Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 4
TÆKNI
Sumarfríið er á næsta leiti og við-
skiptafólk byrjað að huga að úti-
legum og ævintýrum í íslenskri nátt-
úru. Meðal þess sem hafa þarf klárt
fyrir sumarið er gott tjald.
Þeir sem eru með netta tækja-
dellu og hafa gaman af fallegri hönn-
un ættu að falla fyrir Heimplanet
Mavericks-kúlutjaldinu.
Hér er komið rétta tjaldið fyrir
kröfuharða athafnamanninn sem
sættir sig ekki við neitt minna en
það besta. Eins og sést á myndinni
er hönnun tjaldsins nokkuð óvenju-
leg, jafnvel af kúlutjaldi að vera, því í
stað tjaldstanga að innan er bygg-
ingin borin uppi af uppblásnum túb-
um. Túburnar vefjast hver yfir aðra
í burðarfræðilega fullkomnu mynstri
sem byggist á lögun demanta.
Fálm með glamrandi tjaldstangir
og boga heyrir sögunni til. Þarf bara
að breiða tjaldið út á grasflötina og
byrja að pumpa og málið er afgreitt
á örskotsstundu. Á það að taka eina
manneskju bara örfáar mínútur að
gera tjaldið klárt. Þegar þarf að
pakka er svo einfaldlega opnaður
lofttappi og tjaldið brotið saman.
Tjaldið er rúmgott, stílhreint og
svipsterkt en líka gert til þess að
duga við krefjandi aðstæður. Á
tjaldið að þola vindhraða vel yfir 45
m/s en til samanburðar eru 12 vind-
stig 35 m/s. Tjaldið stendur því enn
óhaggað þegar allir aðrir gestir á
tjaldstæðinu eru löngu foknir út í
veður og vind. ai@mbl.is
Kúlutjald kröfuharða
útivistarmannsins
Túburnar sem bera
tjaldið uppi eru hann-
aðar með tilliti til upp-
byggingar demanta.
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014FRÉTTIR
Magnað meistaraverk!
Bílaframleiðandinn Porsche er þekktur fyrir framúrskarandi sportbíla.
Nú hefur þessum meistara sportbílanna tekist að sameina bestu eiginleika
Porsche í nýjum bíl; Þetta er sportjeppinn Macan.
Unnur Gunnarsdóttir hefur haft í
nógu að snúast síðan hún var skip-
uð forstjóri Fjármálaeftirlitsins ár-
ið 2012 en ársfundur eftirlitsins var
haldinn í gær. Hún segir Sjálfstætt
fólk hafa kennt sér mikið um hvað
það er að vera Íslendingur.
Hverjar eru stærstu
áskoranirnar í rekstrinum
þessi misserin?
Fjármálaeftirlitið hefur stækkað
hratt og unnið er af krafti að því að
mæta kröfum um nútímaeftirlit.
Við lítum á það sem megináskorun
að ná því marki.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
eða ráðstefnan sem þú sóttir?
Ég hélt fyrirlestur á ráðstefnu í
tilefni af níræðisafmæli Jóhann-
esar Nordals fyrir rúmum tveimur
vikum, rétt áður en ég fór í frí.
Fyrirlesturinn bar yfirskriftina:
„Hvernig stuðlum við að virku og
stöðugu fjármálakerfi á Íslandi?“ Á
ráðstefnunni voru fjórir aðrir fyr-
irlesarar og mér fannst erindi
þeirra mjög áhugaverð.
Hvaða bók eða hugsuður hefur
haft mest áhrif á hvernig þú
starfar?
Réttarheimspekilegar pælingar
hafa alltaf höfðað sterkt til mín en
ég hef óneitanlega mótast mjög af
lögfræðinámi mínu. Þá kenndi bók-
in Sjálfstætt fólk eftir Halldór
Laxness mér mest um hvað það er
að vera Íslendingur.
Hver myndi leika þig í
kvikmynd um líf þitt og afrek?
Yrði þetta ekki það sem kallað er
„bitastætt kvenhlutverk“? Þá væri
ekki óeðlilegt að Meryl Streep tæki
það að sér enda hirðir hún flest slík
hlutverk. Ef hins vegar Judy
Dench væri svona fimmtán árum
yngri þá held ég að hún myndi
henta mjög vel í hlutverkið. Þar
myndi hún náttúrlega njóta reynsl-
unnar af því að hafa leikið „M“ í
fleiri en einni James Bond-mynd.
Hvernig heldurðu
við þekkingu þinni?
Þekkingaröflun mín byggist
SVIPMYND Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
„Ef Judy Dench væri
fimmtán árum yngri“
MENNTUN:Stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1976. Lögfræð-
ingur frá Háskóla Íslands 1983. Framhaldsnám við York University
í Toronto í Kanada 1984-1985. Evrópuréttur við Kings College í
London 1999-2000.
STÖRF Dómsstörf í fimm ár, störf við bankaeftirlit og síðar fjár-
málaeftirlit í samtals ellefu ár, sem sérfræðingur í fjármálaþjónustu
á EFTA-skrifstofunni í Brussel, fimm ár og sjö ár skrifstofustjóri í
ráðuneyti.
ÁHUGAMÁL Ég legg áherslu á að rækta samband við vini og fjöl-
skyldu. Þá er það hið sígilda: lestur góðra bóka og einnig útivist,
hreyfing og ferðalög.
FJÖLSKYLDUHAGIR Ég er gift Óskari Einarssyni verkfræðingi og
við eigum tvær uppkomnar dætur, tvo tengdasyni og tvö barna-
börn.
HIN HLIÐIN