Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2014 ✝ IngibjörgMagnúsdóttir, húsfreyja á Stóra- teig 42 í Mos- fellsbæ, áður á Ein- imel 9 og Langholtsvegi 54 í Reykjavík, fæddist í Miklaholti á Snæ- fellsnesi 17. apríl 1929. Hún lést á lungnadeild Land- spítalans að morgni nýársdags. Ingibjörg var dóttir hjónanna Ásdísar Sigurðardóttur, ljós- móður og húsfreyju í Miklaholti, f. 1884, d. 1965, og Magnúsar Sigurðssonar, bónda í Mikla- holti, oddvita og organista, f. 1883, d. 1979. Systkini Ingi- bjargar voru Sigurður, blaða- fulltrúi hjá Loftleiðum, f. 1911, d. 1989, Kristín, húsfreyja á Siglufirði, f. 1913, d. 1949, Guð- ríður, kennari, f. 1918, d. 1990, og Þórður, kennari, f. 1922, d. 1991. Ingibjörg giftist hinn 28. október 1950 Magnúsi Jónssyni, fv. bankastjóra Búnaðarbank- ans, þingmanni og fjár- málaráðherra, f. 7.9. 1919, d. 13.1. 1984. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Magnúsdóttir, húsfreyja á Mel í Skagafirði, f. 1894, d. 1979, og Jón Eyþór Jón- asson, bóndi á Mel, f. 1893, d. 1982. Börn Ingibjargar og fyrir dugnað og eftirsótt til vinnu. Hún var orðin ritari í fjármálaráðuneytinu 18 ára að aldri. Þar kynntist hún Magnúsi og giftu þau sig í Reynistað- arkirkju haustið 1950. Fljótlega var sveitastúlkan frá Miklaholti orðin tveggja barna móðir og húsmóðir á gestkvæmu heimili stjórnmálamanns. Allir sem til þekkja vita hve stóran þátt Ingibjörg átti í lífi og starfi Magnúsar. Heimili þeirra var bæði félagsheimili og hótel fyrir ættingja og fjöl- marga vini utan af landi. Ingi- björg laðaði að sér fólk úr öllum stéttum og kom eins fram við alla. Hún var listakokkur og veislur hennar orðlagðar. Ævi- starf hennar eins og svo margra íslenskra kvenna var húsmóður- starfið. Hún var jafnframt ólaunaður aðstoðarmaður þing- manns og ráðherra ef út í það er farið. Eftir lát Magnúsar 1984 stóð Ingibjörg áfram vaktina á Stórateig 42 þar til um miðjan desember síðastliðinn. Margir lögðu leið sína til hennar og komu ætíð ríkari af hennar fundi. Ingibjörg starfaði með Thor- valdsensfélaginu frá árinu 1970, var auk þess í stjórn BKR, KÍ, Orlofsnefndar húsmæðra og fulltrúi í Jafnréttisráði. Hún hvatti konur til að taka sig sam- an, t.d. á landsbyggðinni, og stofna fyrirtæki. Hún var mikil sjálfstæðiskona og jafnrétt- issinni alla tíð. Útför Ingibjargar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 13. jan- úar 2014, klukkan 15. Magnúsar eru: A. Kristín, kennari í Austurbæjarskóla, f. 25.11. 1951, maki Bragi Sigurðsson kennari, f. 1952. Börn Kristínar og fyrri manns henn- ar, Torfa K. Stef- ánssonar, f. 1953, eru: 1) Theodóra Anna, f. 1974, maki Emil Örn Ásgeirs- son, barn Magnús Ýmir, f. 2007. 2) Embla, f. 1976, maki Bjarni Bærings Bjarnason. 3) Ingi- björg, f. 1980, barn Kristín María, f. 2009. 4) Illugi, f. 1982, maki Vala Smáradóttir, börn Þórey, f. 2011, og Lilja Kristín, f. 2013. 5) Hildur, f. 1990, maki Gísli Finnsson, barn Amelía Rós, f. 2011. 6) Vésteinn, f. 1992. B. Jón, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, maki Elín Helga Sigurjónsdóttir bóndi, f. 1961. Börn Jóns og fyrri konu hans, Erlu Hrannar Sveinsdóttur, f. 1955, eru: 1) Magnús, f. 1976, maki Sigurrós Jakobsdóttir, f. 1976, börn Jón Arnór, f. 2008, og Hinrik Aron, f. 2009. 