Morgunblaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Elti rottu og mink í miðbænum
2. „Ráku hann heim eins og hund“
3. Léttist um mörg kíló á átta vikum
4. Samningi Suárez sagt upp
Valeyrarvalsinn, skáldsaga Guð-
mundar Andra Thorssonar, kom út
fyrir skömmu í Danmörku og hafa
gagnrýnendur þar í landi farið fögr-
um orðum um bókina. Má þar nefna
gagnrýnendur Kristeligt Dagblad,
Ekstra Bladet, Politiken, Jyllands-
Posten, Berlingske Tidende og Week-
endavisen.
Morgunblaðið/Ómar
Valeyrarvalsinn hlýt-
ur lof í Danmörku
Rithöfundarnir
Eiríkur Örn Norð-
dahl, Yrsa Sig-
urðardóttir, Andri
Snær Magnason,
Sjón og Lani
Yamamoto munu
koma fram í bók-
menntadagskrá
og öðrum við-
burðum bókasýningarinnar í Gauta-
borg í september á þessu ári.
Fimm íslenskir höf-
undar í Gautaborg
Í tilefni nýrrar sýningar á Árbæjar-
safni sem ber heitið Neyzlan –
Reykjavík á 20. öld verður blásið til
neyslukapphlaups í safninu á morgun
kl. 14. Kapphlaupið verður í
formi leiks sem reynir á
kunnáttu og getu í flokk-
un og vistvænni hugsun.
Keppendur sækja efni
víða af safnsvæðinu,
flokka og skila og gefin
verða stig fyrir rétta
flokkun. Stigahæstu
liðin eiga mögu-
leika á vinn-
ingum.
Neyslukapphlaup
í Árbæjarsafni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Breytileg átt, 3-8 m/s. Birtir heldur til víðast hvar á landinu en
líkur á síðdegisskúrum. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyrir austan.
Á sunnudag Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Skýjað vestan- og suðvestanlands, en
annars skýjað með köflum og líkur á skúrum, einkum seinnipartinn. Sums staðar súldar-
loft, helst við austurströndina. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast um landið suðaustanvert.
Á mánudag Suðvestanátt, 8-13 m/s, og rigning um landið sunnan- og vestanvert.
Atli Guðnason tryggði FH sigur á Val
með marki úr vítaspyrnu í uppbótar-
tíma í gærkvöld og þar með heldur
liðið áfram tveggja stiga forystu í
Pepsi-deild karla. Jeppe Hansen skor-
aði tvívegis fyrir tíu Stjörnumenn
sem unnu Fram 2:1 og fylgja FH eftir
eins og skugginn, en bæði liðin eru
taplaus á toppi deildarinnar og mæt-
ast í næstu umferð. »2-3
Atli og Hansen tryggðu
toppliðunum sigra
Tveimur umferðum af þrem-
ur í riðlakeppninni á Ís-
landsmótinu í holukeppni er
lokið á Hvaleyrarvelli. Þriðja
umferðin hefst snemma í
dag og lýkur um hádegið og
þá kemur endanlega í ljós
hvaða kylfingar komast í
átta manna úrslitin í karla
og kvennaflokki, en fyrir há-
degið verða leiknir átta
hreinir úrslitaleikir um að
komast áfram. »1
Átta úrslitaleikir
fyrir hádegið
Áður en heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu hófst í Brasilíu hafði
enginn trú á liði Kostaríku.
Mið-Ameríku-
ríkið Kostaríka
er eitt þeirra
landsliða á
HM í Brasilíu
sem hafa unn-
ið hug og hjarta
margra sem
fylgst hafa með
keppninni og
mætir Grikk-
landi í 16-
liða úr-
slitum
keppn-
innar
annað kvöld.
»4
Kostaríka hefur unnið
hug og hjarta margra
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Skólahreystiskólinn hófst af fullum
krafti síðasta mánudag og fer skóla-
hald fram á hreystibrautinni í garði
Laugardalslaugar í Reykjavík. Í
skólanum er farið skipulega í gegn-
um allar grunnkeppnisgreinar
skólahreysti, en þær eru upphíf-
ingar, armbeygjur, dýfur, hreysti-
greip og hraðaþraut. Á svæðinu er
lærður íþróttafræðingur sem leið-
beinir nemendum skólans, sem eru á
aldrinum 9-16 ára. Að sögn Andrés-
ar Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Skólahreysti, gekk fyrsta vik-
an mjög vel.
„Vikan gekk rosalega vel og það
var gaman að sjá hvað börnin voru
jákvæð og til í að reyna allt. Nú er
bara að halda áfram, við verðum
þarna meira og minna í sumar,“ seg-
ir Andrés.
Hann segir áhuga á Skólahreysti
hafa aukist umtalsvert undanfarin
misseri og telur auknar vinsældir
meðal annars stafa af því að Tarsan
búi innra með okkur öllum.
„Okkur langar öll að klifra, príla,
skríða og hanga. Ég hef oft sagt að
við séum að finna Tarsan í okkur.
Fólk á öllum aldri sem hefur horft á
Skólahreysti hefur sagt mér að það
langi svo rosalega að prófa,“ segir
Andrés.
Hann bætir við að um það bil
3.500 krakkar reyni að komast í
skólaliðin sín á hverju ári og að um
70 grunnskólar landsins séu með
valgrein sem snúi að skólahreysti.
Hreystivellir um allan bæ
Undanfarin ár hefur Andrés stað-
ið fyrir uppbyggingu sex hreysti-
valla, bæði innan og utan höfuð-
borgarsvæðisins. Hann segir gamla
góða leikvöllinn, sem landsmenn
þekktu áður fyrr, hafa gleymst á
undanförnum árum.
„Okkur langar að reisa þá við. Við
erum í þessum töluðum orðum að
leggja lokahönd á völlinn við Linda-
skóla og þá eru komnir sex skólar
með heilan keppnisvöll og sex til við-
bótar með minni útgáfu af vellinum,“
segir Andrés.
Spurður um framtíð Skólahreysti
segir Andrés að með hjálp Lands-
bankans hafi tekist að tryggja
rekstrargrundvöll keppnarinnar
næstu árin og nú sé hægt að skoða
frekari útvíkkun íþróttarinnar, en
fyrir nokkrum árum setti Andrés
markið á að fara með hana inn í
framhaldsskóla landsins.
Þá segir Andrés Skólahreysti hafa
náð miklum vinsældum í Finnlandi
en þar eru um 80 þúsund krakkar
sem æfa fyrir Skólahreysti og 50%
skólanna þar taka þátt í keppninni
að sögn Andrésar, þar er sama fyrir-
komulag og sjö þættir í sjónvarpi.
Skólahreystiskólinn byrjaður
Skólahald á
hreystibraut við
Laugardalslaug
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hreysti Ungdómur landsins æfir af miklu kappi fyrir Skólahreysti í garði Laugardalslaugar í sumar.
Kát Þessir flottu krakkar liggja ekki heima í leti heldur fara út og hreyfa sig.