Morgunblaðið - 04.09.2014, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014SJÁVARÚTVEGUR
Greinilegt er að fiskbúðin
Hafið er vel með á nót-
unum í markaðsmálum.
Eins og nefnt var hér að
ofan er Búðin með virka
Facebook síðu þar sem
tilboð vikunnar eru aug-
lýst, og fagmennskan
greinileg allt frá fiskborð-
inu yfir á vefsíðuna.
Til viðbótar við þetta
hefur Hafið styrkt ýmsa
íþrótta- og afreksmenn,
sem og matreiðslumenn,
með matargjöfum. „Við
styðjum t.d. við íslenska
kokkalandsliðið með hrá-
efni til matargerðarinnar
og höfum tekið ýmsa ís-
lenska afreksmenn í fit-
ness-íþróttum upp á okk-
ar arma, og gefum þeim
hollan og góðan fisk.
Einn þeirra er kraftajöt-
unninn og sjónvarps-
stjarnan Hafþór Júlíus
Björnsson sem er dugleg-
ur að borða fisk til að
verða enn stærri og
sterkari.“
Ef börnin vilja ekki borða fiskinn sinn dugar
kannski að benda þeim á Hafþór. Sjáskot úr
þáttunum vinsælu Game of Thrones.
Fiskur fer vel
í kraftajötna
Uppbyggingin hefur gengið vel hjá
fiskversluninni Hafinu. Eyjólfur Júl-
íus Pálsson stofnaði fyrirtækið árið
2006 í félagi við æskuvin sinn Hall-
dór Heiðar Halldórsson, þeir báðir
þá aðeins hálfþrítugir.
Í dag eru verslanirnar orðnar
tvær, sú eldri í Hlíðasmára og sú
nýrri, rösklega ársgömul, í Spöng-
inni rekin í samstarfi við Pál Fannar
Pálsson, bróður Eyjólfs. Að auki
starfrækir Hafið fiskverkun úti á
Granda og þjónustar veitingastaði
og vinnustaðamötuneyti.
Eyjólfur segir reksturinn hafa
verið mikið streð fyrstu árin og
vinnudagarnir langir. Smám saman
hafi fyrirtækinu vaxið fiskur um
hrygg og það haldist í hendur við
stöðugan vöxt í sölu.
Hann segir m.a. hafa reynst vel að
bjóða upp á tilbúna fiskrétti sem
fljótlegt er að elda. „Ég hugsa að sjö
af hverjum tíu viðskiptavinum kaupi
tilbúinn rétt frekar en ferskan fisk.
Þetta er í takt við þarfir fólks nú til
dags, þegar allir eru úti á vinnu-
markaðinum og lítill tími fyrir mat-
seld þegar heim er komið í lok dags.
Réttirnir eru gerðir úr fersku hrá-
efni, hollir og bragðgóðir, og þurfa
varla að vera lengur en 10 mínútur í
ofninum eða á pönnunni og kvöld-
maturinn er tilbúinn.“
Vija kaupa gæðavöru
Eyjólfur á erfitt með að dæma um
það hvort stöðug aukning í sölu
skrifist á vaxandi eftirspurn eftir
fiski eða einfaldlega að fleiri séu að
uppgötva verslunina. Hins vegar
getur hann svarað því með tölu-
verðri vissu að samdráttarskeiðið
sem hófst árið 2008 virðist ekki hafa
haft mjög alvarleg áhrif á matarinn-
kaupin:
„Fólk virðist almennt tilbúið að
kaupa góða og ferska vöru, og neyt-
endur virðast líka hafa áttað sig á að
þegar dæmið er reiknað til enda er
fiskurinn ekki svo mikið dýrari úti í
fiskbúð en hann er í frystinum í
næstu lágverðsverslun. Slumpa ég á
að algengt kílóverð á frosnum fiski í
kjörbúð sé þetta 400-500 kr lægra en
verðið á fiskinum í borðinu okkar, en
þá á eftir að taka tillit til þess að
þegar frosnu flökin hafa þiðnað geta
þau verið töluvert léttari og kannski
ekki nema 100-200 kr munur á kíló-
inu þegar upp er staðið.“
Fastakúnnar Hafsins virðast samt
stökkva á tilboðin þegar þau bjóðast.
