Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ | 9
inn á allt augnsvæðið með hyljarabursta nr.
08, sem er nauðsynlegur í burstasettið.
Ljós litur er settur yfir allt augnsvæðið
með bursta nr. 17 og síðan er dökkgræni
liturinn settur á sem lína með bursta nr. 11,
alveg að efri og neðri augnhárum til að for-
ma. Loks er uppáhalds græni liturinn sett-
ur yfir allt neðra augnlokið með bursta nr.
11, gott er að nota bursta nr. 17 til að dreifa
vel svo myndist ekki skil. Undir augabrún-
ir set ég aðeins meiri ljósan skugga og í
augnkrókinn. Það er punkturinn yfir i-ið.
Eyeliner er mjög vinsæll en sumum
konum finnst hann of flókinn. Hér er smá
ráðlegging sem auðveldar verkið: byrjið
að móta með svarta linernum í palett-
unni, hann er frábær í það og auðvelt að
laga ef eitthvað fer út fyrir eða línan
verður of þykk. Leggðu línuna fyrst
með skugganum og finndu þannig
hvernig hún á að vera, þá lita ég í línuna
með blautum eyeliner „Artliner“ því hann
gefur svo mikla fyllingu og smá lakkáferð.
Gangi ykkur vel og munið; æfingin skapar
meistarann!
Maskari:
Hypnôse Drama-maskari frá Lancôme,
svartur, var notaður við förðunina. Hann
lengir, sveigir og þykkir án þess að klessa
augnhárin. Maskari stjarnanna.
Kinnar:
Þegar ég er að velja kinnalit verð ég að
vera búin að ákveða varalit því það er fal-
legra að þeir tóni saman. Kaldur með köld-
um og heitur með heitum. Rauðar varir
urðu fyrir valinu og ætla ég að setja mildan
kaldan kinnalit, Blush Subtil nr. 2. Leggið
hann á eplið (til að finna eplið er best að
brosa þá koma þau strax í ljós), lítið í einu
og strjúkið upp á við og betra að vera ekki
með of stóran bursta.
Varir:
Rauðar varir eru í aðalhlutverki í haust.
En áherslan var á augun og ofgeri ég því
ekki vörunum heldur nota ég mildan rauðan
varalit með glossi, Absolu Nu nr. 102. Þegar
ég legg varalit nota ég alltaf varalitapensil,
þá helst liturinn lengur og verður þéttari.“
Módel: Kristín Liv | Eskimo Models
Förðun: Kristjana Rúnarsdóttir, Nation-
al Make-up artist hjá Lancôme.
jonagnar@mbl.is
Rauðar varir í aðalhlutverki í haust
Fegurð og glamúr eru ávallt
tengd við hátískuborgina
París. Franska snyrtivöru-
fyrirtækið Lancôme er í
fremstu röð á sínu sviði
og það er því vel við hæfi
að setja upp förðunarþátt
með haustlitunum
frá Lancôme.
L
ancôme Paris var stofnað árið 1935
af Armand Petitjean. Í upphafi
stóð hann frammi fyrir þeirri
áskorun að finna nafn sem bæði
gæti staðið fyrir frönsk gæði og
glæsileika og myndi henta fyrir alþjóðlega
uppbyggingu fyrirtækisins. Nánasti vinur
hans, Guillaume d’Ornano, lagði til að nefna
fyrirtækið Lancosme, sem er nafn á mið-
aldakastala í Vendoeuvres og er í hjarta
Frakklands. Stafsetningu nafnsins var síðar
breytt á þann veg sem nafnið er í dag – Lan-
côme. Gegnum tíðina hafa margar af glæsi-
legustu leikkonum heims verið andlit Lan-
côme. Þeirra á meðal eru Isabella
Rossellini, Juliette Binoche, Kate Winslet,
Emma Watson, Penelope Cruz og Julia Ro-
berts. Meðal þeirra fyrirsæta sem hafa setið
fyrir í herferðum fyrirtækisins eru Carol
Alt, Shalom Harlow og Daria Werbowy.
Nýjasta andlit Lancôme er Lily Collins,
dóttir popparans eilífa Phil Collins. Hún
þykir hafa einstaka fegurð til að bera og
hefur frísklegu en um leið fáguðu útliti
hennar verið líkt við sjálfa Audrey Hepb-
urn.
Förðunin sem hér má sjá er með haustlit-
um Lancôme og það er Kristjana Rúnars-
dóttir, National Make-up artist hjá Lan-
côme, sem á heiðurinn af henni. Hún leiðir
okkur hér á eftir í gegnum ferlið við förð-
unina. Gefum henni orðið.
Undirbúningur húðar:
„Svo að förðunin fái að njóta sín þarf húð-
in að vera vel rakafyllt.
DreamTone, nýju húðdroparnir frá Lan-
côme gefa húðinni jafnan húðtón, auk ljóma
og vinna á brúnum blettum. Áferðin er al-
veg dásamleg. Fyrir Kristínu nægir Dream-
Tone undir farðann því ég nota Visinnaire 1
minute blur, frábæran farðagrunn sem er
alveg nýr á markaðnum og einfaldlega sá
besti sem ég hef notað og hef þó prófað þá
marga. Þessi einfaldlega gerir meira. Ég
dúmpa honum létt yfir T svæðið því það er
betri aðferð en að strjúka upp.
Farði:
Teint Miracle farðinn gefur mikinn ljóma
og er fullkominn fyrir Kristínu, hann er létt-
ur en þekur allar ójöfnur. Hennar litur er
númer 01.
Byrjið að setja dropa af farðanum á
handabakið og berið á andlit með farðab-
ursta númer 02. Byrjið frá miðju og stjúkið
til hliðar, forðist að nota of mikinn farða.
Mjög mikilvægt að nota góðan farða-
bursta sem auðveldar og gerir
falleg áferð.
Augabrúnir:
Le Crayon Sourcils auga-
brúnablýantur, millibrúnn,
nr. 30, er mjög auðveldur í
notkun.
Þar sem Kristín hefur
vel mótaðar augabrún-
ir, notaði ég blýantinn
aðeins til að fylla upp
í augabrúnirnar.
Augnförðun:
Áhersla er lögð á
augnförðun og
nota ég til þess
Hypnôse Star
nr. 2 Khaki
Chic palettu
sem inniheld-
ur 5 augn-
skugga, allt
sem þú þarft
fyrir dag og
kvöldförðun;
2 fallega
græna tendr-
andi tóna, 2
ljósa tóna og
eyeliner.
Effacernes-
hyljarinn er frábær sem
augngrunnur og er bor-
Morgunblaðið/Golli
Barwerd van der Plas for Lancôme ©2013
Gullfalleg Hin 24 ára
gamla Lily Collins er
sannarlega glæsileg.
Hún er nýtt andlit
Lancôme.
Förðunin sem hér
má sjá er með
haustlitum Lancôme.