Morgunblaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2014 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mannlíf og málefni hér í Vest- mannaeyjum endurspeglast ágæt- lega í blöðum liðinna ára,“ segir Óm- ar Garðarsson, blaðamaður á Eyjafréttum. Nú um helgina ætla þeir sem að blaðinu standa að halda upp á þau tímamót að nú í júnílok eru 40 ár eru liðin frá því útgáfan hófst. Skoða hverja síðu Til skamms tíma hét blaðið Fréttir. Nú hefur verið skerpt á og er núver- andi nafn Eyjafréttir. Og í tímans rás hefur efni blaðsins verið fjölbreytt. Fréttir um mannlíf og málefni, viðtöl, greinar, skoðanaskipti, auglýsingar og svo framvegis. Þessi deigla verður fólki nú aðgengileg því í dag og í til- efni afmælisins verður opnuð slóð á vefsetrinu timarit.is þar sem fólk get- ur skoðað blaðið – hverja einustu síðu – allt frá upphafinu og fram á þetta ár. Um helgina verður samkoma í Sagnheimum, menningarmiðstöð Eyjamanna, þar sem vefgáttin verður opnuð. Hugmyndin að þessu framtaki er komin frá Elliða Vignissyni bæj- arstjóra sem sá til þess að Vest- mannaeyjabær lagði málinu lið. Einn- ig verða sýndir munir og myndir úr sögu Eyjafrétta. Hluti sýningarinnar er Vorið í Vestmannaeyjum 2014, myndir af því helsta sem gerðist á ný- liðnu vori í Eyjum. „Allt er þetta gert svo heimildir um bæjarlífið í blaðinu séu öllum að- gengilegar. Mér finnst þetta stað- festa að við höfum staðið okkar plikt,“ segir Ómar Garðarsson. Hann hefur starfað á Eyjafréttum frá árinu 1986. Er frá Seyðisfirði og var lengi á sjó og í lögreglunni í Eyjum. Var kokkur á Vestmannaey VE, kom svo í land og fór í blaðamennsku á Eyjafréttum. Hugsaði starfið aðeins sem millileik, en önnur varð raunin. Ómar var fyrst blaðamaður og svo ritstjóri frá 1992 fram til 2012, þegar Júlíus G. Ingason tók við. Nú er Óm- ar kominn aftur í hina daglegu frétta- vinnslu og segist kunna því vel. Gísli Valtýsson er ritstjóri og fram- kvæmdastjóri blaðsins og prentari. Veita sanngjarnt aðhald „Samfélagið og fréttamat hafa breyst mikið síðustu ár. Fréttir af sjávarútvegi í þessari verstöð eru ekki jafn áberandi og áður. Fólk læt- ur samfélagsmál í breiðustu merk- ingu sig meira varða en áður. Gerir kröfur um að vel sé staðið að skóla- starfi, menningu, opinberri þjónustu og fréttamat stjórnast af því. Svo eru Herjólfur og ferðir milli lands og Eyja eilíft umfjöllunarefni,“ segir Ómar. „Þá er hlutverk okkar á Eyjafrétt- um að veita þeim sem bæjarmálunum stjórna sanngjarnt aðhald. Ég hef stundum sagt að ef einhver bæjar- fulltrúi segir ekki upp áskrift að blaðinu á kjörtímabilinu séum við að gera eitthvað rangt. En svo gerast menn yfirleitt áskrifendur aftur. Kjarni þessa alls er þó sá að með um- ræðum er tekist á um málefni líðandi stundar. Þó hafa síðustu ár verið átakaminni en oft áður, þó ég ætli ekki að dæma um hvort bæjarstjórnin standi sig betur en áður eða við hér á blaðinu séum værukærari. Kannski er þetta samspil af þessu tvennu.