Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 19

Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 19
mennt og sérstöðu þeirrar vöru og þjónustu sem fyrirtækið selur. Góð- ur markaðsstjóri er því fyrst og fremst sá sem er strategískur í hugsun, hefur skýra mynd af þeim markhópum sem fyrirtækið einbeitir sér að og því virði sem felst í vörum þess og þjónustu. Þetta þýðir að markaðsstjórinn þarf að leggja mat á hugmyndir að markaðsaðgerðum út frá skýrum viðmiðum. Hugmynd- irnar sjálfar geta komið hvaðan sem er, ekki síst frá fólki úr auglýs- ingageiranum sem stöðugt leitar nýrra leiða til að ná athygli neytenda og styrkja stöðu vörumerkja á mark- aði. Virði hugmyndar fer því aðeins eftir því hversu vel hún passar inn í tiltekna heildarmynd sem markaðs- stjórinn þarf að hafa og snýr að sam- keppnisstöðu og styrk fyrirtækis. Þetta snýst ekki um sniðugheit, heldur strategíska hugsun. 2. Markaðsmál snúast fyrst og fremst um auglýsingar Markaðsmál snúast um margt annað en auglýsingar. Vissulega skiptir máli að koma skilaboðum út á markaðinn, en það hefur enga þýð- ingu ef aðrir þættir liggja ekki fyrir í upphafi. Þessir þættir byggjast fyrst og fremst á markaðsstefnu fyrirtæk- isins; þeirri hernaðaráætlun sem skapa á fyrirtækinu sterka stöðu á markaði. Sú hernaðaráætlun byggist á markvissum markaðsrannsóknum, skýrum markhópum, áherslum í þróun vöru og þjónustu, innri mark- aðsmálum og áherslum í stjórnun viðskiptasambanda og þjónustu. Þá, og aðeins þá, er hægt að skipuleggja miðlun skilaboða og auglýsinga. 3. Stefnumótun snertir mark- aðsmál ekki sérstaklega Stefnumótun er fyrst og fremst viðfangsefni sem snertir markaðs- mál. Ástæðan er einfaldlega sú að stefnumótun snýr að því að móta sýn fyrirtækis á stöðu sína á markaði; ákveða þá markhópa sem fyrirtækið hyggst þjóna og um leið hvernig ná á verjanlegu samkeppnisforskoti. Allt annnað byggist á þeirri niðurstöðu. Áherslur sem snúa m.a. að fjár- málum, framleiðslu og mannauðs- málum þurfa að taka mið af fókus á markaði og þeirri stöðu sem fyr- irtækið ætlar sér að ná. Markaðsmál eru því rauði þráðurinn í mótun stefnu. Morgunblaðið/Golli MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014 19SJÓNARHÓLL Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.re.is VIÐ SKUTLUM ÞÉR! Alltaf laus sæti Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum Hagkvæmur kostur Alltaf ferðir Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Umhverfisvænt*Miðast við að keyptur sé miði fram og tilbaka á : 3.500 kr. 1.750 kr.* FYRIR AÐEINS Kauptu miða núna á www.flugrutan.is Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll. OR EX PO • w w w .e xp o. is BÆKUR Fagfólk þarf stöðugt að vera að leita leiða til að bæta sig. Ætti því ekki að koma svo mjög á óvart að í öðru sæti á metsölulista Amazon, í fjármálabókaflokki, er sjálfshjálp- arritið Habit Stack- ing: 97 Small Life Changes eftir S. J. Scott. (Í fyrsta sæti er auðvitað bók Thomas Piketty um kapítalismann). Fylgir eigin ráðum Scott þessi er mik- ill áhugamaður um hin ýmsu trix til að vaxa og dafna sem manneskja, bæði líkamlega, vits- munalega, faglega og félagslega. Hann virðist fylgja eigin ráðum því ekki skortir afköstin: árin 2013 og 2014 hefur hann gefið út hvorki fleiri né færri en tíu bækur, s.s. um hvernig má temja sér betra mataræði, grisja innhólfið í tölvu- póstinum og vera afkastamikill rit- höfundur – en ekki hvað. Í Habit Stacking reynir Scott að vísa lesandanum leiðina að betri lífsvenjum í agnarsmáum skrefum. Hugmyndin er sú að stórar breyt- ingar geti verið of krefjandi og yfirþyrmandi og árangurinn að betri lífsvenjum að gera margt smátt. Öll ráðum við hæglega við að verja nokkrum mínútum í eitthvað smávægi- legt. Stórt vatnsglas Og smátt er það: Fyrsta heilræðið af 97 er ósköp einfalt: Að drekka stórt glas af vatni. Tveggja mínútna verk sem strax hefur góð áhrif. Næsta heilræði er að taka frá fimm mínútur til að skipu- leggja daginn. Er markmiðið að byggja upp 30 mínútna daglega rútínu af hænu- skerfum sem saman eru eins og eitt risastökk og stuðla að bættum samböndum við aðra, auknum af- köstum, bættum fjárhag og hraustari kroppi. ai@mbl.is Betra líf í agnar- smáum skrefum Nýlega setti Norræna endurskoðendasambandið(NRF) á laggirnar sérstakan vinnuhóp sem hefurþað að markmiði að þróa nýjan staðal fyrir end- urskoðun lítilla fyrirtækja. Fyrir kunnuga gæti það hljóm- að undarlega í ljósi þess að fyrir liggja alþjóðlegir