Verslunin hefur það fyrir reglu að
hafa valinn fisk á tilboði á þriðjudög-
um og fimmtudögum og tiboðin aug-
lýst á Facebook-síðu búðarinar.
Áhugavert er að skoða hvernig
landinn er farinn að velja fjölbreytt-
ari fisk á diskinn. Tegundir sem áður
fyrr voru lítið matreiddar eru nú
margar orðnar vinsælar. „Ýsan
heldur enn stöðu sinni sem vinsæl-
asti fiskurinn á íslenskum markaði,
en tegundir eins og langa, stein-
bítur, keila og rauðspretta seljast
líka vel. Sýnist mér að langan sé í
dag orðin næstvinsælasta tegundin,“
segir Eyjólfur.
Í tilbúnu réttunum virðist mark-
aðurinn alltaf kunna að meta fisk í
karrý- og hvítlaukslegi, en asísku
áhrifin hafa verið að koma sterkt
inn, að sögn Eyjólfs. „Af vinsælustu
réttunum má nefna lax í teriyaki og
löngu á austurlenska vísu.“
Morgunblaðið/Þórður
„Ég hugsa að sjö af hverjum tíu viðskiptavinum kaupi tilbúinn rétt frekar en ferskan fisk,“ segir Eyjólfur.
Sækja í fljótlega rétti
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Halda sambandi við
viðskiptavinina í gegnum
Facebook og leggja áherslu
á tilbúna fiskrétti sem tekur
stutta stund að elda.
ÞRÓUN KORTLÖGÐ
Verðþróun og spá
Samantekt Markó Partners
Sjófryst þorsflök
Sjófersk þorsflök
2.500
2.000
1.500
1.000
5000
0
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
4,50
4,40
4,30
4,20
4,10
4,00
3,90
3,80
3,70
3,60
3,50
3,40
3,30
3,20
3,10
3,00
8,00
7,75
7,50
7,25
7,00
6,75
6,50
6,25
6,00
Ja
n.
Fe
b.
M
ar
s
Ap
ríl
M
aí
Jú
ní Jú
lí
Ág
ús
t
Se
pt
.
O
kt
.
Nó
v.
De
s.
Ja
n.
Fe
b.
M
ar
s
Ap
ríl
M
aí
Jú
ní Jú
lí
Ág
ús
t
Se
pt
.
O
kt
.
Nó
v.
De
s.
Meðalverð/tonn FOB í € ( spá) 2013 (€/kg) 2014 (€/kg)
Meðalverð/tonn FOB í € ( spá) 2013 (€/kg) 2014 (€/kg)
4,38
7,63
3,83
3,34
7,14
7,37
1
.0
1
7
1
.3
7
5
1
.2
3
0
3,80
9
3
1
6,98
SJÁVARÚTVEGUR
Hagnaður Iceland Seafood á síð-
asta ári nami 1,3 milljónum evra,
jafnvirði um 200 milljónir íslenskra
króna, og jókst um 200 þúsund evr-
ur á milli ára.
Tekjur félagsins stóðu nánast í
stað á milli ára og voru samtals
180,5 milljónir evra á árinu 2013.
Stjórn félagsins leggur til að
ekki verði greiddur arður til hlut-
hafa vegna reksturs síðasta árs.
Eignir Iceland Seafood voru liðlega
32 milljónir evra í árslok 2013 og
var eigið fé 8,8 milljónir evra. Eig-
infjárhlutfall félagsins er því ríflega
27%.
Fyrirtækið er í eigu Iceland Sea-
food International og einbeitir sér
að útflutningi á ferskum, frosnum
og söltuðum fiskafurðum. Forstjóri
Iceland Seafood International er
Helgi Anton Eiríksson.
Iceland Seafood hagn-
ast um 200 milljónir