Morgunblaðið - 01.07.2013, Page 1

Morgunblaðið - 01.07.2013, Page 1
ANÍTA GERÐI ALLT RÉTT Í METHLAUPINU VEGLEG OG VAXANDI HÁTÍÐ ELDA, BORÐA, SYNGJA OG LÆRA ÍTÖLSKU ÞJÓÐLÖG Á SIGLUFIRÐI 26 ÆVINTÝRI Í FJALLAHÉRUÐUM 10BÆTTI MET SITT ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Kristinn Dómur Geir H. Haarde ræðir við fréttamenn að fenginni niðurstöðu. Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, fagnar ályktun þings Evrópuráðsins frá því á föstudaginn og segir hana lýsa fordæmingu á pólitískum sakamálaréttarhöldum þar sem fólk er ákært fyrir pólitísk- ar ákvarðanir eða skoðanir. Álykt- unin var samþykkt samhljóða með 86 atkvæðum, en í henni segir að halda beri pólitískri ábyrgð og refsi- ábyrgð aðskildum. Geir segir dapurlegt að Íslandi hafi verið komið í hóp ríkja þar sem fólk sé ákært fyrir pólitískar ákvarð- anir eða skoðanir. Formenn stjórn- arflokkanna lýstu því yfir um helgina að rétt væri að leggja niður Landsdóm í ljósi ályktunarinnar. Kveðið er á um Landsdóm í stjórn- arskrá og í lögum. „Raunalegt“ hjá Þuríði Formenn stjórnarandstöðu segj- ast vera sammála því að leggja eigi Landsdóm niður en kalla um leið eft- ir frekari endurskoðun stjórn- arskrárinnar. Geir segir raunalegt að Þuríður Backman hafi skilað sér- áliti er málið var til meðferðar fyrir mannréttindanefnd Evrópuráðsins. „Raunalegt er hvernig þáverandi formaður Íslandsdeildar Evr- ópuráðsþingsins, Þuríður Backman, sem var einn ákæranda í landsdóms- málinu, varð sér til minnkunar á þessum alþjóðavettvangi með sér- áliti sínu og undirstrikaði enn frekar það pólitíska ofstæki sem að baki lá.“ Ekki náðist í Þuríði við gerð fréttarinnar í gær. »4 Fagna því að leggja eigi Lands- dóm niður Tölfræðin um afbrot » Innbrotum fækkaði um 20% á höfuðborgarsvæðinu í maí miðað við sama mánuð í fyrra. » Frá 2010 hefur þjófn- aðarmálum fækkað um 18%. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Lögreglumenn upplifa ekki veru- leikann eins og hann birtist í þessum tölum. Verkefnin eru þau sömu og mál á borði þeirra sem fást við rann- sóknir eru ámóta mörg og verið hef- ur,“ segir Snorri Magnússon, formað- ur Landssambands lögreglumanna, um þá tölfræði afbrota hér á landi sem greint var frá í Morgunblaðinu á laugardag. Samkvæmt þeim tölum hefur innbrotum, þjófnuðum, eigna- spjöllum og ofbeldismálum fækkað á undanförnum árum í málaskrá lög- reglu. Hins vegar hefur fíkniefna- og kynferðisbrotamálum fjölgað. „Menn geta gefið sér forsendur í öllum samanburði,“ segir Snorri og bendir á að skráningu lögreglumála hafi verið breytt. Kunni það að skýra fækkunina nokkuð. Það sem áður kynni að hafa verið t.d. flokkað sem líkamsárás sé í dag í sumum tilvikum skráð sem aðstoð við borgara, hafi engin kæra verið lögð fram. Þá segir Snorri að aðgengi almennings að lög- reglu sé minna en áður eftir að farið var að loka lögreglustöðvum fyrr á daginn en áður. MVerkefnin ámóta mörg »4 Veruleiki lögreglu annar  Formaður Landssambands lögreglumanna segir verkefni lögreglu álíka mörg og áður  Breytt skráning mála geti að hluta skýrt fækkun afbrota hér á landi Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Árangur Guðrún Laukka og Hulda Sveinsdóttir sáttar með verðlaunin. „Það er ekki hægt að lýsa því hvað svona sýning er mikil vítamín- sprauta fyrir þá sem hafa barist með sína hugmynd árum saman án mikils árangurs,“ segir Hulda Sveinsdóttir, uppfinningamaður í Reykjanesbæ, sem nýverið fékk gullverðlaun á stórri sýningu og ráðstefnu uppfinn- ingamanna í Bandaríkjunum, IN- PEX í Pittsburgh. Verðlaunin fékk hún fyrir heilsukoddann Keili. Í kjöl- far sýningarinnar hefur hún fengið samning um dreifingu á koddanum í flugvélar allra helstu flugfélaga Bandaríkjanna á borð við Delta, American Airlines, United Airlines og Continental, sem að jafnaði flytja um 1,7 milljónir farþega á dag. Íslenskir uppfinningamenn voru sigursælir á sýningunni því Guðrún Laukka fékk einnig gullverðlaun auk sérstakra heiðursverðlauna frá króatískum uppfinningamönnum. Guðrún hannaði plasttappann Plast- erplug, sem gerir við skemmdir í inn- og útveggjum. bjb@mbl.is »6 Íslenskur koddi á flugi vestanhafs  Tvær íslenskar uppfinningakonur verðlaunaðar í Bandaríkjunum Blíðskaparveður lék við landsmenn víðast hvar um helgina og nýttu margir sólargeislana vel, en sólin hefur að margra mati látið óvenjulítið á sér bera þetta sumarið. Það var margt um manninn í Nauthólsvík, líkt og gengur á góðviðrisdögum, og nýttu þessar stúlkur veðrið til að busla þar í sjónum. Búist má við bjartviðri á suðvesturhorninu fram eftir vikunni, en útlit er þó fyrir vætu og skýjahulu um næstu helgi. Hins vegar er spáð þurru og björtu veðri norðan- og austantil á landinu sömu helgi. Hiti verður á bilinu 8-15 stig. Blíðskaparveður víða um land um helgina Morgunblaðið/Eggert Útlit fyrir bjartviðri á höfuðborgarsvæðinu fram eftir viku Fyrirtæki sem tóku þátt í Þýska- landsheimsókn forseta Íslands segja hana hafa tekist vel. „Mikil- vægi viðskipta Íslands og Þýska- lands verður seint ofmetið. Þau er hægt að rekja mörg hundruð ár aft- ur í tímann og standa ekki síður í blóma í dag. Heimsókn eins og þessi skilar kannski ekki beinum samn- ingum en meðan á henni stendur verða til sambönd sem oft og tíðum leiða til viðskipta síðar meir,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir hjá Þýsk- íslenska viðskiptaráðinu. Vöru- skipti Íslands við Þýskaland voru jákvæð í fyrra um nærri 27 millj- arða króna. Útflutningur þangað nam um 80 milljörðum króna. »16 Viðskipti við Þýska- land í miklum blóma  Stofnað 1913  151. tölublað  101. árgangur  M Á N U D A G U R 1. J Ú L Í 2 0 1 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.