2)Anna Katrín, f. 1982, barn Embla Mey Thorarensen, f. 2002. Börn El- ínar og fósturbörn Jóns eru: Dagur, f. 1990, Jóhannes Ingi, f. 1993, Kristín Rós, f. 1999, og Ingigerður, f. 2002. Ingibjörg varð ung orðlögð Að leiðarlokum fyllast hugir trega, en góðar minningar frá langri vegferð fylla hjörtu ljósi og hlýju. Þakklæti er þó öllu öðru yfirsterkara þegar við hugsum til móður okkar. Þakk- læti fyrir lífið, ástina og stuðn- inginn sem hún veitti af örlæti sínu alla tíð. Það eru vissulega forréttindi og gæfa að fá að alast upp í faðmi góðra foreldra og fyrir það verður seint fullþakkað. Að lýsa verðleikum hjartkærr- ar móður er ekki á okkar færi hér. Þeir sem þekktu Ingibjörgu Magnúsdóttur vita að þar fór einstök manneskja sem gædd var vináttu og örlæti til jafns við áræði og dugnað. Þeir sem búa yfir þeim eiginleikum ásamt ráð- deild og útsjónarsemi teljast góðir stjórnendur. Allir afkom- endur „ömmu í Mosó“ þekkja af eigin raun, hve gott er að lifa í skjóli leiðtoga sem hennar og fá að njóta þeirrar kærleiksríku leiðsagnar sem hún veitti. Þær vörður sem móðir okkar reisti á sinni lífsleið voru af ýms- um toga. Sem byggingarstjóri tók hún að sér að reisa fjölskyldunni heimili vestur á Einimel, en hún helgaði sig þeirri nýbyggingu allt frá grunni til síðasta nagla. Var það mál iðnaðarmanna sem að komu, að aldrei hefðu þeir kynnst konu sem sýndi af sér meiri útsjónarsemi, betri verk- stjórn eða skemmtilegri fé- lagsskap. Smiðir jafnt sem múr- arar sögðu stoltir að hún væri ein af þeim. Sem atorkukona réðst hún í það að búa fjölskyldunum sælu- reit í Arnarbæli ásamt föður okkar, Guðríði systur sinni og Róbert manni hennar. Þar reis veglegt sumarhús og plantað var trjágróðri af miklum móð. Í dag er í Arnarbæli yndisleg paradís allra afkomenda þeirra systra. Sem sveitakona vann hún á Mel öll sumur í heyskap meðan afi og amma bjuggu þar. Við systkinin vorum oftast komin í sveitina strax að loknum skóla á vorin og eftirvæntingin daginn sem von var á pabba og mömmu er ógleymanleg. Þá var staðið á hlaðinu á Mel og beðið eftir að bíllinn þeirra birtist við Ármúla- hornið. Sú bið var sem betur fer yfirleitt stutt, því mamma var oftast við stýrið og setti stundum hraðamet á þessari leið. Þegar komið var að Mel var strax hafist handa og ekki leyndi sér gleði- svipurinn á afa þegar hann stóð með mömmu í flekknum og allt gekk á undrahraða. Hann hafði á orði, að aldrei hefði hann séð konu slá jafn hratt og vel með orfi og ljá. Sem eiginkona var hún föður okkar ómetanleg stoð og ráðgjafi á flóknu taflborði stjórnmálanna, en þar hafði hún skýra sýn allt sitt líf. Veislurnar á Einimel voru orðlagðar. Húsfreyjan leysti þau verkefni sem önnur af stakri prýði og meistarataktar hennar í þeim efnum nutu sín til hinsta dags. En styrkurinn sem móðir okkar bjó yfir kom best í ljós í veikindum föður okkar, þegar hún gerði honum fært að sinna fullu starfi í 10 ár þrátt fyrir verulega hreyfihömlun. Sú fal- lega mynd af samstöðu og dugn- aði hjóna mun seint gleymast þeim sem sáu. Sem móðir er hún kvödd í dag með söknuði og trega. En lífs- gleði hennar og