Morgunblaðið - 01.07.2013, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2013
✝ KristjanaGuðný Egg-
ertsdóttir, Nanna,
fæddist í Reykja-
vík 25 nóvember
1923. Hún lést 21.
júní 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún
Þórðardóttir, f.
29.5. 1901, d. 8.4.
1987 og Eggert
Árni Kristjánsson,
stórkaupmaður, f. 6.10. 1897, d.
28.9. 1966. Systkini Kristjönu:
Gunnar Þórður, f. 18.8. 1922,
d. 11.1. 1988; Aðalsteinn, f.
22.8. 1925, d. 14.10. 1998; Edda
Ingibjörg, f. 28.12. 1931.
Hinn 3.8. 1946 giftist Krist-
jana æskuástinni, Magnúsi
Ingimundarsyni, forstjóra kex-
verksmiðjunnar Frón, f. 8.2.
1923, d. 29.11. 2000. Foreldrar
hans voru Guðrún Árnadóttir,
f. 17.6. 1887, d. 21.9. 1974 og
Ingimundur Árnason, söng-
stjóri, f. 7.2. 1895, d. 28.2.
1964. Börn Kristjönu og Magn-
úsar eru: 1) Eggert Árni, f.
3.10. 2000. 4) Inga Steinunn, f.
23.10. 1960. 5) Kristjana Vig-
dís, f. 15.6. 1966, dóttir hennar
er Hildur Guðrún Halldórs-
dóttir, f. 18.10. 1987.
Kristjana ólst upp á Túngötu
30 í Reykjavík. Hún lauk prófi
frá Verzlunarskóla Íslands
1941 og sigldi ári síðar til
náms við University of Calif-
ornia Berkeley þar sem hún
lagði stund á nám í enskum
bókmenntum 1942-1945. Hún
naut tónleikalífsins í Berkeley,
Oakland og San Francisco og
þekkti allar jazz- og swing-
hljómsveitir þeirra tíma. Eftir
heimkomuna og stofnun heim-
ilis helgaði hún sig uppeldi og
umönnun barna sinna og síðar
afkomenda þeirra. Öll sumur
dvöldust þau hjón ásamt fjöl-
skyldu í sumarhúsi sínu við
Laxá í Kjós. Hún naut þess að
ferðast með eiginmanninum á
ferðum þeirra um heiminn.
Hún hóf störf við prófgæslu í
Háskóla Íslands árið 1986 og
stundaði það starf í tæp tutt-
ugu ár. Síðustu tólf árin dvald-
ist hún oft hjá dóttur sinni og
fjölskyldu hennar í Suður-
Kaliforníu.
Útför Kristjönu fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í
dag, 1. júlí 2013, og hefst at-
höfnin kl. 13.
20.2. 1947, kvænt-
ur Guðlaugu
Nönnu Ólafsdóttur,
f. 18.9. 1948. Börn
þeirra eru: Lára
Nanna, f. 22.1.
1966, gift Guð-
mundi Árna Jóns-
syni, f. 13.7. 1965,
dætur þeirra eru
Guðlaug Sara, f.
14.3. 1988, og
Steinunn Sandra, f.
15.11. 1990; Magnús Ingi, f.
20.8. 1970, í sambúð með Hug-
rúnu Birnu Bjarnadóttur, f.
19.9. 1983, dóttir þeirra er Júl-
ía Karen, f. 12.2. 2009. Börn af
fyrra hjónabandi eru Hugrún
Lív, f. 27.6. 2001 og Aron Ingi,
f. 22.9. 2004; Eyrún Sif, f. 9.11.
1972, gift Guðmundi Páli Gísla-
syni, f. 5.5. 1973, börn þeirra
eru Eggert Aron, f. 8.2. 2004,
Nanna Sif, f. 18.11. 2010; Ólaf-
ur Jóns, f. 5.8. 1980. 2) Guðrún,
f. 31.7. 1953, d. 18.10. 1954. 3)
Guðrún, f. 16.8. 1955, gift Jeff-
rey John Gailiun, f. 19.9. 1946,
dóttir þeirra er Kristjana, f.
