Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11 Þ rátt fyrir að hafa aldrei smíðað jafn flotta, jafn örugga, jafn sparneytna og jafn vistvæna bíla hefur árað heldur illa fyrir frönsku bílrisunum Peugeot, Citroën og Renault undanfarin misseri. Mega þeir allir muna fífil sinn feg- urri hvað afkomu snertir. Ástæðan er einkum samdráttur í bílakaupum á krepputíma. Svo höllum fæti stendur til að mynda sameinað fyrirtæki Peugeot og Citroën (PSA), að það hefur átt í viðræðum um sölu á stórum skerf samsteypunnar til kínverska bíla- smiðsins Dongfeng og að franska ríkið bjargi því frá þroti með kaup- um á öðru eins af hlutabréfunum. Sú tilhugsun að Kínverjar eign- uðust um þriðjung í PSA/Peugeot- Citroën hefur ekki hugnast Frökk- um vel og þeir hafa óttast að þetta yrði kannski bara byrjunin og að síð- ar meir kæmist fyrirtækið undir full yfirráð austanmanna, rétt eins og margt frægt víngerðarhúsið í helstu vínræktarhéruðum landsins. Svo erfið er tilhugsunin um missi þess- ara rótgrónu frönsku tákna mörg- um, að þeir hinir sömu telja víst að stofnendurnir, Armand Peugeot, Andre Citroën og bræðurnir Louis, Marcel og Fernand Renault myndu velta sér í gröfum sínum við maka- skiptin. Í bili anda Frakkar léttar því nú í októberlok tók iðnaðarráðherrann Arnaud Montebourg, sem hvatt hef- ur Frakka til að kaupa franskt hand- verk í stað útlends, af skarið. Hann lýsti því yfir afdráttarlaust að PSA/ Peugeot-Citroën yrði áfram franskt fyrirtæki um ókomna tíð. Í samtali við blaðið Le Parisien sagði hann að höfuðstöðvar PSA yrðu áfram í land- inu. Með því væri þó ekki sagt að ekki gæti orðið af því að Kínverjar fjárfestu í því. Af orðum fjármálaráðherrans Pierre Moscovici í byrjun þessarar viku er PSA nánast í gjörgæslu rík- isstjórnarinnar, en óhjákvæmilegt virðist að hún komi að endur- fjármögnun samsteypunnar. Mosco- vici tók undir með Montebourg í við- skiptablaðinu Les Echos að PSA yrði áfram að vera franskt fyrirtæki. Þrátt fyrir samkomulag við starfs- menn um meiri vinnu án endurgjalds gegn því að frekari fækkun starfs- manna eigi sér ekki stað hefur mark- aðurinn efasemdir um framtíðina og fyrirhugaða hlutafjáraukningu upp á þrjá milljarða evra. Lækkuðu þannig hlutabréfin í PSA um 6% sl.mánudag og skruppu niður fyrir 10 evrur á hlut. Á fyrri helmingi ársins var 510 milljóna evra hallarekstur á sam- steypunni. PSA hefur ekki viljað tjá sig um hugsanlega aðkomu Dongfeng að hlutafjáraukningunni en staðfestir einungis, að verið sé að skoða ný við- fangsefni á sviði bílsmíði og reksturs við nokkra samstarfsaðila. Fyr- irtækið greip fyrr á árinu til fækk- unar starfsfólks og dró úr afköstum, m.a. með lokun verksmiðja. Í fyrra gekk það til samstarfs við banda- ríska bílrisann General Motors og seldi honum hlut sem fól í sér eins milljarðs evra hlutafjáraukningu. Samkvæmt áætluninni hefði Peu- geot-fjölskyldan misst yfirráð í PSA því fjárhagslega innspýtingin hefði þynnt 25,4% hlut hennar og sömu- leiðis 38,1% atkvæðamagns hennar. Í millitíðinni hefur GM dregið úr samstarfinu við PSA og hafnaði bandaríski bílrisinn meðal annars til- boði um samruna sem franska stjórnin er sögð hafa verið meðmælt. Eru viðræður PSA við Dongfeng sagðar hugsanleg skýring á því að GM hefur kippt að sér höndum, með- al annars um sameiginlega þróun nýs undirvagns fyrir bíla af smærri gerð, í stærðarflokki Citroën C3 og Peugeot 208. Meðal þeirra mögu- leika sem þó eru sagðir nú uppi á borðum er nýtt og aukið og enn dýpra samstarf við General Motors. Á fjármálamarkaði gætir óþols vegna hugsanlegrar aðkomu Dong- feng en það hefur þótt fara sér mjög hægt og hikandi í viðræðum við stjórnendur PSA. Peugeot- fjölskyldan hefur í tengslum við við- ræðurnar við Dongfeng gefið til kynna að hún sé reiðubúin að afsala sér yfirráðum í PSA. Talsmaður þessa næst stærsta bílsmiðs Kína segir að verið sé að skoða „skyn- semi“ hugsanlegra hlutafjárkaupa og fyrirtækið yrði að telja sér hag í því. Fyrirtækin tvö eiga í samstarfi um bílaframleiðslu í Kína. Enn eitt útspilið sem verið er að skoða er að PSA losi sig við bílalána- banka sinn og selji hann spænska bankanum Santander, að