styrkur lifir áfram með okkur sem nutum hennar. Takk fyrir allt og allt, elsku mamma. Kristín og Jón. Nýtt ár er gengið í garð. Þetta ár verður ólíkt öllum mínum fyrri árum. Í fyrsta sinn er líf mitt án ömmu í Mosó. Á meðan flestir fögnuðu nýju ári með sprengjum og gleði þá kvaddi elsku amma mín, Ingibjörg Magnúsdóttir, þetta líf. Barátt- unni við erfið veikindi var loks lokið. Amma mín var hörkutól og það fór henni ekki vel að vera veik, hún hafði alltaf verið full orku og hreysti, og fram að lok- unum þá trúði ég því innst inni að ekkert gæti fellt hana. En eitt sinn verða allir menn að deyja. Það eru forréttindi að hafa þekkt ömmu og mikill heiður að vera afkomandi hennar og Magnúsar afa. Amma var stór- kostleg manneskja sem kenndi mér svo endalaust margt um líf- ið. Amma hafði svar við öllu og var alltaf með báða fætur á jörð- inni. Hjá ömmu voru engin vandamál, eingöngu lausnir. Það var alveg sama hvaða mál maður kom með til ömmu, alltaf hlust- aði hún og gaf manni ráð. Hún gat alltaf hjálpað manni aftur á rétta braut og hvatt mann áfram í hverju sem maður tók sér fyrir í lífinu. Amma sá alltaf það besta í öllum. Amma var gullfalleg að innan sem að utan. Amma var stórtæk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hvort sem það sneri að félagsmálum, fjölskyldunni eða heimilinu. Arn- arbæli, bústaðurinn sem amma, afi, Guðríður og Róbert byggðu, er heimili okkar allra að heiman. Fallega húsið, allur gróðurinn og fjallháu trén standa nú til minn- ingar um alla þá vinnu sem þau unnu fyrir fjölskylduna, heilagur staður í huga okkar sem áfram lifum. Allar þær yndislegu stundir sem ég átti með ömmu, flestar við borðið á Stórateign- um, drekkandi kaffi og njótandi góðra veitinga, spjallandi um líf- ið og tilveruna, eru nú minningar einar. Minningar sem munu lifa með mér. Elsku amma, það verður erfitt að venjast lífinu án þín, en ég hef að leiðarljósi orð þín „Ég fyllist ekki beiskju yfir því sem frá mér var tekið, heldur þakklæti fyrir það sem mér hafði verið gefið.“ Takk, amma í Mosó, fyrir allar stundirnar, fróðleikinn, ástina og gleðina sem þú hefur gefið mér. Þú munt alltaf lifa í hjarta mínu. Nú er kominn tími til að afi fái aftur að njóta þín eftir langa bið, sé hann fyrir mér horfa dreymn- um augum á ástina sína einu. Anna Katrín Jónsdóttir. Þá er elsku amma dáin. Í mörg ár ef mér leið illa eða eitt- hvað gekk á bað ég: Elsku Guð, bara ekki láta ömmu deyja! Það fannst mér versta tilhugsun í heimi. Ég gæti gengið í gegnum allt annað, en ekki það. Amma var akkerið, amma var til, amma, elsku amma. Ég held ef amma vissi hve margir og hve heitt fólk elskaði hana hefði hún fengið áfall. Í tvö ár bjó ég með henni ömmu, það voru mikil forréttindi og ég verð ævinlega þakklát er ég minnist þess tíma. Hún dæmdi mig aldrei, hún byggði mig bara upp. Hún varð aldrei pirruð eða önug. Ef hún reiddist var það réttlát reiði. Þá gat hún rokið upp en það var fok- ið úr henni jafnóðum. Var hún oft aum á eftir og sagðist vera „bölvaður hrútur“. Skipti þá engu þótt hún hafi sagt eitthvað sem hitti naglann beint á höfuðið og maður þurfti sannarlega að heyra. Amma var svo ótrúlega snjöll og full af visku. Það var