Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 4
FYLGIHLUTUR Væri ekki gott að fá fótanudd eftir langan dag við skrifborðið, hvað þá á lýjandi viðskiptaferðalagi? Leggage fartölvutaskan á, að sögn framleið- anda, að duga vel sem lítið nudd- tæki. Skel töskunnar er þríhyrnd í laginu og alsett dældum. Á bara að setja töskuna á gólfið og renna fót- unum yfir til að hnoða vöðvana og fá blóðið á hreyfingu. Taskan rúmar 15‘‘ fartölvu og kostar 80 dali eða um 9.400 krónur. ai@mbl.is Taska sem nuddar 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014FRÉTTIR ÁLÞAKRENNUR Viðhaldslitlar Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar. Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki. Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is HAGBLIKK ehf. Hljóðið í Ernu Gísladóttur er gott að vanda og ekki skemmir fyrir að samkvæmt nýjustu tölum hef- ur bílasalan gengið ágætlega í sumar. Hverjar eru stærstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Við erum að hefja undirbúning fyrir næsta ár og það er alltaf mikil áskorun að reyna að lesa í það hvert salan stefnir á næsta ári. Nú er spurning hvort við höldum áfram í hægri jákvæðri uppsveiflu. Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir? Síðasta ráðstefna sem ég fór á var hjá BMW. Við fengum að reynsluaka nýjum bíl sem er að fara í kynningu og svo voru fyr- irlestrar í tvo daga um hvað er að koma hjá þeim. Það er alltaf gam- an að fara á þessa fundi hjá BMW og heyra hvað er í píp- unum hjá þeim. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Ég held mikið upp á Dale Carnegie-fræðin og finnst bæði skipulags- og jákvæðnihugsunin sem þar er talað um vera gott veganesti í samskiptum við annað fólk, bæði á viðskiptalegum og persónulegum nótum. Hver myndi leika þig í kvik- mynd um líf þitt og afrek? Ætli það væri ekki Madonna, ég á víst að vera með sama kraft og hún. Hvernig heldurðu við þekkingu þinni? Ég fer reglulega á fundi hjá framleiðendum til að viðhalda þekkingu á bílamarkaðnum og því hvert hann stefnir. Auk þess reyni ég að fara á námskeið um hin ýmsu mál. Hugsarðu vel um líkamann? Ég reyni að hugsa vel um lík- amann en mætti örugglega gera betur. Ég fer í góða gönguferð helst einu sinni á dag. Ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa, hvert væri draumastarfið? Draumastarfið væri að vera endurskoðandi og vera djúpt ofan í tölum og bókhaldi SVIPMYND Erna Gísladóttir, forstjóri BL Myndi vilja vera endurskoðandi Morgunblaðið/Golli Erna tilnefnir stórstjörnuna Madonnu til að leika sig í kvikmynd. „Ég á víst að vera með sama kraft og hún.“ Erna með sýningarsalinn i baksýn. NÁM: Stúdent Verslunarskóli Íslands 1988, B.S Hagfræði 1991, MBA IESE Barcelona 2004. STÖRF: Fjármálaráðuneytið, aðstoð v. fjárlög 1990, B&L fram- kvæmdastjóri/forstjóri 1991-2008, stjórnarformaður Sjóvár frá 2009, í stjórn Haga frá 2010, BL forstjóri frá 2013. ÁHUGAMÁL: Fjölskyldan, ferðalög, golf og sumarbústaðurinn en hann tekur mikinn tíma hjá okkur og er endalaus uppspretta af skemmtilegum verkum. Ég veit fátt betra en að fara í kyrrðina úti á landi. FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Jóni Þór Gunnarssyni og við eigum tvö börn og einn tengdason. HIN HLIÐIN ÞARFAÞING Memobottle er ein af þessum upp- finningum sem fá fólk til að grípa um höfuð sér og segja upphátt: „Af hverju datt mér þetta ekki í hug?“ Hver kannast ekki við það ómögu- lega verk að reyna að koma drykkjar- flösku fyrir ofan í skóla- eða skjala- tösku? Taskan er full af ferhyrndum bókum og fartölvum, sem pakkast þétt saman en flaskan er langur sí- valningur og rúmast hvergi með góðu móti. Útkoman er í besta falli að plássið nýtist illa, og flaskan myndar ljóta dæld á töskunni. Memobottle fjölnota flaskan er ólík öðrum flöskum að því leyti að hún er ferhyrnd, í laginu eins og þykk bók, en með tappa í einu horninu. Til að auðvelda fólki að finna flöskustærðina sem hentar því best er Memobottle fáanleg í þremur stærðum sem endurspegla staðal- stærðir á prentefni: A4, A5 og Letter. A5 flaskan rúmar 750 ml og A4 flaskan 1,25 l, og er einmitt það sem heilsumeðvitaðir skrifstofumenn þurfa nú á tímum, þegar fátt þykir gera heilsunni og mittismálinu meira gott en að drekka nóg af vatni yfir daginn. Flöskurnar eru ekki enn komnar í verslanir, heldur er verið að safna áheitum á Kickstarter. Þar er verk- efnið löngu búið að ná því marki sem að var stefnt. Þeir sem gefa 30 dali í söfnunina geta fengið A4 flösku en fyrir 20 dali fæst litla A4 flaskan. ai@mbl.is Til þessa hafa flöskur ekki rúmast vel innan um bækur og fartölvur. Flaska gerð fyrir töskur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.