Morgunblaðið - 20.03.2014, Side 1

Morgunblaðið - 20.03.2014, Side 1
Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki sett fram efnahagsstefnu til lengri tíma. Kallaði formaður stærsta stjórnarand- stöðuflokksins nýlega eftir svörum um hvert væri „planið“ – og rifjaði upp að fyrri stjórn hefði haft skýra stefnu. Aðild að ESB og upptöku evru. En hvað þýddi það „plan?“ Í stuttu máli sam- komulag um að greiða Icesave-kröfur Lands- bankans, skipti þá litlu þótt greiðsluhæfi ríkisins yrði sett í uppnám, endurreisa Landsbankann með óheyrilegar erlendar skuldir á bakinu, koma til móts við erlendra kröfuhafa hinna föllnu bankanna með útgáfu ríkisskuldabréfs í erlendri mynt – og að lokum að ganga í Evrópusam- bandið. Sumt tókst. Annað sem betur fer ekki. Um 350 milljarða gjaldeyrisskuld var sett á herðar Landsbankann sem átti að greiðast upp á fimm árum. Það „plan,“ byggt á óskhyggju um að bankinn gæti vonandi endurfjármagnað sig síðar á erlendum mörkuðum á viðunandi kjörum, var fullkomlega galið. Bankinn hefur þurft að taka til sín gríðarlegan gjaldeyri síðustu ár til að vera í stakk búinn að standa undir afborgunum skuldanna. Bratt endurgreiðsluferli skuldanna er eitt stærsta vandamálið við afnám hafta. Ef fall- ist hefði verið á Icesave og ríkisábyrgð á skuld- um Landsbankans væri Seðlabankinn ekki í þeirri stöðu í dag að geta reynt að knýja fram skilmálabreytingar á skuldabréfunum með því að stöðva frekari gjaldeyrisgreiðslur til kröfuhafa. Verkefni núverandi stjórnvalda er einfaldlega að vinda ofan af misráðinni heildarlausn fyrri rík- isstjórnar. Það er forsenda afnáms hafta. Skoðun Heildarlausnin Hörður Ægisson hordur@mbl.is Stóra planið FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014 VIÐSKIPTABLAÐ Google er stórhuga og dugir ekki minna en að breyta lífi mannkyns. Máttur Google og metnaður 6 Þarf að skilja hvernig fólk í öðrum löndum hugsar og vinnur. Menningarlæsi opnar dyr 10 Sífellt fleiri hneyksl- ismál koma upp og kostnaðurinn verður mikill. HM í Katar í hættu? 4 Hörður Ægisson hordur@mbl.is Erlendir kröfuhafar slitabúa Glitnis og Kaup- þings hafa að líkindum orðið af meira en 100 milljörðum króna með því að hafa enn ekki komið með útfærðar og raunhæfar tillögur um hvernig fara eigi með útgreiðslur á 450 millj- arða krónueign búanna til kröfuhafa sem hefði ekki neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð Íslands. Um fimmtán mánuðir eru liðnir síðan slita- stjórnir bankanna óskuðu fyrst eftir undanþágu frá fjármagnshöftum í tengslum við áform um að ljúka uppgjöri bankanna með nauðasamn- ingi. Seðlabankinn hefur ekki léð máls á slíkri undanþágu og á sama tíma eykst enn lausafé bankanna í erlendum gjaldeyri. Samkvæmt útreikningum Morgunblaðsins nam fórnarkostnaður kröfuhafa Glitnis og Kaupþings af óbreyttri stöðu samtals um 123 milljörðum króna á síðasta ári. Lausafé bank- anna í gjaldeyri, að stærstum hluta reiðufé á er- lendum innlánsreikningum, var að meðaltali um 860 milljarðar á árinu 2013 – það jafngildir um 50% af landsframleiðslu Íslands – og var ávöxt- un