Morgunblaðið - 04.09.2014, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014FRÉTTIR
SPUNI
Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir
Veldu þinn lit úr rúmlega 50 litum sem í boði
eru og við bólstrum stólinn eftir þínum óskum.
STOFNAÐ 1956
Íslensk hönnun
& handverk
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is
Nóg er komið af þessu HM-
léttmeti og tími kominn fyrir al-
vöru knattspyrnu. Sumarið er að
renna sitt skeið á enda og boltinn
þegar farinn að rúlla í knatt-
spyrnudeildum Evrópu. Á þessari
leiktíð munu ríkustu félögin, sem
drottna yfir deildarkeppnum í sín-
um löndum, lúta ströngu eftirliti.
Reglurnar um fjárhagslega háttvísi
(e. Financial Fair Play), sem Evr-
ópska knattspyrnusambandið setti
fyrir fimm árum, eru farnar að
hafa áhrif. Takmarkanir hafa verið
settar á leikmannakaup ensku og
frönsku deildarmeistarana – Man-
chester City og Paris St. Germain
(PSG) – auk þess sem félögin hafa
þurft að greiða sektir vegna brota
á reglunum.
Ekki er víst að þetta sé fram-
faraspor. Reglurnar beinast vissu-
lega að raunverulegu vandamáli:
Hinni gríðarlegu misskiptingu fjár-
magns milli félaganna sem slást
um titlana annars vegar og svo
hinna sem aldrei munu eiga mögu-
leika á að bregða fæti fyrir hina
fyrrnefndu. En þar sem misskipt-
ingin er orðin svo samofin knatt-
spyrnunni er með öllu óljóst hvort
að slíkar reglur skili því sem til er
ætlast.
Reynt að koma í veg
fyrir niðurgreiðslu
Í reglunum er ákvæði um að
rekstur þurfi að vera á núllinu. Í
stórum dráttum felur það í sér að
félög megi ekki verja meira fé í
leikmannakaup en sem nemur and-
virði tekna af miðasölu, sölu á
sjónvarpsréttindum og varningi,
auk auglýsingatekna. Markmiðið er
að koma í veg fyrir að óstjórnlega
ríkir klúbbeigendur bjagi sam-
keppnina með því að niðurgreiða
taprekstur eftir þörfum. Það voru
furstafjölskyldurnar í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum og Katar
sem fjármögnuðu titla Manchester
City og PSG.
Rígur er jákvætt fyrirbrigði og
sérstaklega mikilvægur í keppn-
isíþróttum, þar sem sjálf sam-
keppnin er söluvaran. Sumir mark-
aðir einkennast af náttúrulegri
einokun. Það er til að mynda skil-
virkast að hafa eitt járnbraut-
arkerfi í stað margra á sama
markaðssvæðinu. Það er sama
hversu sjálfmiðaðir og sárreiðir
aðdáendur Manchester United eru
yfir gengi liðsins við upphaf tíma-
bils – þeir ættu erfitt með að finna
tilgang í ensku úrvalsdeildinni ef
aðeins þeirra lið tæki þátt í keppn-
inni.
Fákeppnismarkaður
knattspyrnunnar
Staðreynd málsins er að enska
úrvalsdeildin er fákeppnismark-
aður sem er fjármagnaður af ólí-
görkum. Birtingarform þessa
samkeppnisskorts er sú staðreynd
að fyrir utan 13 titla Manchester
United hafa aðeins fjögur önnur lið
staðið uppi sem sigurvegarar í 21
árs sögu úrvalsdeildarinnar.
Fjöldi hagfræðinga hefur bent á
að reglan um að reksturinn þurfi
að vera á núllinu, muni frekar auka
á vandann en auka samkeppnina.
Gríðarlegir auglýsingasamningar
munu eftir sem áður tryggja yf-
irburði stærstu félaganna.
Miklar tekjur utan vallar tryggja
að félögin nái til sín bestu leik-
mönnunum, svo þau geta eftir sem
áður hækkað miðaverð og fyllt
leikvangana í krafti þess. Það verð-
ur erfiðara og erfiðara fyrir félög í
neðri deildum að komast í fremstu
röð.
