Monitor - 30.01.2014, Blaðsíða 22

Monitor - 30.01.2014, Blaðsíða 22
American Hustle er nýj- asta mynd leikstjórans Davids O. Russell sem á undanförnum árum hefur gert hinar stórgóðu myndir Silver Linings Playbook og The Fighter. Hann sækir einmitt leikarana fyrir American Hustle úr hinum tveim mynd- unum, Christian Bale og Amy Adams úr The Fighter og Bradley Cooper og Jennifer Lawrence úr Silver Linings Playbook. American Hustle segir frá Irving Rosenfeld, leiknum af Bale, sem hefur gabbað fólk til að gefa sér peninga alla ævi. Hann ásamt samstarfskonu sinni og hjákonu Edith, Adams, hafa gert það gott í svikamyllunum í langan tíma þegar þau lenda í höndunum á FBI-fulltrúanum Richie DiMaso, Cooper. DiMaso þvingar þau til þess að vinna með sér og fallast þau á það. Richie er metnaðar- fullur FBI-fulltrúi á uppleið og lætur hann metn- aðinn fara frammúr sér sem skapar gríðarleg vandræði fyrir Irving og Edith sem þurfa að taka á honum stóra sínum til að halda sér úr fangelsi og jafnvel á lífi. American Hustle er fínasta mynd og handritið er alveg þokkalegt. Leikstjórinn gerir ágætlega í að halda spennunni gangandi og flæðir myndin þokkalega vel og endar með ákveðnum hvelli. Það sem setur þessa mynd samt uppá hærra plan eru leikararnir. Christian Bale sýnir enn og aftur hversu fær leikari hann er og er hann nánast óþekkjanlegur miðað við fyrri hlutverk. Bradley Cooper heldur síðan áfram að sanna sig sem virkilega flottur leikari og stendur sig mjög vel í þessari mynd. Þær Amy Adams og Jennifer Lawrence, eru síðan frábærar og þá sérstaklega Lawrence að mínu mati sem er á góðri leið með að verða ein af skærustu stjörnum Hollywood, gjörsamlega frábær. Jeremy Renner stendur sig líka vel í minna hlutverki og eðaltöffarinn og reynsluboltinn Robert De Niro á líka flotta og skemmtilega innkomu. American Hustle er flott mynd sem heldur manni vel á tánum. Leikarahópurinn gerði myndina og eiga þau öll sína óskarstilnefningu fyllilega skilið. Ekki er allt sem sýnist! kvikmynd AmericAn hustle ívar orri Verðlaunamyndin Dallas Buyers Club, með Matthew McConaughey, Jennifer Garner og Jared Leto, verður frumsýnd á föstudaginn, 31. janúar. Um miðjan níunda áratuginn fær kvennaljóminn og rafvirkinn Ron Woodroof (McConaughey) þau hörmulegu tíðindi að hann sé með alnæmi og eigi bara 30 daga eftir ólifaða. Hann stelur AZT-lyfjum í von um að þau vinni bug á sjúkdómnum, en meðferðin ber engan árangur. Hann ákveður því að leita óhefðbundinna lækninga og smyglar ósamþykktum lyfjum til Bandaríkjanna. Hann slæst í hópinn með öðrum alnæmissjúklingi, Rayon (Leto), og hefst handa við að selja lyfin til vaxandi fjölda fólks sem getur ekki beðið eftir að heilbrigðisyfirvöld komi því til bjargar. Dallas Buyers Club er tilnefnd til 6 óskarsverðlauna, m.a. sem besta myndin, og fékk tvö Golden Globe- verðlaun fyrir besta leikarann í aðalhlut- verki (McConaughey) og besta leikarann í aukahlutverki (Leto). skjámenning Frumsýning hElgarinnar Dallas Buyers Club Well, nobody’s perfect. Osgood-some Like it Hot 22 mOnitOr fimmtudagur 30. janúar 2014 Leikstjóri: Jeff Nichols. Leikarar: Matthew McConaughey, Jennifer Garner og Jared Leto. Sýningarstaðir: Laug- arásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri. aldurstakmark: Bönnuð innan 14 ára. viLtu vinna miða? facebook.com/monitorbladid Hvað þarf til að fá mörg hundruð manns til að standa í röð utandyra um kvöld á þriðjudegi? Nei, Kardashian-fjölskyldan var ekki að droppa við, held- ur var PlayStation 4-tölvan að koma út. PlayStation 3-tölvan er til á næstum fjórðungi íslenskra heimila og nú gætu margir spurt sig: er það ekki bara nóg? Af hverju PlayStation 4? Það fyrsta sem maður tekur eftir er flott hönnun vélarinnar, en hún er sótsvört og öll fallega straumlínu- löguð og sem græja sómir hún sér vel í hvaða stofu sem er. En það sem er undir húddinu skiptir mestu máli þegar kemur að leikjatölvum og þar tekur mesta stuðið við. PlayStation 4- stýrikerfið er mjög notendavænt og mun þægilegra en það var í PlayStation 3. Hér geta notendur gert allt að sínu og geta menn valið hvort þeir spila sem einhver ónafngreindur á netinu eða að tengja sig við Facebook og spila þannig. Það er persónulegra og sýnir profile-myndina, þannig að þeir sem eru að keppa við þig sjá hvern er verið að keppa við. Facebook-tengingin gerir notendum líka kleift að deila efni á Facebook, en þetta gæti verið myndband úr einhverjum leik, t.d. ef skorað er flott mark í Fifa eða eitthvað flott úr Call of Duty eða Battlefield. Nýrri tölvu fylgir nýr stýripinni og er Dual Shock 4-pinninn mjög flott uppfærsla á eldri pinnum. Hann fer vel í hendi, er nákvæmari en fyrri pinnar og hefur nokkrar nýjungar á borð við snertiflöt sem leikmenn geta notað í leikjum, einnig skartar hann ljósi sem myndavél PlayStation 4-tölvunnar nemur og svo er hann með innbyggðan hljóðnema sem nýtist vel í mörgum leikjum. Tæknilega séð er PlayStation 4 sú fullkomnasta á markaðnum í dag og keyrir flesta leiki í 1080p upplausninni sem er full háskerpa, en það er eitthvað sem PlayStation 3 til dæmis náði sjaldnast að gera. En það er ekki bara grafíkin sem er betri, því öll vinnsla í vélinni er allt að 10 sinnum fullkomnari og hraðari en áður og sést það vel í leikjum á borð við Battlefield 4 (þar sem 64 geta spilað saman í stað 24) og í Fifa þar sem allar aðgerðir eru mun flóknari og fullkomn- ari. Þannig að þeir sem vilja taka stóra skrefið inní framtíðina ættu að tékka á PlayStation 4-vélinni, en hún er loksins komin á markað ásamt helling af leikjum og aukahlutum. ÓLafur þÓr jÓeLSSon tölvule ikur af hverju PlayStation 4?

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.