mikið hlegið. Stund- um leigðum við gamanmyndir og hlógum dátt. Ég stóð sjálfa mig að því að fylgjast með ömmu, ástaraugum og athuga hvort hún myndi hlæja að því sem mér fannst fyndið. Ég gat oft gleymt mér við að horfa á hana ömmu. Það sem hún gat hlegið! Hún var ýmsum hæfileikum gædd og sumt hef ég reynt að apa eftir henni. Hún var nýtin fram í fingurgóma, gat einhvern veginn alltaf galdrað fram veislu úr afgöngum, hve margir birtust í mat þann daginn var algert aukaatriði. Engar uppskriftir því miður, bara lúka af þessu og hinu og maður reyndi að skrifa þetta niður en aldrei tókst það eins vel og hjá henni. Hún var manna fljótust að taka upp kartöflur, man þegar hún tók þrjár raðir og ég eina og hálfa, þó var það ég sem stakk upp á að við færum í keppni. Skil ekki enn hvernig hún fór að þessu áttræð konan. Hún var fljót að öllu. Að þrífa, elda, raka gras, hún meira að segja varalit- aði sig hratt með því að lita efri og neðri vör á sama tíma. Hún var sterk, það var ómögulegt að opna kókflösku sem hún hafði lokað. Hún var líka svo glæsileg, öll föt fóru henni vel. Hún var með munninn fyrir neðan nefið og var einstaklega fyndin. Hún vissi allt um alla, las öll blöð og horfði á fréttatíma á báðum stöðvum. Það var ekki hægt að reka hana á gat. Þegar við frændsystkinin spiluðum Trivial þurfti að passa að lesa ekki upp spurningu þegar amma gekk framhjá, hún stóðst oft ekki að svara, rak svo upp hlátursroku á eftir. Hún hló oft og hátt hún amma. Ég heyri hláturinn enn. Reyndar var hún eiginlega alltaf glöð, og alltaf ánægð með sig. Hún var Háfótur frændi sagði hún, hún var svo heppin í lífinu. Ef eitt- hvað gott skeði var það alveg fyrirsjáanlegt af hennar hálfu, „þetta hlaut að fara svona, ég er svo heppin“. Amma var aldrei neikvæð eða svartsýn. Hún horfði heldur ekki til baka eða sá eftir hlutunum. Amma, takk fyrir mig, takk fyrir allt. Nú ertu hjá afa og ég veit að hann er svo glaður. Ég sé ykkur í anda skælbrosandi og nú horfir hann á þig ástaraugum. Ég elska þig, meira en orð fá lýst. Ingibjörg Torfadóttir. Ingibjörg Magnúsdóttir, ætt- arhöfðinginn, amma í Mosó eða amma „langa“ eins og hún var gjarnan kölluð af langömmu- börnum sínum, er látin. Ingi- björg var stórmerkileg kona. Hún var góðhjörtuð og kærleiks- rík og sérstaklega ákveðin. Mað- ur rökræddi ekki við ömmu í Mosó. Lífið var henni gott en einnig ákveðin þrautaganga. Ung missti hún móður sína. Síð- ar missti hún Magnús, eigin- mann sinn, á besta aldri og að- eins nokkrum árum síðar þrjú systkini sín á örfáum árum. Þeg- ar ég gekk í gegnum það að missa móður mína og báðar ömmur á mjög stuttum tíma töl- uðum við Ingibjörg um hennar reynslu og miðlaði hún til mín með hvernig hugarfari maður kæmist í gegnum slík áföll. Mað- ur heldur áfram að lifa, jákvæður og þakklátur fyrir það sem mað- ur átti, og þannig kvaddi hún líka þennan heim sjálf, bæði þakklát og hamingjusöm. Ingibjörg var sérstaklega gjafmild kona og lifði svo sann- arlega eftir því spakmæli að sælla sé að gefa en þiggja, en í áraraðir gaf hún vinnu sína ýms- um félagasamtökum. Hún var einnig gjafmild við fjölskyldu sína og vini, en þegar kom að af- mælis- og jólagjöfum, veislum og öðrum hátíðarhöldum var ekkert til sparað. