Morgunblaðið - 04.09.2014, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014 11FRÉTTIR
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 800 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landsvinnslu
◆ KASSAR
◆ ÖSKJUR
◆ ARKIR
◆ POKAR
◆ FILMUR
◆ VETLINGAR
◆ HANSKAR
◆ SKÓR
◆ STÍGVÉL
◆ HNÍFAR
◆ BRÝNI
◆ BAKKAR
◆ EINNOTA VÖRUR
◆ HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Stundum stafar ljósið
við enda ganganna frá
sólinni; í önnur skipti frá
lest sem nálgast óðfluga.
Í júlí setti bandaríska
viðskiptaráðuneytið
refsitolla á sólarsellur
(e. solar-panel) sem eru
framleiddar í Taívan og
Kína. Ástæðan er und-
irboð á bandaríska
markaðnum. Verð á sól-
arsellum hefur lækkað um helming frá árinu 2011 en refsitollarnir ættu
að stöðva þá þróun. En þeir munu bitna hart á sumum framleiðendum
og að sama skapi gagnast öðrum.
Bandarísk stjórnvöld hafa áður beitt slíkum refsitollum. Kínverskir
framleiðendur komust hinsvegar undan tollunum sem voru settir á árið
2012 með því að selja vörurnar til Bandaríkjanna í gegnum verk-
smiðjur í Taívan. Þar af leiðandi hélt offramleiðslugetan í Kína áfram
að halda niðri verðinu. Kínversk stjórnvöld svöruðu fyrir sig í fyrra
þegar þau settu tolla á sólarkísilframleiðslu frá Bandaríkjunum. Þeir
sem lenda í skotlínunni tapa í þessari rimmu, það eru sólarsellufram-
leiðendur í Taívan og Kína og bandarískir sólarkísilframleiðendur. Þeir
sem njóta góðs af eru sólarselluframleiðendur utan Taívan og Kína.
Eitt þeirra sem lenda í lukkupottinum er norska fyrirtækið REC
Solar sem framleiðir sellur í Singapúr. Loksins er farið að rofa til í
rekstri fyrirtækisins, en hann hefur verið erfiður á síðustu árum. Á
þeim tíma var sólarkísilframleiðslan sett í sérstakt félag, REC Silicon.
Þar sem bandarísk sólarorkuver þurfa nú að finna sér nýja birgja eru
sóknarfæri fyrir REC Solar inn á þriðja stærsta markað heimsins með
framleiðsluvöru fyrirtækisins. Norska fyrirtækið hefur nú þegar gert
samninga við þrjú bandarísk fyrirtæki í ár og er SolarCity þeirra á
meðal. Talsmenn REC Solar segja að fleiri samningar séu í pípunum. Á
móti kemur að rekstrarhorfur fyrir REC Silicon fara versnandi þar
sem fyrirtækið framleiðir sólarkísil í Bandaríkjunum fyrir kínverska
viðskiptavini.
Hlutfall framleiðslu REC Solar sem seld er til Bandaríkjanna gæti
tvöfaldast á næstu árum. Hlutfallið er nú 7% en fyrirtækið gerir ráð
fyrir að eftirspurn á þessum markaði muni aukast um 27% á hverju ári
fram til ársins 2016.
Hættan felst hinsvegar í því að endir verði bundinn á viðskiptastríð-
ið. Sú staðreynd að gengi hlutabréfa REC Solar hefur staðið í stað í ár
endurspeglar þá hættu. Gengi bréfanna hefur ekki haldið í við vísitöl-
una í norsku kauphöllinni. En það mun taka tíma að ná vopnahléi í deil-
unni. Á meðan mun pöntunum frá Bandaríkjunum rigna inn, verð á sól-
arsellum vestan hafs haldast stöðugt og REC Solar getur
endurhlaðið rekstur sinn.
LEX
Skin milli skúra
Hversu neðarlega fer það? Nú þegar
verðlag á evrusvæðinu hefur ekki
hækkað jafn hægt í fimm ár, eru
hagfræðingar farnir að velta því fyr-
ir sér hvort um sé að ræða tíma-
bundið ástand eða upphaf samdrátt-
arskeiðs á japanska vísu á hinu
sameiginlega myntsvæði.
Samkvæmt tölum framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins hækk-
aði verðlag á evrusvæðinu aðeins um
0,3% í ágúst samanborið við sama
tíma í fyrra. Verðbólga hefur ekki
verið lægri síðan í október 2009 og
hefur farið lækkandi undanfarna
mánuði, en hún mældist 0,4% í júlí
og 0,5% í júní.
Verðhjöðnunar gætir nú þegar í
sumum hagkerfum evrusvæðisins.
Verðbólga á Ítalíu var 0,2% lægri í
ágúst en í sama mánuði í fyrra.
Þetta er í fyrsta skipti síðan árið
1959 sem verðhjöðnunar er vart á
Ítalíu. Verðlag fer einnig lækkandi á
Grikklandi, Spáni, Portúgal og í
Slóveníu.
Verðhjöðnunin veldur stjórn-
endum Evrópska seðlabankans
(ECB) hugarangri. Ekki síst í ljósi
þess að fyrir aðeins tveim mánuðum
spáði ECB að verðbólga yrði 0,6%
að meðaltali frá júlí fram í sept-
ember.