Það er erfitt að gera at-
hugasemdir við að knattspyrnu-
félög séu rekin með viðvarandi
tapi, nema kannski ef þau verða
gjaldþrota. Það gerist oftar en ekki
hjá neðrideildarliðum, enda hafa
sjálfumglaðir auðmenn minni
áhuga á slíkum liðum. Hvað með
það ef auðmenn kjósa að nið-
urgreiða skemmtun almennings?
Af hverju mega þeir það ekki?
Kappreiðar eru næststærsta íþrótt
Bretlandseyja þegar litið er til
tekna og áhorfenda. Í þeirri íþrótt
hafa eigendur hestanna fengið óá-
reittir að tapa fé í meira en heila
öld. Eigendur kappreiðahesta
eyddu 369 milljónum punda í hest-
ana árið 2012, en uppskáru aðeins
85 milljónir punda í verðlaunafé og
auglýsingatekjur.
Hin sósíalíska lausn
Bandaríkjamanna
Ein hugsanleg lausn á vandanum
blasir við vestanhafs. Evrópsk
knattspyrna gæti tekið upp skipu-
lagið í NFL-deildinni í bandaríska
fótboltanum (ruðningi). Um er að
ræða sósíalískt skipulag: Öll liðin í
deildinni deila með sér tekjunum,
þak er á launagreiðslum og þau lið
sem standa sig verst á einu tíma-
bili fá fyrst að velja nýja leikmenn
fyrir það næsta. Þetta virðist leiða
til jafnræðis. Þrettán lið af 32 hafa
unnið Ofurskálina á síðustu 22 ár-
um, samanborið við liðin fimm sem
hafa unnið ensku úrvalsdeildina.
Indverjar fetuðu sömu braut þegar
atvinnudeildin í krikket var sett á
laggirnar árið 2008, en hún hefur
notið mikilla vinsælda. Þar bjóða
lið í leikmenn og launaþak er við
lýði. Það verður að teljast ólíklegt
að þessi lausn verði tekin upp í
Evrópu.
Ef svo ólíklega vildi til að evr-
ópsk knattspyrnufélög kæmu sér
saman um að deila með sér og
endurúthluta tekjum, þyrfti slík
skipan mála að vera tekin upp á
sama tíma í öllum deildarkeppnum.
Annars myndu bestu leikmennirnir
fara til þeirra deilda þar sem
launaþak væri ekki til staðar. (Þar
sem amerískur fótbolti er svo
skelfileg íþrótt að hún er hvergi
leikin annar staðar í heiminum, er
þetta ekki vandamál í NFL-
deildinni).
Knattspyrnumenn hefja atvinnu-
mennsku mun fyrr en þeir sem
leika amerískan fótbolta. Auk þess
reka evrópsk knattspyrnufélög sitt
eigið ungliðastarf, þannig að upp-
boð eða val á bestu ungu leikmönn-
unum er ekki inni í myndinni. Í
bandaríska hafnaboltanum er
ákveðinn skattur lagður á eyðslu
ríkustu félaganna umfram tiltekið
hámark, sem svo rennur til ann-
arra liða. Hugsanlega væri hægt
að koma slíkum skatti á í evrópskri
knattspyrnu, en ljóst er að miklar
deilur myndu rísa um hvernig ætti
að ráðstafa skattstofninum.
Það er lofsvert framtak að vilja
auka jafnræði og samkeppni í
knattspyrnu. En reglurnar um
fjárhagslega háttvísi munu skila
litlu í þeim efnum. Ágæt hugmynd
en illa útfærð – gæti leitt til sjálfs-
marks. Eitthvað sem við sem
styðjum lið í neðri deildunum
könnumst við.
Misheppnuð andlitslyfting leiksins fagra
Eftir Alan Beattie
Hugmyndin að baki
reglum um fjárhagslega
háttvísi í knattspyrnu er
fögur, enda ætlað að auka
jafnræði og samkeppni, en
því miður eru líkur á því
að reglurnar muni virka í
þveröfuga átt.
Höfundur er blaðamaður FT sem
heldur með Chester FC, fjórðudeild-
arlið í eigu stuðningsmanna.
AFP
Reglur um fjárhagslega háttvísi í knattspyrnu koma ekki í veg fyrir að félög eins og Paris St. Germain, sem er í eigu
furstafjölskyldunnar í Katar, geti laðað til sín helstu snillinga íþróttarinnar, eins og hinn sænska Zlatan Ibrahimovic.
©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim.
Af síðum