Morgunblaðið - 19.06.2014, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.06.2014, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2014 7SJÁVARÚTVEGUR 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta í 90 ár Hljóðið er gott í Helga Antoni Ei- ríkssyni forstjóra Iceland Seafood International. Í dag rekur Iceland Seafood sjö dótturfyrirtæki erlend- is og selur á 45 markaði víðsvegar um heiminn. Helgi segir helstu breytingarnar hjá fyrirtækinu um þessar mundir felast í auknum krafti í sölu á ferskum fiski á Evr- ópumarkaði. „Markaðir hafa verið að breytast á þá vegu að við ákváðum að best væri að minnka umsvif okkar á smásölumarkaði í Þýskalandi enda samkeppnin þar mikil og erfið og sá markaður í smásölu ekki hluti af okkar kjarnastarfsemi. Í staðinn einbeitum við okkur enn betur að sölu á ferskum fiski í Þýskalandi og víðsvegar í Evrópu og Norður- Ameríku.“ Verðið á mörkuðum er ágætt og horfurnar góðar, að mati Helga. Hann segir núna vera spennandi tími til að selja fisk, neytendum sé mjög umhugað um að neyta sem mests af fiski og eftirspurnin eigi bara eftir að aukast. „Útlitið er gott fyrir botnfiskinn og okkar helstu samkeppnislönd búa ekki að miklum umframbirgðum til að setja á markað. Hins vegar er ljóst að nágrannar okkar í Evrópu munu veiða makríl í mjög auknum mæli og verður mikið af fiski í boði þegar líður á sumarið og inn í haustið. Makríllinn er aðallega seldur til Austur-Evrópu, Asíu, og í minna mæli til Afríku, og á eftir að koma í ljós hvernig þessi mark- aðssvæði bregðast við auknu fram- boði.“ Erfitt að skilja ýsuna frá þorskinum Hafrannsóknastofnun birti í síð- ustu viku skýrslu um ástand fiski- stofna og aflahorfur á komandi fiskveiðiári. Sumt í niðurstöðum skýrslunnar hefur valdið von- brigðum, þar á meðal tillögur Hafró um að minnka aflamark ýsu um 20% úr 38 þús. tonnum í 30,4 þús. tonn. Hefur einnig valdið von- brigðum að stofnunin leggur til minni aukningu á þorskkvóta en sjávarútvegsfyrirtæki höfðu reikn- að með. Töluverð ánægja er aftur á móti með að stofnunin leggur til nærri tvöföldun á loðnukvóta. Helgi segir að samdráttur í ýsu- kvóta myndi skapa viss vandamál við veiðar. „Það er rétt að ýsu- stofninn virðist vera í ákveðinni lægð og eðlilegt að á meðan sé reynt að draga úr veiðum á ýsu. Málið vandast hins vegar þegar haft er í huga að þorskur og ýsa hafast iðulega við á sömu slóðum og töluverður vandi að ætla að veiða þorsk án þess að ýsa slæðist með.“ Að sögn Helga hafa útgerð- arfélög reynt að leysa þennan vanda, með ærnum tilkostnaði og fyrirhöfn, með því að leita uppi þau svæði þar sem meira er af þorski þá stundina en minna af ýsu. „Það er hvimleitt að veiða mikið af ýsu með þorskinum þegar kvótann vantar, og kostnaðarsamt púsluspil að reyna að leita uppi þær veiðislóðir þar sem ýsuhlut- fallið er minnst.“ Mætti gera varfærnislegar breytingar? Helgi hefur svipaðar skoðanir og aðrir úr sjávarútveginum á til- lögum Hafrannsóknastofnunar um þorskkvóta. „Það virtist skilningur allra í greininni að verið væri að vinna að langtíma-uppbyggingu stofnsins og mjög skiljanlegt að menn hefðu væntingar um meiri aukingu í ár í ljósi kvótastefnu og mælinga undangenginna ára.“ Hann segist ekki geta sett út á mæliaðferðir og vinnubrögð Haf- rannsóknastofnunar en bendir á að ef til vill sé óhætt að endurskoða eða útvíkka mælingar í ljósi breyt- inga á dreifingu fisks. Á þetta sér- staklega við í ýsu. Það sé upplifun sjómanna að nóg sé af fiski í sjón- um og óhætt að veiða meira. „Tillögur stofnunarinnar um veiðimagn eru reiknaðar sem ákveðið hlutfall af heildarstærð veiðistofnsins. Ef yfirvöld fara að breyta þessum viðmiðum er mik- ilvægt að gera það með lang- tímamarkmið um nýtingu í huga og í góðu sambandi við markaðinn sem lítur á Íslendinga sem eina ábyrgustu fiskveiðiþjóð í heimi. Sú staða verður okkur stöðugt mik- ilvægari í harðri samkeppni úti á mörkuðunum.“ Horfur góðar fyrir botnfisk á erlendum mörkuðum Morgunblaðið/Kristinn „Það er hvimleitt að veiða mikið af ýsu með þorskinum þegar kvótann vantar, og kostnaðarsamt púsluspil að reyna að leita uppi þær veiðislóðir þar sem ýsuhlutfallið er minnst,“ segir Helgi Anton um stöðuna sem blasir við sjómönnum nú þegar Hafrannsóknastofnun leggur til að skerða ýsukvótann. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Forstjóri Iceland Seafood bendir á fyrirsjáanleg vandamál við veiðar þegar ýsukvóti er af skornum skammti enda veiðist ýsan iðulega með þorskinum. Segir spennandi að selja fisk um þessar mundir, neytendur vilji neyta sem mests af fiski og að fiskurinn sé veiddur á ábyrgan hátt. Morgunblaðið/Ómar Ýsur i kari. „Útlitið er gott fyrir botnfiskinn og okkar helstu samkeppnilönd búa ekki að miklum umframbirgðum til að setja á markað,“segir Helgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.