Elsku amma kvaddi okkur á
lengsta degi ársins í þvílíku dá-
semdarveðri eftir skammvinn
veikindi. Það er skrýtið að hugsa
til þess að eiga ekki eftir að hitta
ömmu Nönnu aftur. Amma
„pæja“ eins og við kölluðum hana
gjarnan var ekki þessi týpíska
amma sem prjónaði og bakaði í
gamaldags ömmukjólum heldur
var hún sko „pæja“ af guðs náð,
alltaf ótrúlega flott og mikil
skvísa.Við upplifðum ömmu aldrei
sem gamla konu, hún var einhvern
veginn alltaf svo ungleg og full af
lífi og fjöri, klæddi sig og hegðaði
sér á flestan hátt eins og ung kona.
Vinir okkar barnabarnanna voru
ekki alveg að kaupa að þetta gæti
verið amma okkar enda var hún
alltaf klædd samkvæmt nýjustu
tísku og þekkti helstu tískuvöru-
verslanirnar út og inn, hvort sem
var í London, París eða Reykja-
vík. Það var frekar sérstök upp-
lifun að fara með ömmu í bæinn á
gelgjunni þar sem hún þekkti allar
aðalskvísurnar í tískuvöruversl-
unum bæjarins.
Þá var amma alltaf með putt-
ann á púlsinum þegar kom að
íþróttum. Það var sama hvort um
var að ræða fótbolta, NBA körfu-
boltann, handboltann eða box.
Hún var með þetta allt á hreinu og
vissi hverjir liðsmenn allra liða
voru. Hún þoldi ekki Manchester
United og monthanann hann Alex
Ferguson. Hún var hins vegar
hrifnari af knattspyrnustjóra Ars-
enal, fannst hann mikill sjentil-
maður. Hún talaði mikið um þegar
hún fór á Chelsea-leik árið 2008
með pabba og borðherrann henn-
ar í VIP-matnum fyrir leik var
enginn annar en knattspyrnu-
stjóri Arsenal, Arsene Wenger.
Hefðardömunni Nönnu „Egg“
fannst mikið til hans koma. Hún
missti helst ekki úr leik og hringdi
iðulega í Óla Jóns og Eggert Aron
til að fara yfir úrslit helgarinnar,
bara tékka á hvort þeir hefðu ekki
örugglega verið að fylgjast með.
Við erum að tala um að hún horfði
á NBA leiki á nóttunni alveg þar
til hún veiktist.
Amma undi sér alltaf hvað best
í sumarbústaðnum í Kjósinni
sinni. Þar lék hún á als oddi og var
dásamlegt að heimsækja hana
þangað og eigum við systkinin
yndislegar minningar frá heim-
sóknum okkar í Kjósina til ömmu
og afa. Það var eins og það væri
alltaf annað veðurfar þar en í
Reykjavík en það var alltaf gott
veður og amma var dugleg að láta
alla vita af því hvað veðrið var gott
hjá henni í Kjósinni.
Amma hlustaði mikið á tónlist
og var oft og iðulega með stillt á
Kanann í gamla daga. Uppáhaldið
hennar er maður sem komst næst-
um jafn nálægt hjarta hennar og
afi, „kærastinn hennar“ Tony
Bennett sem hún sá margoft á
tónleikum, nú síðast í Hörpunni.
Amma átti gott líf og við vitum
að afi og elsku Gunna litla taka vel
á móti henni. Það hafa klárlega
verið miklir fagnaðarfundir.
En endum þetta á Tony nú þeg-
ar hún hefur hitt afa aftur.
Vegna þín er söngur í hjarta mínu.
Vegna þín uppgötvaði ég rómantíkina.
Vegna þín mun sólin skína.
Tunglið og stjörnurnar munu segja að
þú sért mín að eilífu.
Ég lifi fyrir ást þína og kossa.
Það er líkt og vera í paradís að vera
nálægt þér.
Vegna þín er líf mitt fullkomnað.
Og ég get brosað vegna þín.
Lára, Magnús, Eyrún,
Ólafur Jóns og viðhengi.
Elsku besta amma mín.
Við höfum verið bestu vinkonur
frá því ég man eftir mér og við átt-
um svo sérstakt og fallegt sam-
band. Þú varst alltaf svo miklu
meira en bara amma mín, þú varst
traust vinkona og tókst mikinn
þátt í að gera mig að þeirri mann-
eskju sem ég er í dag. Ég trúi því
bara ekki enn að ég geti ekki kom-
ið til þín og verið með þér.
