Morgunblaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Sama dag og tilkynnt var að Rússland og Katar hefðu verið valin til þess að halda heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu karla árin 2018 og 2022, vaknaði strax grunur um að maðkur hefði verið í mysunni þegar fram- kvæmdastjórn Alþjóðaknattspyrnusambands- ins FIFA kaus á milli þeirra tillagna sem lagðar höfðu verið fram. Átti það ekki síst við í tilfelli Katars, smáríkisins á Arabíuskaga, sem hafði hingað til ekki verið þekkt fyrir ár- angur eða uppbyggingu á knattspyrnusviðinu. Sepp Blatter, formaður FIFA, sagði hins vegar keppnina í Katar vera tækifæri fyrir knattspyrnuna til þess að þróa fótboltann áfram og vinna nýjar lendur, og knatt- spyrnugoðsögnin Zinedine Zidane, sem er múslimi, fagnaði valinu sem miklum sigri fyr- ir arabaheiminn. Alls kyns hneykslis- og álitamál hafa hins vegar komið upp, og hefur sú krafa gerst æ háværari að staðsetning keppninnar 2022 verði endurskoðuð. Það gæti reynst þrautin þyngri, í ljósi þess að þegar hefur verið eytt miklum fjármunum í undirbúning mótsins. Ekkert til sparað við gerð leikvanga Og tilkostnaðurinn er ærinn. Samkvæmt áætlunum stefnir í að Katar muni eyða sem nemur um 220 milljörðum Bandaríkjadala, eða rúmlega 25 billjónum íslenskra króna, í undirbúning heimsmeistarakeppninnar. Þar af fara um 20 billjónir íslenskra króna í að út- búa leikvangana, en reisa þarf sjö nýja leik- vanga á næstu átta árum í Katar, auk þess sem fimm aðrir leikvangar verða stækkaðir, svo að þeir geti tekið um 40.000 áhorfendur að jafnaði. Þá þarf að koma fyrir öflugu loft- ræstikerfi á leikvöngunum, því að ef mótið verður haldið að sumarlagi má gera ráð fyrir um 50-60 gráða hita á daginn. Fyrir afgang- inn, fimm billjónir króna, verða svo gerðar umbætur á samgöngukerfi landsins, svo að áhangendur geti komist leiðar sinnar á leik- ina. Þessar tölur segja þó ekki alla söguna, því að innifaldar í þessum 20 billjónum króna eru fimm billjónir sem munu fara í að reisa nýja borg í Katar, Lusail, en ráðgert er að þar muni 250.000 manns búa. Mikilvægt er að vel til takist, því að á leikvanginum sem stendur til að byggja í miðborg Lusail á að spila bæði opnunarleik mótsins, sem og sjálf- an úrslitaleikinn. Bent hefur verið á að þessi kostnaður sé fram úr hófi, enda mun mótið kosta um það bil 60 sinnum meira en HM 2010, sem haldið var í Suður-Afríku, sem þótti þó hafa verið með dýrari keppnum í framkvæmd. Þá hefur verið bent á það að fyrir 25 billjónir króna mætti kaupa upp hvert eitt og einasta hús- næðislán einstaklinga í Bretlandi, þjóð þar sem 60 milljónir manns búa. Gert er ráð fyrir að á móti muni Katarbúar fá einhverjar tekjur af ferðamennsku tengdri keppninni, en ljóst er að þær munu aldrei ná því að jafna þann gríðarlega kostnað sem leggja á í. Vandamálin hrannast upp Það eru hins vegar önnur vandamál sem vekja meiri athygli knattspyrnuheimsins þessa dagana, en fréttaflutningur hefur eink- um beinst að tvennu: Í fyrsta lagi lökum að- búnaði þeirra verkamanna sem eiga að reisa leikvangana, en talið er að um 400 verkamenn frá Nepal hafi látist í Katar vegna vanbún- aðar á síðustu fjórum árum; og í öðru lagi þrálátar ásakanir um að vissum stjórn- armönnum í framkvæmdastjórn FIFA hafi verið mútað í aðdraganda valsins á Katar í desember 2010. Slíkar ásakanir eru ekki nýjar af nálinni, en breskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að leita að sönnunum þess efnis. Árið 2011 sak- aði Triesman lávarður, sem stjórnaði tilboði Englendinga í HM 2018, fjóra stjórnarmenn í framkvæmdastjórninni um að hafa leitað hóf- anna um greiðslur bak við borðið. Ekkert var þó sannað. Breska dagblaðið Daily Telegraph birti hins vegar í vikunni gögn, sem blaðið sagði sanna það að fyrirtæki í Katar, sem tengdist íþróttayfirvöldum þar í landi, hefði borgað Jack Warner, sem þá var aðstoðarfram- kvæmdastjóri sambandsins, andvirði um 136 milljóna íslenskra króna í aðdraganda valsins, auk þess sem fjölskylda hans hefði fengið rúmlega 100 milljónir til viðbótar. Bandaríska alríkislögreglan FBI, rannsakar nú málið vegna gruns um peningaþvætti. Ljóst er að nýjustu fréttir hafa ekki auk- ið hróður Katars eða FIFA meðal knatt- spyrnuáhugamanna. Spurningin heyrist því æ oftar: Verður HM 2022 yfirhöfuð haldið í Kat- ar? Eftir því sem álitamálunum fjölgar minnka líkurnar á jákvæðu svari. Billjónum varpað fyrir róða?  