þess aðeins um 7 milljarðar. Sé horft til þess að algengt er að vogunarsjóðir, sem eiga stærst- an hluta allra krafna á hendur Glitni og Kaup- þingi, geri 15% ávöxtunarkröfu (IRR) á sam- bærilegar fjárfestingar þá ætti ávöxtunin að vera um 130 milljarðar króna. Það er ljóst að erlendir kröfuhafar bank- anna hafa mikla hagsmuni af því að slita- stjórnum verði veitt undanþága til að hefja gjaldeyrisútgreiðslur til kröfuhafa. Seðlabank- inn hefur bent á að vegna óvissu um hvenær tekst að ljúka slitameðferð Búanna hafi þau dregið úr hraða við að umbreyta eignum í laust fé. Við óbreytta stöðu mun uppsafnaður fórn- arkostnaður kröfuhafa þó aukast enn frekar sem mun um leið hafa umtalsverð áhrif á vænta ávöxtun á fjárfestingu þeirra í bönkunum. Að auki þurfa bú Glitnis og Kaupþings að greiða ár- lega samtals um 18 milljarða vegna sérstaks skatts á skuldir fjármálafyrirtækja. Reikna með 60-80% afskriftum Gangverð almennra krafna á Glitni og Kaup- þing hefur lækkað nokkuð það sem af er ári sem endurspeglar aðþrengda stöðu kröfuhafa og væntingar um að krónueignir búanna verði af- skrifaðar að stærstum hluta. Samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins ganga kröfur Glitnis nú kaupum og sölum miðað við heimtur upp á 28% að nafnvirði en hjá Kaupþingi er hlutfallið um 24%. Miðað við áætlaðar endurheimtur – út frá eignum á móti skuldum í árslok 2013 – virð- ast kröfuhafar gera ráð fyrir því að krónueignir búanna verði afskrifaðar um 60-80%. Slík niðurskrift yrði í samræmi við Bingó- áætlun Seðlabankans, sem Morgunblaðið hefur áður sagt frá, en samkvæmt henni yrðu krónu- eignir Glitnis og Kaupþings keyptar fyrir gjald- eyri á um 75% afslætti. Þær tillögur felast einn- ig í því að nota hluta af erlendum eignum kröfuhafa til að endurfjármagna skuldir inn- lendra aðila til langs tíma á hagstæðum kjörum. Tafir kostað 120 milljarða  Fórnarkostnaður kröfuhafa yfir 100 milljarðar 2013  Reiðufé nemur hálfri landsframleiðslu Kröfuhafar tapa miklu á óbreyttri stöðu 463399 *Meðalstaða lausafjár á árinu **Vextir námu að meðaltali 0,8% ***Ávöxtunarkrafa (IRR) sem vogunarsjóðir gera á sambærilegar fjárfestingar Laust fé í gjaldeyri 2013* Ma.kr. 130 ma.kr.Ávöxtun lausafjár** Ávöxtun miðað við 15% ávöxtunarkröfu***Fórnarkostnaður kröfuhafa 7 ma.kr. 123 ma.kr. Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is m ag gi @ 12 og 3. is 21 .8 51 /0 1. 13 m ag gi @ 12 og 3 is 21 85 1/ 01 13 Flokkunarílát til notkunar innan húss FLOKKUNARBARIR Eitt hólf 20 l. 2 x 11 l. 3 x 11 l. 1 x 8 l. karfaTvistur (á sleða) Þristur (á sleða) Fáanlegir í mörgum litum. Mál: 38 x 39/93 cm. 2 x 40 l. á vagni 2 x 90 l. á vagni Ás (á sleða)2 x 60 l. á vagni 2 x 10 l. + karfa. Mál: 25 x 38/35 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 38 x 66/66 cm. Allar upplýsingar í síma 535 2510 Mál: 31 x 46/36 cm. Mál: 31 x 46/36 cm. Með snerti/pedalopnun. Mál: 26/59 cm. Mál: 25 x 31/44 cm. Mál: 25 x 47/44 cm. Fyrir lífræna söfnun. Mál: 18 x 22/22. F INGRAFÖRIN OKKAR ERU ALLS STAÐAR!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.