Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2013
Starfskona
Samtök um kvennaathvarf leita að starfskonu á
vaktir í Kvennaathvarfinu. Starfið er krefjandi
og fjölbreytilegt og felst meðal annars í viðtals-
þjónustu, símsvörun, stuðningi við dvalarkon-
ur og þátttöku í daglegu lífi athvarfsins.
Margs konar menntun og starfsreynsla nýtist í
starfi, góð enskukunnátta er nauðsynleg og
önnur tungumálakunnátta æskileg. Mikilvægt
er að starfskonur búi yfir áhuga og þekkingu á
ofbeldi í nánum samböndum, samstarfshæfi-
leikum, ábyrgð og frumkvæði.
Umsóknum skal skilað til Samtaka um kvenna-
athvarf í pósthólf 1486, 121 Reykjavík eða net-
fangið sigthrudur@kvennaathvarf.is fyrir
27. september.
Upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir
framkvæmdastýra í síma 561 3720.
Skjól
hjúkrunarheimili
Sjúkraliðar/starfsmenn
Getum bætt við okkur starfsfólki
Skjól leitar eftir sjúkraliðum/starfsmönnum til
starfa við aðhlynningu. Um er að ræða 80%
starfshlutfall, blandaðar vaktir.
Hæfniskröfur:
Góð íslenskukunnátta, áhugi á að
starfa með öldruðum, jákvæðni
og góð samskiptahæfni.
Upplýsingar veitir:
Guðný H. Guðmundsdóttir framkvæmda-
stjóri hjúkrunar. Sími 522 5600,
netfang gudny@skjol.is
Skjól, hjúkrunarheimili,
Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík.
AB-varahlutir óska eftir
góðum starfsmanni
í afgreiðslu bifreiðavarahluta
Hæfniskröfur: Þekking og áhugi á bílum/vara-
hlutum – tölvu- og enskukunnátta - lipurð í
mannlegum samskiptum – sjálfstæður -
stundvís - röskur.
Umsóknir sendast á:
ab.umsokn@gmail.com eigi síðar en 20. sept.
Kanntu brauð að baka?
Ef svo er óskar Eir, hjúkrunarheimili eftir
bakara eða starfsmanni við bakstur.
Unnið er virka daga.
Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt.
Skila þarf umsóknum inn fyrir 20. september nk.
og sendist á netfangið: eldhus@eir.is og/eða á
skrifstofu Eirar.
Eir hjúkrunarheimili – Eldhús
Hlíðarhúsum 7
112 Reykjavík
S: 522 5700
Stór hluti almennings telur fyrirtæk-
in í landinu ekki axla ábyrgð sína,
stærra hlutfall stjórnenda en almenn-
ings telur fyrirtækin standa sig vel en
fjöldi fólks tekur þó ekki afstöðu. Slíkt
er vísbending um að þörf sé á vitund-
arvakningu um samfélagsábyrgð meðal
almennings og stjórnenda fyrirtækja –
sem þurfa leiðbeiningar um hvernig
skuli vinna í sátt við samfélagið.
Afstaða almennings
og stjórnenda ólík
Þetta kemur fram í frétt frá Festu –
miðstöð um samfélagsábyrgð. Vísað er
til könnunar sem gerð var í vor þar
sem viðhorf almennings og stjórnenda
til starfshátta og vinnubragða sem tal-
ist gera samfélagslega ábyrg voru
könnuð. Um 42% almennings telja fyr-
irtæki axla samfélagábyrgð illa, 15%
telja þau standa sig hvað þetta varðar
og 43% aðspurðra segja bæði og. Af
stjórnendum telja 34% þeirra að fyr-
irtækni axli ábyrgð vel, 20% illa en
46% eru beggja blands í afstöðu sinni.
Þegar almenningur og stjórnendur
eru spurðir hvað þeim detti fyrst í hug
þegar þeir hugsa um samfélagslega
ábyrgð fyrirtækja, nefna flestir um-
hverfismál eða styrki og stuðning við
góð málefni. Einnig nefndi fólk skatt-
greiðslur, atvinnusköpun, heiðarleika,
velferð og öryggi starfsmanna. Fleira
bar á góma. „Niðurstöður þessarar
fyrstu könnunar Festu sýna að það eru
ólíkar skoðanir bæði innan og utan fyr-
irtækja um hvað samfélagsábyrgð er
og að stór hluti almennings telur fyr-
irtæki ekki hegða sér á ábyrgan hátt.