Enn eitt spillingarmálið skekur Alþjóðaknattspyrnusambandið  Ráðgert að eyða andvirði um 25 billjóna íslenskra króna í undirbúning fyrir keppnina  Lakar aðstæður verkamanna í Katar  Þrálátar ásakanir um að stjórnarmönnum í FIFA hafi verið mútað koma fram enn á ný AFP Rauða spjaldið Heimsmeistarakeppnin í Katar 2022 hefur orðið umdeild af ýmsum orsökum. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014 4 VIÐSKIPTI Hjá okkur eru skjölin þín geymd við fullkomnar aðstæður í nýju öruggu húsnæði. Þú þarft aldrei að hafa áhyggjur af plássleysi, öryggi skjalanna eða því að finna ekki ákveðin skjöl. Með því að nýta þér þjónustu okkar ert þú komin með framtíðarlausn. • Betri nýting á húsnæði þínu. • Yfirlit yfir öll skjöl í geymslu. • Minni tími fer í leit. • Allur kostnaður skjalageymslunnar verður sýnilegur. Hafðu samband og láttu okkur þjónusta þig. Ert þú að ganga frá bókhaldinu og veist ekki hvar þú átt að geyma það? Gagnageymslan ehf. Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9800, www.gagnageymslan.is Sími 587 9800 Aðbúnaður þeirra verkamanna í Katar sem þurfa að reisa leikvangana fyrir HM hefur ver- ið harðlega gagnrýndur. Í Katar, sem og öðrum ríkjum við Persaflóa, gildir svonefnt Kafala- kerfi, sem þýðir það að erlendir verkamenn verða að hafa staðfestingu frá innlendum að- ila ætli þeir sér að vinna í landinu. Kerfið býð- ur upp á misnotkun, þar sem algengt er að vegabréf verkafólksins sé tekið af því, og ráðningarsamningurinn jafnvel rifinn við kom- una. Fólkinu er því lofað mun hærri launum en síðan er staðið við. Aðstæður fólksins þykja síðan ekki boðleg- ar. Matur og vatn er af skornum skammti, og munar um minna í hitanum í Katar. Híbýli verkafólksins þykja vart boðleg og veita lítið skjól. Hefur aðstæðum verkafólksins, sem einkum kemur frá Nepal, Pakistan og Indlandi, verið lýst sem „nútíma þrælahaldi“. Samkvæmt skýrslu ITUC, alþjóðasambands verkalýðsfélaga, er áætlað að um 4.000 manns muni hafa látið lífið frá þeim tíma sem ákveðið var að Katar fengi keppnina, og til þess tíma að blásið yrði til leiks í opn- unarleiknum. Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur verið gagnrýnt harðlega fyrir að láta þessar fregnir sem vind um eyru þjóta, en talsmaður sam- bandsins sagði að ásakanirnar yrðu skoðaðar. Yfirvöld í Katar hafa vísað þessum fregnum algjörlega á bug, en ákváðu í síðasta mánuði að kynna nýja reglugerð um laun og aðbúnað verkamanna. Óvíst er þó hvort það dugir til að sefa gagnrýnisraddirnar. Hætta á því að 4000 manns láti lífið AÐSTÆÐUR VERKAMANNA Í KATAR Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, netfang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á                                     ! "#!   $ % % $! ! %!"!  % &'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 % %!# ""! "% %! %%   "$ % "  !$% "  "! "$ $ %" $#  %  #  %# "%! " Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í gær að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vextir hafa staðið óbreyttir allt frá því í nóvember 2012. Stýrivextir bankans eru 6%. Verðbólga mældist 2,1% í febrúar og hefur hjaðnað nokkuð hratt. Þá benda nýir þjóðhagsreikningar til þess að launa- kostnaður á ársverk hafi hækkað töluvert minna á síðustu tveimur árum en fyrri tölur höfðu bent til. Einnig eru horfur á að niðurstöður kjarasamn- inga sem gerðir voru fyrir áramót muni gilda fyr- ir meginhluta vinnumarkaðarins, segir í yfirlýs- ingu peningastefnunefndar. Nánar á mbl.is Stýrivextir áfram óbreyttir í 6% Saksóknari í Frakklandi kallaði Christine Lagarde, framkvæmda- stjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í þriðja sinn til yfirheyrslu í gær. Mál- ið varðar aðkomu hennar að spill- ingarmáli sem teygir anga sína inn í ríkisstjórn Nicolasar Sarkozy, for- seta Frakklands á árunum 2007 til 2012. Í frétt AFP segir að Lagarde sé grunuð um að hafa greitt auð- manninum Bernard Tapie 400 millj- ónir evra, jafnvirði rúmra 63 millj- arða króna, fyrir að hafa styrkt Sarkozy í forsetakosningunum árið 2007. Þá var hún fjármálaráðherra Frakklands. Nánar á mbl.is Lagarde yfir- heyrð í 3. sinn Stuttar fréttir …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.