Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2013
Safnaðarheimili Grensáskirkju
Sunnudagurinn 15. septem-
ber. Samkoma kl. 17.00.
Ræðusería: Jesús mætir einstak-
lingum. Ræðumaður Guðlaugur
Gunnarsson. Barnapössun.
Kl. 11.00 Samkoma. Helgi
Guðnason prédikar. Kaffi og
samfélag eftir samkomu.
Kl. 14.00 Samkoma á ensku
hjá Alþjóðakirkjunni.
Kl. 18.00 Kvöldsamkoma.
Ljúf lofgjörð og hagnýt
prédikun.
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Garðar Björg-
vinsson, Michael-miðill,
Símon Bacon, Guðríður
Hannesdóttir kristalsheilari
og auk annarra, starfa hjá
félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18, auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Akurinn, kristið samfélag,
Núpalind 1, Kópavogi.
Samkoma í dag, sunnudag
15. september, kl. 14.00.
Guðmundur Erlendsson leiðir
biblíulestur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Tilkynningar
Próf í íslensku fyrir umsækjendur
um íslenskan ríkisborgararétt
Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan
ríkisborgararétt verða næst haldin á vegum
Námsmatsstofnunar í desember og er skráning
hafin.
Prófin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu
9.-13. desember og á eftirtöldum stöðum á
landsbyggðinni: Akureyri 2. desember,
Egilsstöðum 4. desember og Ísafirði 6. desember.
Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti
á vef Námsmatsstofnunar til og með
10. nóvember. Gjald fyrir þátttöku í prófi er
7.000 krónur sem greiða skal í síðasta lagi
10. nóvember inn á reikning
Námsmatsstofnunar. Upplýsingar þar að
lútandi er að finna á vef stofnunarinnar.
Sjá nánar á vefnum www.namsmat.is. Einnig
eru veittar upplýsingar í síma 550 2400.
Innanríkisráðuneytið,
11. september 2013.
GRUNDARFJÖRÐUR
Eignir til sölu
Ártún 5, iðnaðarhúsnæði 473 ferm. ásamt
fylgibúnaði. Stálgrindarhús byggt 2000.
Húsið hefur verið notað við fiskvinnslu og í
því eru m.a. frystar og lausfrystivélar. Ásett
verð 22.000.000.
Báturinn Blíða SH 277 sem er 61
brúttótonn. Bátnum fylgir m.a. tvö togspil,
snurvoðarvinda, móttaka úr áli, talstöðvar,
sjálfstýring, dýptarmælar, sími og tölvuskjáir.
Ásett verð 14.000.000.
Lausafé svo sem einn frystigámur, 40 fet,
tveir geymslugámar, 40 fet, flokkari, vogir,
færibönd, suðupottur og brotbúnaður fyrir
beitukóng.Tilboð óskast.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu og eign-
irnar eru til sýnis í samráði við undirritaðan.
LIT ehf., Borgarnesi,
IngiTryggvason hdl., lögg. fast.sali,
s. 437 1700, gsm 860 2181,
netfang: lit@simnet.is
Félagslíf
Samkoma í Mjódd kl. 17.
Arney Guðmundsdóttir talar.
Mikil lofgjörð og kaffihúsa-
stemning.
Allir hjartanlega velkomnir
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13–18.
Nytjamarkaður í Mjódd
opinn þriðjudag til föstudags
kl. 13–18.
Til sölu
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
„Styrkirnir hafa komið sér vel og greitt ung-
um konum leiðina til náms. Slíkt er mikilvægt
því það að afla sér menntunar og þekkingar
er sennilega besta og raunhæfasta leiðin fyr-
ir fólk sem vill brjótast út úr vítahring fá-
tæktar og komast áfram í
lífinu. Okkur finnst mikils
virði að geta hjálpað ein-
mitt með þessu móti,“ seg-
ir Ingibjörg Rafnar Pét-
ursdóttir, formaður
Bandalags kvenna í
Reykjavík.
Á dögunum afhenti
bandalagið í sextánda sinn
styrki úr Starfsmennt-
unarsjóði ungra kvenna.
Tilgangur sjóðsins er að
hvetja og styðja við bakið á konum, einkum
ungum einstæðum mæðrum, sem ekki eiga
kost á námslánum, til að afla sér aukinnar
menntunar.
