Morgunblaðið - 28.06.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2014
Sumar 20 24. - 30. ágúst
Tallinn & Pétursborg
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Spennandi ferð til höfuðborgar Eistlands, Tallinn, en
borgin er ein best varðveitta miðaldaborg í Norður-
Evrópu. Einnig heimsækjum við hina stórfenglegu
Pétursborg, sem er án efa miðstöð menningar og telja
margir borgina eina þeirra fallegustu í heimi.
Verð: 214.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson
30. MAÍ - 6. JÚLÍ 2014
ALLT AÐ
60%
AFVÖLDUMVÖRUM Í VERSLUN
ÚTSALA
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Hvorki meira né minna en fjörutíu og
eitt ár er frá því fyrst var hlaupið svo-
kallað Bláskógaskokk og næsta víst
að margir eiga skondnar minningar
frá því fyrsta hlaupi, því sumir gátu
vart gengið fyrir harðsperrum dag-
ana á eftir, en í þá daga stökk sveita-
fólkið í nágrenninu í hlaupið án þess
að þjálfa neitt sérstaklega, eins og
flestir gera í dag. Hlaupið í dag hefst
kl. 11 og hlaupið verður frá Gjábakka,
austan Þingvallavatns eftir gamla
Gjábakkavegi til Laugarvatns. Engin
bílaumferð verður um veginn meðan
á hlaupinu stendur. Hægt er að skrá
sig í hlaupið samdægurs, við íþrótta-
húsið á Laugarvatni, en keppendur
sem hafa forskráð sig á hlaup.is
þurfa að mæta við íþróttahúsið til að
staðfesta skráningu og fá afhent
keppnisnúmer frá kl. 9 í dag.
Allir þátttakendur fá verðlaun.
Nánar á www.hlaup.is.
Vefsíðan www.hlaup.is
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölskylduvænt Allir geta tekið þátt í skokkinu í dag, líka krakkar.
Bláskógaskokk í fögru umhverfi
Það er mikið kærleiksverk að kenna
börnum að láta gott af sér leiða. Nú
er gott tækifæri því í dag frá kl. 12 til
17 verður opið hús fyrir börn á öllum
aldri í miðstöð átaksins Hjálpum
Serbíu, í Ármúla 26, Reykjavík.
Þessi dagur er hluti af söfnunar-
átaki Hjálpum Serbíu og eru börn á
öllum aldri velkomin að gefa notuð
leikföng til barna í Serbíu sem glatað
hafa sínum leikföngum. Einnig verður
í boði skapandi skemmtidagskrá sem
stjórnað verður af Höllu Himintungli
og Ivönu Bogdanovic, þar sem börn-
um gefst kostur á að fara í leiki og
hafa gaman saman.
Endilega…
…látið börn
gefa börnum
Morgunblaðið/Ásdís
Halla Himintungl Mun skemmta.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi í
Eyjafirði fæddist undir lok nítjándu
aldar en hann er eitt af þeim ljóð-
skáldum sem nánast allir Íslendingar
kannast við og hafa dálæti á, enn
þann dag í dag. Ljóðabókin hans,
Svartar fjaðrir, er marglesin af mörg-
um, enda stútfull af ástríðufullum
ljóðum sem hafa lifað með þjóðinni.
Á morgun, sunnudag, ættu áhuga-
samir að gera sér ferð á Rif á Snæ-
fellsnesi, því þar verður í leikhúsinu
Frystiklefanum kl. 14 hátíðardagskrá
þar sem flutt verður Grímu-
verðlaunaverk, sem einmitt er um
Davíð.