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Ingibjörgu, hún kenndi mér mikið, og þótt dætur mínar séu of ungar til að muna mikið eftir henni þá skulum við Illugi sjá til þess að þær viti hver langamma þeirra var og eftir hvaða gildum hún lifði. Hvíldu í friði elsku Ingibjörg. Fegraðu umhverfi þitt með gjöfum. Stráðu fræjum kærleika og umhyggju. Og þín verður minnst sem þess sem elskaði, þess sem bar raunverulega umhyggju fyrir fólki. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þín Vala Smáradóttir. Elsku amma mín. Með trega kveð ég þig og horfi til baka með jákvæðum augum til allra gleði- stundanna sem við áttum saman. Þú varst góð, kærleiksrík, ákveð- in og umfram allt jákvæð mann- eskja. Þegar ég heimsótti þig á spítalann um jólin sagðir þú við mig: „Það hefur alltaf verið hlýtt á milli okkar, Illugi minn.“ Þú hafðir einstakt lag á því að segja eitthvað fallegt við mig sem lét mér líða vel með sjálfan mig. Það er svo margt sem þú gerðir sem maður getur verið þakklátur fyrir. Það sem ég er einna þakklátastur fyrir er hversu mikið ég lærði af þér. Í mínum augum varst þú alltaf of- urkona og mikil fyrirmynd. Ég man þegar þú veittir mér tiltal vegna drykkju minnar. Ég gleymi ekki skömminni og eft- irsjánni sem ég fann. Að þú skyldir þurfa að sjá mig í svona ömurlegu ástandi. Þú studdir mig alltaf í því að hætta neyslu og er það í raun þér að þakka að ég leitaði mér í fyrsta skipti að- stoðar sem var upphafið að því að ég öðlaðist bata. Þú varst svo ánægð að vita til þess að ég mætti á fundi og væri í bata. Þú hafðir iðulega orð á því að afi minn hefði verið bindind- ismaður og einn helsti stuðnings- maður SÁÁ í sinni stjórnartíð. Leitt að ég fékk aldrei að kynn- ast honum. Ég er viss um að það mun ríkja mikil gleði við ykkar endurfundi hinum megin. Minningin um þig er mér mik- il hvatning og mun hún fylgja mér alla ævi. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, Það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri’ en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) Illugi. Hjarta mitt brast er ég fékk símtal á nýársnótt og fékk frétt- irnar um að hún amma mín væri látin. Amma í Mosó! Ég hélt að hún myndi lifa okkur öll, það seig var þessi elskulega en ákveðna kona. Hún var kletturinn í lífi okkar svo margra, sem var svo gott að halda sér í. Er eitthvað bjátaði á, þá var leitað til ömmu sem var einhver úrræðabesta manneskja sem ég hef nokkurn tíma kynnst. Við áttum margar góðar stundir saman og mér er sér- staklega minnisstætt er hún bauð mér með sér til New York er ég var ungur maður. Hún tók koddann sinn góða með í vélina og svaf eins og ungbarn á meðan ég þurfti að hugga móðursjúka konu er sat mér við hlið, enda var lendingin erfið, ekkert rask- aði ró ömmu. Ég lenti svo í því að landamæraeftirlitið stoppaði mig en amma þrammaði beint í gegn og leit ekki tilbaka enda verald- arvön manneskja á ferð. Ég slapp þó í gegn á endanum og hitti hana á ný við töskubeltið þar sem hún býsnaðist yfir þess- um drollaskap í stráknum en hafði engan tíma til að heyra hvað hefði gerst, við þurftum að drífa okkur á hótelið. Er þangað var