Ég var svo lánsöm að búa á
Starhaganum þegar ég var yngri
Kristjana Guðný
Eggertsdóttir
✝ Sveinbjörgfæddist á
Bjargi á Ísafirði 8.
júlí 1931. Hún lést á
LSH í Fossvogi 24.
júní 2013.
Móðir hennar var
Þórdís Einarsdóttir,
f. 1912 á Hafrafelli í
Skutulsfirði, d.
1989. Faðir hennar
var Guðmundur
Franklín Gíslason, f.
1899, d. 1956. Sveinbjörg var alin
upp hjá afasystur sinni Þórunni
Jensdóttur og Sveinbirni Helga-
syni. Þórdís móðir Sveinbjargar
giftist Viggó Guðjónssyni, f.
1902, d. 1976. Hálfsystkini Svein-
bjargar sammæðra eru, Guðjón
Lúðvík, f. 1938, hann á tvö börn
og fjögur barnabörn. Guð-
mundur Sigurður, f. 1943,
kvæntur Öldu Garðarsdóttur, f.
1949, þau eiga fjögur börn og
fjögur barnabörn. Guðrún Sig-
urborg, f. 1948, gift Jóhanni
Ólafssyni, f. 1940, þau eiga tvær
dætur og eitt barnabarn. Sælaug
Vigdís, f. 1953, gift Viðari Magn-
ússyni, f. 1954, þau eiga fimm
börn og þrjú barnabörn. Hálf-
systkini Sveinbjargar samfeðra
eru, Steinunn, f. 1930, gift Valdi-
mar Björnssyni, f. 1927, d. 2007.
Seinni maður Sveinbjargar
var Gunnar Guðni Sigurðsson frá
Holtaseli á Mýrum, A-Skaft., f. 1.
jan. 1928, d. 17 des. 2007. Hann
var sonur hjónanna Sigurðar
Sigurðssonar, f. 1883, d. 1966 og
Önnu Þorleifsdóttur, f. 1885, d.
1981. Börn þeirra eru 1) Einar
Páll, f. 1955, kvæntur Önnu Guð-
nýju Björnsdóttur, f. 1958, þau
eiga fimm börn. a) Gunnar
Freyr, f. 1983, b) Guðný Björk, f.
1986, gift Runólfi Gunnlaugi
Fleckenstein, f. 1978, c) Þórdís
Eva, f. 1994, d) Einar Páll, f.
1995, e) Daníel Helgi, f. 1999. 2)
Sigurður Arnar, f. 1959, sam-
býliskona Jóna Vala Valsdóttir, f.
1954, þau eiga einn son, Gunnar
Guðna, f. 1993. Fósturdóttir Sig-
urðar er Guðrún Stella, f. 1984,
hún á tvíburana Arnar og Brynj-
ar, f. 2007. Sigurður Arnar var
giftur Láru Jónsdóttur, þau
skildu, þau eiga Þórunni Björgu,
f. 1980, hún á einn son, Jón
Björgvin, f. 2002. 3) Anna Þórdís,
f. 1963, sambýlismaður Birgir
Axelsson, f. 1958, þau eiga einn
son Þórhall, f. 1992, sambýlis-
kona hans er Ágústa Solveig Sig-
urðardóttir, f. 1992, þau eiga
soninn Birgir Óla, f. 2011.
Sveinbjörg fór ung að heiman.
Hún stundaði ýmis störf svo sem í
fiskvinnslu, þjónustu og síðast í
verslun. Gunnar og Sveinbjörg
bjuggu lengst af í Kópavogi síð-
ast í Hamraborg 18.
Útför Sveinbjargar fer fram
frá Kópavogskirkju í dag, 1. júlí
2013, og hefst athöfnin kl. 13.
Karl Franklín, f.
1934, d. 1994, Rafn
Ingi, f. 1935, d.
1976, Ragnheiður, f.
1937, gift Sigurði
Helgasyni, f. 1934,
þau eiga þrjú börn,
fyrir átti Ragnheið-
ur eina dóttur. Ari,
f. 1939, fráskilinn,
hann á þrjú börn.