“ Upphafið að útgáfu Eyjafrétta má rekja til þess að árið 1972 stofnuðu þeir Arnar Sigurmundsson, Sigurður Jónsson, Guðlaugur Sigurðsson og Andri Hrólfsson prentsmiðjuna Eyja- prent. Þeir voru strax áfram um að efla starfsemina og festu kaup á prent- vél. Rokkurinn sá var um borð í Herj- ólfi á leið til Eyja úr Reykjavík aðfara- nótt 23. janúar 1973 þegar eldgos hófst í Eyjum. Eðlilega lenti málið því í bið- stöðu. Það var svo í júní árið eftir sem vélin fór að snúast og útgáfan hófst. Löng hefð fyrir útgáfu í Eyjum „Þegar fólk var að reisa þennan bæ úr öskustó og í raun skapa nýtt sam- félag skipti máli að hér væri til staðar bæjarblað sem greindi frá því sem var að gerast. Krafan í dag er alveg sú sama og þá ber að hafa í huga að hér í Eyjum er löng hefð fyrir blaða- útgáfu,“ segir Ómar. Máltækið segir að svipull sé sjáv- arafli. Þetta á óvíða betur við en í Eyj- um þar sem sjávarútvegur ásamt ferðaþjónustu er undirstaða byggðar. „Sveiflur í sjávarútvegi hér eru minni en áður. Vinnslan er jöfn yfir árið. En vissulega koma kúfar. Komi góð loðnuvertíð flæða peningarnir inn í bæinn og þá hendir stundum að kaupmenn taka við sér og auglýsa meira. Þá þurfum við stundum að stækka blaðið úr hefðbundnum 20 síð- um og hið sama gerist fyrir jól og í tengslum við íþróttamót, gos- lokahátíð, þjóðhátíðina og slíka við- burði,“ segir Ómar. Þá ber að geta þess að 40 ára afmælisblaðið er sér- staklega veglegt, er alls 52 síður og prentað hjá Landsprenti, sem er í eigu Árvakurs, útgáfufélags Morg- unblaðsins. Fjölgum síðum ef vertíðin er góð  Eyjafréttir 40 ára  Mannlíf og málefni í Vestmannaeyjum endurspeglast í blöðunum  Breytt fréttamat í verstöðinni  20 síðna vikuskammtur  Veita stjórnendum bæjarins sanngjarnt aðhald Ljósmynd/Eyjafréttir Skrifa Eyjafréttir Ritstjórn Eyjafrétta: Sæþór Þorbjarnarson, Gísli Valtýsson, Ómar Garðarsson og Júlíus Ingason. Ómar Garðarsson segir þau 28 ár sem hann hefur starfað á Eyja- fréttum oft hafa verið stormsöm. „Brimið hefur oft brotnað á klett- unum. Sérstaklega get ég nefnt þar tímabilið 1994 til 2004, þeg- ar íbúatalan hér fór úr 4.888 í 4.044 þegar fæst varð. Þetta voru umbrotatímar, nokkur stóru sjávarútvegsfyrirtækjanna hér voru sameinuð og því fylgdu átök. Síðustu árin hefur hins vegar ver- ið góður gangur á flestu hér í Eyj- um og íbúar nú eru nærri 4.300. Þar hefur tilkoma Landeyjahafnar breytt miklu og ferðaþjónustan styrkst. Við finnum líka að þegar stefnt er á aukin umsvif horfa stjórnendur fyrirtækja í vaxandi mæli hingað og slíkt vinnur auð- vitað með bæjarblaðinu,“ segir Ómar. Oft hefur brotnað á klettum GÓÐUR GANGUR Á FLESTU Í EYJUM Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Skrifað var í gær undir málefna- samning um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Langanesbæjar. Það gerðu Reynir Atli Jónsson frá N-lista og Hulda Kristín Baldursdóttir frá L- lista, en hún er yngsti sveitar- stjórnamaður landsins, tvítug að aldri. Í síðustu viku var Hilma Steinars- dóttir frá N-listanum kjörin oddviti. Hilma er grunnskólakennari að mennt en stundar nú háskólanám í stjórnun á menntavísindasviði. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem kona er kjörin oddviti í Langanesbyggð en varaoddviti var kosinn Þorsteinn Ægir Egilsson frá L-lista, íþrótta- kennari og sjúkraflutningamaður. Auglýst verður eftir sveitarstjóra. Þrír listar buðu fram í sveitar- stjórnarkosningunum í maí. Hafa framboðslistarnir þrír allir ungt og áhugasamt fólk í sínum röðum ásamt reynsluboltum og fær sveitarfélagið að njóta starfskrafta þeirra næstu ár- in. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Sveitarstjórnin Hulda Kristín Baldursdóttir, Reynir A. Jónsson, Þorsteinn Æ. Egilsson, Hilma Steinarsdóttir, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Björn G. Björnsson og Siggeir Stefánsson. Nýr meirihluti í Langanesbyggð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.