komið reif hún upp smurt að heiman með rúllupylsu og kæfu og hafði svo hamstrað rauðvín í vélinni. Þvílík veisla, maður kom aldrei að tómum kofanum hjá ömmu. Við fengum herbergi á þriðju hæð við umferðargötu sem var ansi hávaðasamt, við ræddum morguninn eftir að við hefðum nú getað verið heppnari en drifum okkur bara í rútuferð til að skoða borgina. Amma sagði svo á miðri leið að sér væri kalt og að hún ætlaði að fara á hótelið en ég skyldi halda áfram og klára. Þeirri ákvörðun varð ekki haggað frekar en mörgum. Ég kom síðan á hótelið og lykillinn virkaði ekki að herberginu og enginn þar. Úff. Hvað hafði orðið af henni ömmu? Ég fór í mót- tökuna og sagði frá vandræðum mínum, þá var sagt: „Ms. Magn- úsdóttir has moved to the suite on the top floor“, ég fékk nýjan lykil og maður lifandi, amma hafði reddað svítunni á hótelinu og tók á móti mér þar með veislu að sjálfsögðu. Þetta er ferð sem ég gleymi aldrei. Hún sagði allt- af: „Ef maður ætlar að gera eitt- hvað þá á maður að gera það vel og með stæl.“ Það gerði hún svo sannarlega. Við áttum marga rökræðuna í eldhúsinu yfir pottunum, sælker- arnir, henni þótti gaman að skiptast á skoðunum við pjakk- inn sem þóttist eitthvað geta með svuntuna. Það endaði jafnan „puff, jæja Maggi minn“, sem þýddi í raun „ég veit að ég hef rétt fyrir mér en ætla að leyfa þér að spreyta þig en það er betra fyrir þig að klúðra þessu ekki“. Við Rósa, Jón og Hinrik erum svo þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér og mun ég sjálfur sakna þess mikið að geta ekki rökrætt málin við þig. Þú sagðir ávallt að hver væri sinnar gæfu smiður og þú værir sjálf eins og Hábeinn heppni. Ég held að þetta sjón- armið þitt hafi verið þú í hnot- skurn; takast á við vandamálin sem koma upp í lífinu og leysa en lifa svo lífinu lifandi og án eft- irsjár. Þótt við munum sakna þín sárt er það engu að síður sárabót að afi fær þig í hendur á ný eftir langa bið, ég er viss um að það er veisla í gangi og gleði í efra. Magnús Jónsson. Nú er skarð fyrir skildi. Ingi- björg Magnúsdóttir móðursystir mín er farin á fund forfeðra okk- ar. Ingibjörg var einstök kona, ráðagóð, rausnarleg bjartsýnis- manneskja sem alltaf horfði fram á veginn. Dugnaður hennar var ótrúlegur og þegar hún gekk að verki, hvort sem það var trjá- rækt, húsbyggingar, góðgerðar- starfsemi, veisluhöld eða annað, þá var það sem fram færi heil herdeild en ekki ein kona. Ingibjörg var alla tíð mikil sjálfstæðiskona með brennandi áhuga á þjóðfélagsmálum. Hún hafði yndi af að ræða hin ýmsu sjónarmið og þrátt fyrir aldur, og undir lokin erfitt sjúkdóms- ferli, hafði hún gaman af pólitík og fylgdist afskaplega vel með fréttum, mönnum og málefnum. Með eigin vinnusemi og ákveðni, samfara góðlátlegum og réttsýnum hætti, tókst henni að kveikja framkvæmdagleði hjá öðrum og jafnvel koma húðlet- ingjum að hinum ýmsu verkum, þar með töldum undirrituðum. Það er alltaf erfitt að skilja við nána ættingja, ekki síst þegar um er að ræða akkeri fjölskyld- unnar, á hvers heimili ungir sem aldnir hafa átt athvarf um árabil. Það er þó huggun harmi gegn að hún kvaddi þennan heim sátt Ingibjörg Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.