Trausti Örn, f. 1940,
fráskilinn og á tvö
börn. Hulda, f. 1944, gift Ibsen
Angantýssyni, f. 1941, þau eiga
þrjú börn. Árný Elsa Tóm-
asdóttir, f. 1940, fráskilin, hún á
fjögur börn.
Sveinbjörg var tvígift. Fyrri
maður hennar var Kristmundur
Sverrir Kristmundsson, f. 1928,
d. 1971. Synir þeirra eru. 1)
Sveinbjörn Þór Kristmundsson,
f. 1951, d. 2003. Sambýliskona
hans var Steinunn Hilmarsdóttir,
f. 1944, d. 2011. Fósturdóttir
hans er Rósa Kristín Stef-
ánsdóttir, f. 1974, gift Ragnari
Hilmarssyni, f. 1976, þau eiga tvö
börn a) Alex Viktor, f. 1994 og b)
Birta Steinunn, f. 1999. 2) Þor-
leifur Kjartan Kristmundsson, f.
1952, kvæntur Svanhildi Ólafs-
dóttur, f. 1961, þau eiga einn son
Kristmund Sverri, f. 1995.
Komið er að kveðjustund, elsku
mamma mín.
Þó svo að ég hafi ekki alist upp
hjá mömmu, vorum við alltaf í
góðu sambandi og yndislegt að
geta bjallað og rabbað saman þó
sérstaklega um Ísafjörð því rætur
hennar voru þaðan, henni þótti
svo vænt um Ísafjörð, sinn fæð-
ingarstað. Mikið á ég eftir að
sakna þess að geta ekki hringt og
fengið upplýsingar um ættir fólks
því mamma var eins og Íslend-
ingabók, minnið hennar var svo
gott.
Við fórum nokkrar ferðir vest-
ur saman, sú síðasta var síðastliðið
sumar ásamt börnum, tengda-
börnum, barnabörnum, systkin-
um hennar og fjölskyldum þeirra í
tilefni af 100 ára afmæli Þórdísar
ömmu en hún lést árið 1989. Það
var virkilega gaman að sjá hvað
mamma naut sín í þessari ferð, að
vera komin vestur með sinn stóra
hóp, foringinn sjálfur eins og
Mummi bróðir hennar kallaði
hana í gamni.
Nú þegar mamma fer sína síð-
ustu ferð vona ég og trúi að nú sé
hún komin í faðm Gunnars síns og
Svenna bróður.
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Á meðan hjörtun mild og góð
minning örmum vefur
þá fær að hljóma lífsins ljóð
og lag sem tilgang hefur.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(Kristján Hreinsson)
Takk fyrir allt og guð geymi
þig, elsku mamma mín.
Þinn sonur,
Þorleifur (Daddi).
Elsku besta mamma. Nú er
komið að kveðjustund. Margs er
að minnast og erfitt að velja eitt-
hvað, sem stendur upp úr í minn-
ingunni um þig. Umhyggja, kær-
leikur og hlýja sem þú sýndir
okkur börnunum þínum og barna-
börnum verður það sem lifa mun í
hjörtum okkar alla tíð. Einnig var
eftirtektarvert í lífshlaupi þínu
hversu farsæl vinabönd þín voru.
Hressleikinn og hreinskilni þín
voru einstök.
Kæra mamma, við kveðjum þig
með söknuði. Kátínan og gleðin
sem fylgdu þér mun lifa í hugum
okkar er við minnumst þín. Við
þökkum þér innilega fyrir sam-
fylgdina og allt það sem þú gafst
af þér til okkar.
Nú horfinn er ástvinur himnanna til,
heill þar nú situr við gullbryddað hlið,
í Guðs faðmi gistir hann nú.
Samfylgd er þökkuð með söknuð í
hjarta,
sefandi virkar þó minningin bjarta.
Ég kveð þig með kærleik og trú.
(Hafþór Jónsson)
Hvíl í friði.
Einar Páll, Sigurður Arnar
og Anna Þórdís.
Það sem flýgur í gegnum huga
minn á þessari kveðjustundu er
þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa
Sveinbjörg
Guðmundsdóttir
fengið að kynnast tengdamóður
minni Sveinbjörgu sem nú er látin
eftir stutt en erfitt veikindastríð.