Frystiklefinn er leikhús og menn-
ingarmiðstöð en Árni Kristjánsson,
einn starfsmanna Frystiklefans, vann
Grímuna fyrir útvarpsverk ársins,
Söng hrafnanna. Í verkinu fjallar
hann um Davíð Stefánsson en hægt
verður að hlusta á þetta í Frystiklef-
anum á morgun og gæða sér á kaffi
Hátíðardagskrá á Rifi
Grímuverðlauna-
verk um Davíð
flutt á Rifi
Skannaðu kóðann
til að lesa
Malín Brand
malin@mbl.is
Eitt af því sem einkennirgóðan ljósmyndara erástríðan til þess að takaljósmyndir. Hvort heldur
er um atvinnuljósmyndara að ræða
eða áhugaljósmyndara þá er
ástríðan oftar en ekki drifkraftur-
inn. Myndasmiðurinn Hörður Geirs-
son hefur skoðað ljósmyndun út frá
fjölmörgum sjónarhornum. Í starfi
sínu sem safnvörður ljósmynda-
deildar Minjasafnsins á Akureyri
rannsakaði hann meðal annars ljós-
myndir sem Anna Cathrine Schiöth
tók hér á landi á þarsíðustu öld. Í
safni Schiöth voru meðal annars
tvær myndir teknar með votplötu-
tækni. „Þær eru svo merkilegar,
teknar á 18x24 sentimetra gler-
plötur og eru svo þunnar og ræfils-
legar. En þegar maður setur papp-
írinn undir og lýsir í gegn, því það
var aldrei notaður stækkari á þess-
um tíma, þá koma þessar ofsalega
skýru, fínu og nákvæmu myndir og í
horninu á þeim má greina fingrafar
ljósmyndarans sem er svo nálægt
manni persónulega þegar maður
heldur á þessum frummyndum,“
segir Hörður um tildrög þess að
hann fór að læra að taka myndir á
votplötur.
Inn á myndirnar tvær hafði
Schiöth skrifað „29. ágúst 1882“ sem
er nokkurn veginn í enda þess tíma-
bils sem votplötutæknin var notuð.
Hvar má læra forna tækni?
Þessar vangaveltur Harðar
urðu til þess að hann leiddi hugann
að því hvort hægt væri að læra þessa
tækni einhvers staðar, og jú, það var
hægt. Árið 2007 komst Hörður í
samband við kennara í Bandaríkj-
unum og þangað hélt hann árið 2010
í þeim tilgangi að nema hina fornu
tækni. Will Dunniway er einn af
fáum sem þetta kenna og byrjaði í
kringum 1990 að endurvekja þessa
áhugaverðu tækni. „Evrópa er fram-
arlega og Rússar eru mikið í þessu
en mest eru Bandaríkjamenn í vot-
plötutækninni. Við erum bara örfá á
Norðurlöndunum. Ég held við séum
bara tvö,“ segir Hörður sem að námi
loknu tók til við að smíða sér mynda-
vél sem þurfti til verksins og hélt því
næst ótrauður í það þolinmæðisstarf
sem það er að beita votplötu-
tækninni. „Tæknin hafði einn stóran
galla sem er sá að platan þurfti að
vera blaut allan tímann. Ef platan
þornar er hún ónýt eða alla vega
hluti hennar. Þess vegna þurfti alltaf
að hafa myrkraherbergi með sér til
þess að búa til plötuna, hella hana,
lýsa og framkalla. Allt varð þetta að
gerast á meðan platan var blaut.
Þess vegna var ég með myrkra-
herbergið í bílum og gat ekki farið
nema um fimmtíu skref frá til að
mynda. Tæknin er ofsalega frum-
stæð og ljósmyndarar í dag þekkja
þær takmarkanir sem snúa að opti-
cal hlutanum eða linsum og ljós-
Nútíminn myndaður
með augum fortíðar
Það væri eitthvað bogið við að segja að myndasmiðurinn Hörður Geirsson hefði
verið að festa eitthvað á filmu að undanförnu. Hann hefur sannarlega verið að
ljósmynda en það hefur hann gert með býsna gamalli og nánast gleymdri aðferð.
Hann notar því hvorki stafræna tækni né filmu heldur notast hann við votplötu.
Það hefur ekki verið gert á Íslandi í rúm 140 ár og útkoman er mögnuð.
Þjóðminjasafn Íslands/Hörður Geirsson
Endurtekning Djúpavogsmynd ljósmyndarans Nicoline Weywadt frá því
um 1870 fyrir ofan og mynd Harðar Geirssonar af sama stað frá árinu 2011.