Margir lagt lið
Alls fengu að þessu sinni tuttugu konur
stuðning til náms á næsta skólaári en í pott-
inum voru alls 2,2 milljónir króna. Misjafnt
var hvað hver kona fékk háan styrk, en þar
var tekið mið af bókakostnaði, skólagjöldum,
aðstæðum og fleiru.
„Við þykjumst vita að margar kvennanna
hefðu ekki farið í nám nema því aðeins að fá
stuðning,“ segir Ingibjörg sem getur þess að
frá því að sjóðurinn var settur á laggirnar
hafi alls 139 konur fengið styrki og upphæðin
sé samanlagt 15,8 millj. kr.
Starfandi sé fjáröflunarnefnd á vegum
sjóðsins sem hafi notið velvildar ýmissa fyr-
irtækja svo sem Sorpu, Landsbankans og Rio
Tinto Alcan. Þá eigi aðild að Bandalagi
kvenna í Reykjavík t.d. kvenfélög kirknanna í
Reykjavík sem og kvennahreyfingar stjórn-
málaflokkanna – og hafi þau lagt peninga í
sjóðinn.
Fundaröð um launamun
Ýmislegt fleira er í deiglunni á vettvangi
Bandalags kvenna í Reykjavík. Nýlega var í
samstarfi við Háskóla Íslands auglýstur til
umsóknar styrkur til rannsóknar og MA-
ritgerðar um birtingarmyndir kvenna í fjöl-
miðlum. „Við teljum að hugsanlega birtist í
fjölmiðlum mynd af lífi og starfi kvenna sem
er einsleit og neikvæð. Rannsóknir á þessu
efni eru nauðsynlegar, þannig að þetta sjáist
svart á hvítu og í krafti þess er hægt að koma
með ábendingar til úrbóta. Þá erum við núna
að undirbúa fundaröð um kynbundinn launa-
mun og nýjustu upplýsingar benda til að þörf
sé á umræðum og ekki síður aðgerðum,“ seg-
ir Ingibjörg.
sbs@mbl.is
Menntun besta leiðin
út úr vítahringnum
Bandalag kvenna í Reykjavík veitir styrki til náms
Hvetja og styðja Konur í fjölmiðlum kannaðar
Lukkulegar Konurnar sem fengu styrki til náms en með þeim opnast nýir möguleikar.
Ingibjörg Rafnar
Pétursdóttir
Þjónustukjarni fyrir fatlað fólk í Kópavogi var
tekinn í notkun á dögunum. Húsnæðið er á Kópa-
vogsbraut og í því eru fjórar íbúðir ásamt að-
stöðu fyrir starfsmenn sem veita eiga íbúum sól-
arhringsþjónustu.
Þegar Kópavogsbær tók við málefnum fatl-
aðra af ríkinu í ársbyrjun 2011 lá fyrir biðlisti
tuttugu einstaklinga eftir húsnæði með sértækri
þjónustu. Strax var hafist handa um að koma
þessu máli í farveg.
Nýr þjónustukjarni var tekinn í notkun 2011
og til viðbótar þeim sem tekinn var í notkun nú í
byrjun mánaðar er hafinn undirbúningur að
byggingu tíu nýrra íbúða. Auk þess er fyrirhugað
að fjölga félagslegum leiguíbúðum til handa fötl-
uðu fólki. Húsnæðið á Kópavogsbraut var að
hluta til í eigu bæjarins en keypt að öllu leyti
seinni hluta síðasta árs. Undanfarna mánuði hef-
ur verið unnið að breytingum.
sbs@mbl.is
Ljósmynd/aðsend
Opnun Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri við opnun þjónustukjarna fatlaðra á dögunum. Gerð
hefur verið gangskör í þjónustu við þann hóp frá því sveitarfélagið tók við þessum málaflokki.
Kjarni við Kópavogsbraut
Fjórar íbúðir fyrir fatlaða í notkun Sólar-
hringsþjónusta Fjölga á félagsíbúðum í bænum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mannlíf Á Hamraborgarhátíðinni í hjarta
Kópavogs sem haldin var nú á dögunum.