Það eru 35 ár síðan ég kynntist
henni Sveinu en það var hún yf-
irleitt alltaf kölluð. Strax sá ég að
þarna var hress og skemmtileg
kona á ferð. Hún tók mér strax
opnum örmum og á þessum 35 ár-
um féll aldrei skuggi á okkar vin-
áttu. Sveina var mikil félagsvera
og þótti fátt skemmtilegra en að
vera í góðra vina hópi og var þá yf-
irleitt hrókur alls fagnaðar. Hún
var mjög snyrtileg kona og átti
mikið af fallegum fötum og alltaf
vel til höfð. Sveina var með ein-
dæmum ættfróð og gat sagt
hverra manna þessi eða hinn var
og frá hvaða bæ. Sérstaklega voru
henni hugleiknir allir frá Ísafirði.
Það er okkur ættingjum ómetan-
leg minning að hafa getað á síð-
asta ári farið með henni til Ísa-
fjarðar og skoðað hennar
æskustöðvar. Þar áttum við góða
og skemmtilega daga saman og
naut hún þess. Ekki má gleyma að
hún gat ekki farið til Ísafjarðar án
þess að fara í Gamla bakaríið til að
kaupa Napóleonskökur og harðar
kringlur og var þá keypt til að
hafa með sér suður til að gefa vin-
konunum. Hún og Gunnar heitinn
fóru oft til sólarlanda og talaði hún
oft um að gaman væri að fjölskyld-
an gæti komið með. Það var svo
árið 2011 þegar hún varð áttræð
að fjölskyldan hennar fór til Te-
nerife með henni og var það
ógleymanleg ferð. Erum við þakk-
lát fyrir að það gat orðið. Hún var
góður kokkur og það var ósjaldan
þegar ég hélt barnaafmæli að hún
skellti í nokkrar pönnukökur og
kom með. Sveina var ein af þess-
um kjarnorkukonum og kvartaði
sjaldan. Haustið 2006 fóru þau
Gunnar til Benidorm og vildi þá
svo illa til að bæði lentu í slysi sem
varð til þess að annar fóturinn á
henni styttist svo hún varð hölt en
hún lét það ekki aftra sér frá að
fara nánast á hverjum degi með
strætó eða bíl frá ferðaþjónustu
fatlaðra að heimsækja Gunnar á
sjúkrahúsið, en Gunnar komst
aldrei heim eftir slysið.
Að lokum vil ég þakka henni
fyrir alla þá ástúð og umhyggju
sem hún sýndi mér og börnum
okkar Einars og bið Guð að blessa
fjölskyldu hennar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞORGERÐUR LAXDAL,
áður til heimilis að Veisuseli í
Fnjóskadal,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn
27. júní.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 3. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð
og Heimahlynningu á Akureyri.
Gunnlaugur Friðrik Lúthersson, Rósa Birgisdóttir,
Hilmar Lúthersson, Þórey Egilsdóttir,
Steinþór Berg Lúthersson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Helga Hlaðgerður Lúthersdóttir, Henry Val Skowronski,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, systir,
amma, langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR MATTHILDUR
ARNÓRSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju
miðvikudaginn 3. júlí kl. 14.00.
Blóm afþökkuð en þeim, sem vildu minnast
hennar, er bent á gjafarsjóð Hvamms á
Húsavík, reikn. 192-15-383338, kt. 511298-29699.
Arnrún Sigfúsdóttir, Eiður Guðjohnsen,
Arnór Guðjohnsen, Anna Borg,
Ragnheiður Guðjohnsen, Aðalsteinn Sigurðsson,
Sigríður Matthildur Guðjohnsen, Björgvin I. Ormarsson,
Þóra Kristín Guðjohnsen, Andrew Mitchell,
Herdís Þuríður Arnórsdóttir,
Kári Arnórsson,
Hörður Arnórsson,
langömmu- og langalangömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
RAGNAR LÚÐVÍK JÓNSSON,
Böðvarsgötu 7,
Borgarnesi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, föstudaginn 28. júní.
Jarðsungið verður frá Borgarneskirkju
þriðjudaginn 9. júlí kl. 14.00.
Anna Guðrún Georgsdóttir,
Rúnar og Dóra Axelsdóttir,
Steinar og Jónína Númadóttir,
Þóra og Gísli Kristófersson,
Jón Georg og Helga Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Elín og Björn Yngvi Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.