endur- skoðunarstaðlar sem endurskoðendum er gert skylt að nota við endurskoðun um allan vestrænan heim. Hvers vegna er þörf á nýjum staðli? Samkvæmt lögum um endurskoðendur ber endurskoð- endum að styðjast við alþjóðlega endurskoðunarstaðla (ISA) þegar framkvæmd er endurskoðun reikningsskila. Þær raddir hafa verið nokkuð háværar hér á landi, sem og erlendis, að ISA staðlarnir geri það ítarlegar kröfur til endurskoðunar að kostnaður fari fram úr hófi fyrir lítil og meðalstór félög. Því hefur verið hald- ið fram að ekki fari saman kröfur hagsmunaaðila um áreiðanleika reikningsskila lítilla og meðalstórra félaga og síðan þær kröfur sem ISA gera til endurskoðunar þessara fé- laga, enda eru þær kröfur nákvæm- lega þær sömu og gerðar eru til end- urskoðununar stórfyrirtækja og skráðra félaga. Ýmsir eru þessu þó ósammála, og fara þar fremst í flokki alþjóðlega staðlaráðið sjálft sem telur að sníða eigi umfang endurskoðunar að um- fangi verkefnisins. Endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla sé áhættumiðuð og á þannig að taka mið af umfangi og flækjustigi hverju sinni. Hin norrænu systurfélög Félags löggiltra endurskoð- enda (FLE), sem saman eru aðilar að NRF, hafa verið nokkuð samstíga í afstöðu sinni í þessu máli. Eiga Norð- urlöndin það sameiginlegt að endurskoðunarskylda mið- ast hér við nokkuð lág stærðarmörk sem leiðir til þess að gert er að skyldu að framkvæma endurskoðun á umtals- vert minni rekstrareiningum en gengur og gerist í öðrum löndum Evrópu og víðar. Markmiðið með endurskoðun reikningsskila er að end- urskoðandinn staðfesti réttmæti og áreiðanleika upplýs- inga í ársreikningi og að árseikningurinn gefi glögga mynd af rekstri og efnahag. Til að unnt sé að gefa út slíkt álit þarf endurskoðandinn að framkvæma nokkuð ítarlega vinnu og skal hún taka mið af kröfum ISA staðla. Gæti endurskoðandinn mögulega komist að sömu niðurstöðu með minni fyrirhöfn þegar um er að ræða lítil fyrirtæki? Eða þá hitt, gæti hann mögulega framkvæmt annars kon- ar vinnu sem veitti ekki jafn mikla vissu fyrir lesanda reikningsskilanna en væri engu að síður fullnægjandi mið- að við þær væntingar sem gerðar eru til hans sem endur- skoðanda lítils fyrirtækis? Samstarfshópurinn sem settur hefur verið á laggirnar af NRF, og inniheldur meðal annars fulltrúa frá FLE, leit- ast við að svara fyrri spurninginni. Hvað varðar þá síðari hefur FLE sett sér þá stefnu að kynna aðra þjónustu end- urskoðenda gagnvart hagsmunaðilum og viðskiptavinum enda hafa margir endurskoðendur orðið varir við það við- horf að skortur sé fyrir hendi í þjónustuframboði endur- skoðenda þegar kemur að áreiðanleika reikningsskila. Valið stendur á milli fullrar endur- skoðunar eða áritunar á ársreikning þar sem endurskoðun hefur ekki far- ið fram og því ekki gefið álit á reikn- inginn. Skortur er á þjónustu sem veitir eigendum eða öðrum hags- munaðilum hæfilega vissu um að helstu liðir reikningsskilanna séu réttir, stærstu eignir séu til staðar og skuldbindingar séu rétt framsettar, án þess þó að farið sé fram á fulla endurskoðun. Slík þjónusta er þó vissulega fyrir hendi innan ramma alþjóðlegra end- urskoðunarstaðla. Ber þar helst að nefna könnun á reikn- ingsskil (review). Könnun er ekki jafn umfangsmikil vinna og endurskoðun og eingöngu gefið álit þess efnis að endur- skoðandinn að hafi ekki orðið var við neitt sem bendir til þess að reikningurinn gefi ekki glögga mynd af rekstri og efnahag. Könnun felst að mestu í greiningaraðgerðum og fyrirspurnum til stjórnenda. Einnig kæmi til greina að endurskoðandinn gæfi álit á ákveðnum hluta reiknings- skilanna án þess að gefa álit á reikningsskilunum í heild sinni. Slík þjónusta hefur þó ekki markað sér sess hér á landi enn sem komið er , eflaust vegna vanþekkingar kaupanda endurskoðunarþjónustunnar og skorts á miðlun upplýs- inga hvað felst í þjónustunni. Það eru þó væntingar þess sem hér ritar að ef bætt yrði úr hvoru tveggja er líklegt að þessir þjónustuþættir ættu eftir að nýtast notendum reikningsskilanna vel og vera viðskiptavinum endurskoð- enda til mikilla hagsbóta. Endurskoðun lítilla fyrirtækja ENDURSKOÐUN Eftir Jón Sturlu Jónsson endurskoðandi hjá Grant Thornton og formaður Félags löggiltra endurskoðenda. ” Þær raddir hafa verið nokkuð háværar að ISA staðlarnir geri það ítarlegar kröfur til endurskoðunar að kostnaður fari fram úr hófi fyrir lítil og með- alstór félög.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.