Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2013
Ósafl óskar eftir að ráða starfsmenn sem hafa þekkingu, reynslu og
réttindi til að sinna vinnu við jarðgöng.
Skilyrði er að umsækjendur hafi reynslu af jarðgangavinnu og hafi
unnið við borun, hleðslu, bergstyrkingar, ásprautun og bergþéttingar.
Ennfremur er nauðsynlegt að umsækjendur hafi vinnuvélaréttindi og
meirapróf.
Nánari upplýsingar veitir Einar Hrafn Hjálmarsson S: 660-6269.
Umsóknir óskast sendar á tölvupóstfangið ehh@iav.is,
fyrir 20. september 2013.
Ósafl vinnur að framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng en félagið er í eigu ÍAV
og Marti Contractors. ÍAV og Marti Contractors hafa lengi unnið saman að
stórframkvæmdum s.s. Óshlíðargöngum, snjóflóðavarnargarði í Bolungarvík
og nú er unnið að járnbrautargöngum í Noregi.
Jarðgangamenn - Vaðlaheiðargöng
Ósafl ehf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | osafl.is
Skjól
hjúkrunarheimili
Læknaritari
Laus er staða læknaritara frá
1. desember nk. eða fyrr
eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða 50% starf, almennt lækna-
ritarastarf ásamt öðrum skrifstofustörfum
á heimilinu.
Hæfniskröfur:
Löggilt læknaritaranám, lipurð í sam-
skiptum, trúmennska og nákvæmni í
vinnubrögðum.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 1. október nk.
Upplýsingar veita:
Sigurbjörn Björnsson, framkvæmdastjóri
lækninga. Sími 522 5600,
netfang; sigbb@skjol.is
Guðný H. Guðmundsdóttir framkvæmda-
stjóri hjúkrunar. Sími 522 5600,
netfang gudny@skjol.is
Skjól, hjúkrunarheimili,
Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík.
Mannauðsráðgjafi
Helstu verkefni:
• Almenn ráðgjöf við fagsvið og stjórnendur á sviði
mannauðsmála
• Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði
mannauðsmála fyrir Reykjavíkurborg
• Eftirlit með samræmdum aðgerðum í framkvæmd
vinnuumhverfis- og öryggismála
• Umsjón með samræmdum vinnubrögðum hjá áreitni
og eineltisteymum Reykjavíkurborgar
• Verklagsreglur og verklýsingar
• Sífelldar umbætur og þróun í mannauðsmálum
• Þátttaka í gerð og úrvinnslu kannana auk eftirfylgni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála og/eða
víðtæk reynsla á sviði mannauðsstjórnunar
• Öguð og skipulögð vinnubrögð
• Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Þekking og/eða reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu
æskileg
• Reynsla af vinnuumhverfis- og öryggismálum kostur
• Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu kostur
Laust er til umsóknar starf mannauðsráðgjafa á mannauðsdeild í Ráðhúsi Reykjavíkur
Mannauðsdeild hefur yfirumsjón með mannauðsmálum Reykjavíkurborgar, hefur forystu um stefnumótun og
veitir borgaryfirvöldum ráðgjöf í þeim efnum. Deildin hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd starfsmanna-
stefnu, gerð starfsþróunaráætlana, stjórnendafræðslu, starfsmats og gerð viðhorfskönnunar. Hún vinnur
jafnframt að margs konar þróunarverkefnum og veitir stjórnendum ráðgjöf um starfsmannamál. Auk þess er
umsjón með innri vef borgarinnar á ábyrgð mannauðsdeildar. Deildin leggur áherslu á góða og stöðuga
samvinnu við mannauðsþjónustur fagsviða.
Laun og starfskjör fara samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2013. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir
um að sækja um starfið á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is undir laus störf.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Anna María Pétursdóttir
starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar (anna.maria.petursdottir@reykjavik.is) í síma 411 4216 eða
Anna Helgadóttir (anna.helgadottir@reykjavik.is) í síma 411 4210.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Mannauðsdeild
Bifvélavirki - vélvirki
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma
óska eftir að ráða starfsmann á
vélaverkstæði.
Viðkomandi þarf að vera menntaður
bifvélavirki eða hafa sambærilega menntun.
Umsókn um starfið skal skila á skrifstofu
Kirkjugarðanna í Fossvogi merkt
"vélaverkstæði" fyrir 24. september
næstkomandi.
Heimilisfang: Vesturhlíð 8,
105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir
Þorgeir Adamsson í síma: 897-2472,
myndsími: 585-2701.
Upplýsingar um Kirkjugarðana
má nálgast á netinu:
www.kirkjugardar.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is