sögn fréttavefjarins boursier.com. Meira fer fyrir PSA í fréttum und- anfarið en Renault sem verið hefur stærsti fólksbílaframleiðandi Frakk- lands. Þótt það glími við erfiðleika vegna samdráttar í bílasölu eru þeir lítilræði í samanburði við vandamál PSA. Hjálpar þar til að Renault náði mun fyrr fótfestu á vaxandi mörk- uðum með samstarfi um bílsmíði í t.a.m. Rússlandi, Kína og Brasilíu. Þá hafa kaup þess á rúmenska fyr- irtækinu Dacia reynst gjöful. Á þriðja fjórðungi drógust sölutekjur Renault saman um 3,2% frá fyrra fjórðungi og nam það 8 milljörðum evra, vegna gengisbreytinga og stöðvunar starfsemi í Íran. Stjórnendur Renault sögðu við birtingu uppgjörs fyrir helgi, að útlit væri engu að síður fyrir að bílasala þess yrði meiri í ár en í fyrra og rekstrarafgangur yrði jákvæður. Nýskráningar Renault, Dacia og Samsung merkja hefði aukist um 3,1% í júlí til september. Þá hefði bílasala þess í Evrópu aukist um 2,5% og horfur væru á að markaður- inn væri að hætta að dragast saman. Renault hefur verið í fararbroddi í þróun og smíði rafbíla, framleiðir fimm mismunandi gerðir slíkra. Er hlutdeild þess í rafbílamarkaði í Evr- ópu 47% það sem af er ári. Þar fyrir utan eru helstu sölubílar Renault í ár Mégane og Clio. Nýjar útgáfur þess- ara bíla hafa séð dagsins ljós reglu- lega og eiga þessir tveir bílar, ásamt bílum Dacia, stærstan þátt í því að bílasala Renault á heimsvísu hefur aukist í ár. Búast má við að á næsta ári verði hinn nýi jepplingur Captur helsta skrautfjöður Renault en hann hefur rokselst undanfarið, ásamt nýrri og mjög útlitsbreyttri kynslóð Scenic. Citroën hefur verið að ná elds- neytisnotkun bíla sinna niður og los- ar smíðisfloti þess aðeins 125,7 g/km af gróðurhúsalofti. Aðeins Fiat stendur framar með 118,3 g/km og Toyota er í þriðja sæti með 126,2 g/ km. Þarna eiga stærstan hlut að máli C1, C2, C3 og DS3. Eitt helsta stolt Peugeot um þess- ar mundir eru nýr 208 Gti og hinn nýi 308-bíll. Hann hefur hlotið fá- dæma góða dóma, aksturseiginleikar sagðir einstakir á hvaða árstíð sem er og hvaða undirlagi sem er. Er hann jafnvel sagður bestur í sínum stærðarflokki bíla. Hann er byggður á hinum nýja EMP-P undirvagni sem er 80 kílóum léttari en áður. PSA er fyrsti bílsmiður heims til að smíða tvinnbíl með dísilvél auk rafmótors sem losar minna en 100 grömm af koltvíildi á kílómetra. Þar er ekki um smábíl að ræða, heldur 200 hestafla fjórdrifinn Peugeot 3008. Þessi bíll með brunavél ein- vörðungu er einna söluhæsti bíll PSA í dag ásamt lengri útgáfunni, 5008, og nýrri kynslóð Citroën C4 Picasso. Þá hefur Peugeot 2008, sem brúar notagildi fólksbíls og fjölnota- bíls, rokselst undanfarna mánuði. Aftur á móti er útlit fyrir að tveggja dyra bílar og blæju- eða felliþaks- bílar á borð við 206CC, 207CC og 308 CC séu á útleið vegna tregrar sölu. Í fyrra sendi PSA frá sér sinn fyrsta Peugeot 208 sem búinn er þriggja strokka bensínvél. Stenst hann bílum VW og Ford í þessum stærðarflokki snúning hvað varðar bensínnotkun og mengun. Fyr- irtækið – og einnig Renault – hafa þrátt fyrir erfiðleika og kreppu ekki slakað á þróunarvinnu og búast má við nýjum hugmyndabílum frá þeim, ekki hvað síst í tengslum við bílasýn- inguna í París að ári. Skýrast mun á næstu vikum og mánuðum hvernig endurreisn PSA reiðir af. Mun það að einhverju leyti haldast í hendur við þróun efnahagsmála, en fremur horfir þar á verri veg í Frakklandi en sókn á erlenda og rísandi markaði gæti vegið þar á móti. agas@mbl.is Kunna enn að búa til fína bíla Samdráttur í bíla- kaupum hefur komið illa við frönsku bíla- risana Citroën, Ren- ault og Peugeot. Þeir luma þó á ýmsum trompum í ermunum og nýir spennandi bílar eru á leiðinni. Frumherjinn Fyrsti smíðisbíllinn úr bílsmiðjunni Aulnay, árið 1973, var Citroën DS. PSA Eðalvagn Aksturseiginleikar hins nýja Peugeot 308 eru sagðir einstakir á hvaða árstíð sem er og hvaða undirlagi sem er. Sagður bestur í sínum stærðarflokki bíla. Söluvænn Nýr jepplingur, Renault Captur, hefur rokselst að undanförnu. Vinsæll Fjórar mismunandi útgáfur af Renault Mégane af 2014 árgerð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.