Fastlega er búist við að ECB lýsi
því yfir eftir fund stjórnar bankans í
dag, fimmtudag, að gripið verði til
aðgerða vegna þróunarinnar. Þær
væntingar byggjast meðal annars á
því að Mario Draghi, seðla-
bankastjóri, lýsti því yfir í síðustu
viku að bankinn „myndi beita öllum
úrræðum“ til að stemma stigu við
verðhjöðnun.
Tímabundið ástand?
Sumir sérfræðingar telja hins-
vegar að þróunin kunni einfaldlega
að stafa af tímabundnum ytri að-
stæðum. Orkuverð hefur farið lækk-
andi vegna of mikils framboðs af olíu
og annarri hrávöru og það skýrir að
stærstum hluta lækkandi verðlag.
Bann rússneskra stjórnvalda við
innflutningi á matvöru frá Evrópu-
sambandinu hefur einnig stutt við
þessa þróun.
Kjarnaverðbólga, sem tekur ekki
tillit til sveiflukenndra vöruflokka á
borð við matvöru og orku, jókst
óvænt í ágústmánuði og fór í 0,9%,
en var 0,8% í júlí. Hagfræðingar hjá
HSBC segja að kjarnaverðbólgan
bendi til þess að Draghi geti fært
rök fyrir því að verðhjöðnunin sé
tímabundin á evrusvæðinu.
Aðrir sérfræðingar telja að vænt-
ingar fjárfesta og neytenda skipti
sköpum í þessu samhengi. Draghi
varaði í síðustu viku einnig við þeirri
staðreynd að verðbólguvæntingar á
evrusvæðinu hafa lækkað að und-
anförnu. Helsti mælikvarðinn sýnir
nú að verðbólguvæntingar til næstu
fimm ára hafa fallið í 1,95% sem er
undir 2% markmiði ECB.
„Það sem skipir máli núna er að
verðbólga er viðvarandi lág. Það hef-
ur meiri áhrif á væntingar en þegar
fólk gerir ráð fyrir að hún muni
sveiflast,“ segir Luigi Speranza,
hagfræðingur hjá BNP Paribas.
Japanskur áratugur
En þýðir þetta að evrusvæðið
standi frammi fyrir áratug sem mun
einkennast af verðhjöðnun og veik-
burða hagvexti, eða „japönsku
ástandi“ eins og það er kallað? Hag-
fræðingar telja aðstæður á evru-
svæðinu nú, samanborið við Japan á
sínum tíma, ólíkar í veigamiklum at-
riðum. Guillaume Menuet, hagfræð-
ingur hjá Citigroup, bendir á að ríki
evrusvæðisins hafi áttað sig á mik-
ilvægi þess að vera með vel fjár-
magnað bankakerfi. Því var ekki að
heilsa í Japan og þar af leiðandi ætti
evrópska fjármálakerfið að vera bet-
ur í stakk búið til að standa af sér
áföll.
En ástandið er eigi að síður við-
kvæmt vegna þess hve verðbólgu-
væntingar eru lágar, eins og Sper-
anza bendir á. Fjármálakreppan í
Asíu seint á tíunda áratugnum varð
til þess að japanska hagkerfið fór út
af sporinu. Sambærilegt áfall gæti
að sama skapi ýtt evrusvæðinu fram
af ystu nöf. „Evrópa er ekki á bjarg-
brúninni en lítið má út af bregða,“
segir Speranza. „Og ef við bíðum eft-
ir áfallinu gæti orðið of seint að
grípa til aðgerða.“
Spurningin er hvort ECB muni
geta varist lágri verðbólgu upp á
eigin spýtur. Þegar Draghi kallaði
eftir því í síðustu viku að stjórnvöld
á evrusvæðinu gerðu meira til þess
að styðja við hagvöxt með auknum
ríkisútgjöldum og umbótum í rík-
isrekstri, viðurkenndi hann í raun að
það væru takmörk fyrir því hvað
ECB gæti gert í málinu.
Bloomberg-fréttaveitan hafði í
þessari viku eftir Wolfgang
Schäuble, fjármálaráðherra Þýska-
lands, að komið væri á það stig að
tæki peningastefnunnar væru hætt
að virka. „Ég held að peninga-
málastefna ECB hafi ekki verkfærin
til þess að takast á við verðhjöðnun.“
En markaðsaðilar eru ósammála.
ECB vinnur nú að áætlun um kaup á
eignatryggðum skuldabréfum á
markaði sem er ígildi magnbund-
innar íhlutunar (e. quantitative eas-
ing). Stjórn bankans á hins vegar
eftir að greiða atkvæði um hvort
ráðist verði í aðgerðirnar. Hagfræð-
ingar búast við að bankinn muni
gefa fyrirheit um að hann hyggist
grípa til aðgerða vegna verðhjöðn-
unar eftir vaxtaákvörðunarfund
sinn. Hvort hann getur gert eitthvað
í málinu er önnur saga en sumir sér-
fræðingar telja aðgerðaleysi
ekki valkost.
Löng glíma við verð-
hjöðnun í vændum
Eftir Alice Ross í Frankfurt
Stjórn evrópska seðla-
bankans fundar í dag um
aðgerðir vegna viðvarandi
lágrar verðbólgu og jafn-
vel verðhjöðnunar á evru-
svæðinu, en óvíst er hvort
bankinn ræður við verk-
efnið á eigin spýtur.
AFP
Mario Draghi ræðir við Francois Hollande, forseta Frakklands, fyrr í vikunni
en seðlabankastjórinn hefur kallað eftir stuðningi í báráttunni við stöðnun.
Af síðum