn 17 þrátt fyrir að hafa haldið aðeins
of vel upp á fæðingardag Jóns Sigurðssonar hinn 16. Konan reif sig
á fætur snemma, fór út að hlaupa, bar á sig bólgueyðandi andlits-
maska og drakk nokkra græna drykki
áður en hún smellti sér í spariguggu-
gallann.
Í sínu fínasta pússi mætti hún með
börnin í miðbæ Reykjavíkur en hún
gleymdi alveg að taka það með í reikn-
inginn að börn vilja helst hanga enda-
laust í hoppköstulum og tívolítækjum
og það getur tekið á mæður sem eru
ekki nógu heilsuhraustar.
Þegar börnin heimtuðu að fara í tæki
sem snérist í allt of marga hringi, en
virtist þó saklaust svona úr fjarlægð,
lét hún tilleiðast. Hún var búin að bíða í
um það bil 20 mínútur í röð fyrir fram-
an tækið þegar röðin kom loksins að
henni. Hún lyfti kjólnum upp og klifr-
aði upp í tækið en grunaði ekki að hún
myndi líklega ná lágpunkti tilveru
sinnar nokkrum augnablikum síðar.
Þegar tækið var um það bil hálfnað
varð konunni svo hryllilega óglatt að
hún sá sér ekki annað fært, þegar ælan
var komin upp í munninn, en að láta
hana gossa út fyrir tækið (svo lítið bæri
á). Í örvæntingu leit hún í
kringum sig og vonaði
heitt og innilega að
enginn hefði séð til
hennar. Hún var svo ringluð og svo óglatt að hún sá
alls ekki skýrt. Hún prísaði sig sæla yfir því að
hafa verið með stóran trefil um hálsinn þannig
að hún gat þurrkað síðustu æludropana úr
andlitinu með treflinum og stungið honum
síðan í töskuna sína og haldið áfram
gleðinni í bænum.
Sagan af ælandi konunni í tívolítækinu
er líklega ekki af fyrsta skipti sem kona
ælir við óheppilegar aðstæður. Ég veit um
eina sem neyddist einu sinni, eftir að hafa
verið allt of glöð kvöldinu áður, að æla ofan í
GUCCI-tösku. Þegar hún réð ekki lengur við
ógleðina ákvað hún frekar að láta töskuna
finna fyrir því en að verða sér til háborinnar
skammar í leigubíl í erlendri stórborg. En
það var náttúrlega bara vegna þess að hún
er vönduð og fín dama.
Önnur kona var í svipuðu ásigkomu-
lagi á dögunum í bílalúguröðinni fyrir
utan KFC þegar hún þurfti skyndilega
að losa sig við fæðu síðasta sólarhrings.
Hún sá ekkert annað í stöðunni, þegar
ógleðin náði tökum á henni, en að opna
bílhurðina og láta vaða og lét eins og
ekkert hefði ískorist þegar röðin
kom að henni og vinkonu hennar í
lúgunni.
Konurnar í bílnum þökkuðu svo
fyrir að keyra um á bíl með
skyggðum rúðum svo það hefði
ekki sést hvaða glæsikonur þarna
væru á ferð. Sá sem hefði séð til
þeirra hefði án efa getað náð sér í
aukapening með því að hringja inn frétta-
skot í DV eða Séð og heyrt.
Sá lærdómur sem draga má af þessu er
að vera alltaf með plastpokarúllu í tösk-
unni. Þú veist aldrei hvað gerist næst í lífi
þínu. Ef þú þarft ekki að æla í pokann get-
ur vel verið að það komi upp sú staða að þú
þurfir að anda í pokann …og þá bara gerir
þú það! martamaria@mbl.is
Taska og fatnaður frá
GUCCI.
Ælt og
andað í poka
Silkiskyrta frá
Filippu K fæst
í GK. Vand-
aðar konur
ganga í svona
skyrtum.
Dress frá
Filippu K
fæst í GK.
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | Langholtsvegi 113 |
Turninn Höfðatorgi | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is
ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR!
LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR.
Efnalaug - Þvottahús
350 KR. SKYRTAN
hreinsuð og pressuð
-ef komið er með fleiri en 3 í einu
Fullt verð 580 kr. stk.
NÚ Á FIMM STÖÐUM
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
Langholtsvegi 113
Turninn Höfðatorgi
F L Í S A V E R Z L U N
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur | S: 554 6800 - Fax: 554 6801 | Njarðarnesi 9, 603 Akureyri | S: 466 3600 - Fax 466 3601 | www.vidd.is
Veldu rétt