Athygli vekur hve hátt hlutfall svar-
enda myndar sér ekki skoðun, segir
Ketill B. Magnússon, framkvæmda-
stjóri Festu.
Fjölmörg fyrirtæki í Festu
Festa er sjálfstætt félag með eigin
stjórn og er ekki rekið í hagnaðar-
skyni. Stofnfélagar Festu eru Lands-
bankinn, Landsvirkjun, Íslandsbanki,
Rio Tinto Alcan, Síminn og Össur.
Festa starfar svo með háskólunum um
fræðslu og rannsóknir á sviði sam-
félagsábyrgðar.
Ýmis fyrirtækið hafa undanfarið
gerst félagar í Festu. Má þar nefna
ÁTVR, Ölgerðina, Arion banka, Neyð-
arlínuna, Nýsköpunarmiðstöð Íslands,
Reykjagarð, Capacent, ISS Ísland,
Deloitte, Betware og CCP. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fiskur Ólíkar skoðanir eru bæði innan og utan fyrirtækja um hvað samfélagsábyrgð er, segir í könnun á vegum Festu.
Fyrirtækin eru ekki ábyrg
Festa kannar hug til samfélagslegrar ábyrgðar Unnið sé í sátt
við samfélagið Styrkir, heiðarleiki og velferð eru stikkorðin
Knattspyrnudeild Breiða-
bliks hlaut á dögunum jafn-
réttisviðurkenningu jafn-
réttis- og mannréttindaráðs
Kópavogsbæjar. Ármann
Kr. Ólafsson bæjarstjóri af-
henti formanni deildarinnar,
Borghildi Sigurðardóttur,
viðurkenningarskjal því til
staðfestingar í hálfleik á
Kópavogsvelli þar sem átt-
ust við Breiðablik og Þór-
KA í meistaraflokki kvenna.
Í rökstuðningi segir að
knattspyrnudeild Breiða-
bliks hafi lengi verið í far-
arbroddi í kvennaknatt-
spyrnu og lagt áherslu á að
auka veg og virðingu henn-
ar. Segir að félagið vinni
eftir sérstakri jafnréttis-
stefnu sem skilað hafi góð-
um árangri.
Kynin æfa saman
Þar segir einnig að félag-
ið geri sömu kröfur til
þjálfara beggja kynja og að
stúlkum í iðkendahópnum
hafi fjölgað jafnt og þétt.
Árið 2012 hafi Breiðablik
orðið Íslandsmeistari í öll-
um yngri flokkum kvenna.
Hefur félagið lagt áherslu á
að meistaraflokkar og
yngri flokkar kvenna hafi
sama aðbúnað og strák-
arnir – en algengara verði
að kynin æfi saman.
sbs@mbl.is
Blikar Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri afhendir Borghildi
Sigurðardóttur, formanni knattspyrnudeildar, viðurkenningu.
Jafnréttisstefnan skilar árangri
Knattspyrnudeild Breiðabliks
fær viðurkenningu Kópavogsbæjar
Foreldrar barna í grunn-
skólum Reykjanesbæjar eru í
hópi ánægðustu foreldra á
landinu, samkvæmt for-
eldrakönnun Skólapúlsins
2013. Foreldrar eru, sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá
Reykjanesbæ, ánægðir með
nám og kennslu í skólum
bæjarins, þeir telja kenn-
arana góða og stjórnun skól-
anna sömuleiðis.
Foreldrar eru sömuleiðis
ánægðir með það námsefni
sem kennt er í skólunum og
eru kátir með hve reglulega
skólarnir veita gagnlegar
upplýsingar um framvindu
barna sinna í námi.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjanesbær Akraskóli er í nýju hverfi í Innri-Njarðvík.
Foreldrar ánægðir
Skólarnir í Reykjanesbæ eru góðir