Morgunblaðið - 04.09.2014, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014FÓLK
CoreData - Stjórnarvefgátt
Stjórnarvefgáttin heldur utan um stjórnarfundi
og öll tilheyrandi fundargögn í öruggu umhverfi.
Dæmi um kosti CoreData stjórnarvefgáttar
✔ Öll fundargögn á einum stað
✔ Öflug leit í öllum gögnum stjórnarfunda
✔ Ekki þarf að senda gögn í tölvupósti eða á pappír
✔ Hægt að tengjast frá öllum tegundum spjaldtölva og snjallsíma
✔ Auðveldar samstarf stjórnarmanna víðsvegar um heiminn
✔ Yfirlit yfir ábyrgðaraðila og framgang verkefna
✔ Möguleiki á að nota rafræn skilríki til innskráningar og undirritun skjala
Hafðu samband
S. 553 1000 • azazo@azazo.is • www.azazo.is
Íslensk-ameríska viðskiptaráðið stóð
fyrir morgunverðarfundi um land-
vinninga íslenskra frumkvöðlafyrirtækja
vestanhafs. Nokkrir af helstu sérfræðingum
okkar í upplýsingatækni deildu reynslu
sinni af því hvernig er að reka fyrirtæki í
Bandaríkjunum og svöruðu því meðal
annars hvers vegna þeir hefðu ákveðið að
stunda rekstur í vesturheimi.
Fundur Ís-Am
Frumkvöðlar í vesturheimi
Morgunblaðið/Golli
MORGUNFUNDUR SPROTAR
Jafnframt því sem mikil gróska hefur
verið í íslensku frumkvöðlastarfi á
undanförnum árum hefur það líka
gerst að mörg efnilegustu sprotafyr-
irtækin – og einnig eldri og rótgrónari
fyrirtæki – hafa ýmist fært starfsemi
sína úr landi, eða hefja reksturinn er-
lendis frekar en innanlands. Í há-
tæknigeiranum hefur straumurinn
einkum legið vestur um haf, til Banda-
ríkjanna og Kanada.
Amerísk-íslenska viðskiptaráðið
hélt morgunverðarfund á miðvikudag
þar sem þessi mál voru rædd, og rýnt í
muninn á að reka fyrirtæki á Íslandi
annars vegar og í Bandaríkjunum hins
vegar.
Meðal ræðumanna var Halldor
Jörgensson framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar og sölu hjá App Dyna-
mic; fjögurra ára gömlu fyrirtæki sem
Halldór segir vera í þeim sporum, eins
og svo mörg önnur, að neyðast fljót-
lega til að taka erfiðar ákvarðanir um
flutning úr landi.
Helsta vara App Dynamic er snjall-
tækjaforritið Air Server sem nota má
til að „spegla“ það efni sem fólk er að
skoða á símtækjum, spjaldtölvum og
fartölvum yfir á t.d. sjónvarpsskjái.
Hefur forritið m.a. reynst mjög vel í
skólastofum þar sem nemendur og
kennarar geta á auðveldan hátt deilt
með öllum bekknum efni og upplýs-
ingum sem þau eru að skoða í snjall-
tækinu sínu. Í dag hafa nærri 1,5 millj-
ónir eintaka af hugbúnaðinum verið
seldar í gegnum forritaverslun Apple.
Höfuðstöðvar App Dynamic eru í
Turninum í Kópavogi en nýlega var
þjónustu-armurinn fluttur til Kali-
forníu.
Skortur á fólki
Spurður um stærstu hindranirnar
sem fylgja því að standa í rekstri af
þessu tagi á Íslandi nefnir Halldór
fyrst mannekluna: „Fyrir tæknifyr-
irtæki er aðgangur að góðu fólki einn
mikilvægasti þátturinn. Við erum að
vinna með vörur sem kalla á mikla og
sérhæfða þekkingu sem ekki er á
hverju strái og í smáu þjóðfélagi fáir
sem koma til greina í lausar stöður.“
Halldór segir hægt að leita starfs-
manna erlendis, en almennt vilji fólk
helst vinna þar sem það er, og fáir séu
reiðubúnir til að flytja alla leið norður
til Íslands. „Við bætist að flókið og
tímafrekt getur verið að fá atvinnuleyfi
fyrir viljuga umsækjendur frá löndum
utan ESB.“
Hann segir að mögulega mætti
vinna bug á þessum vanda bæði með
því að einfalda og auðvelda reglur og
leyfi er snúa að ráðningu starfsfólks
erlendis frá, og jafnvel líka bjóða hæfi-
leikafólki upp á freistandi skattfríðindi.
„Í löndum á borð við Danmörku hefur
t.d. verið reynt að laða að þessa eft-
irsóknarverðu starfskrafta með rífleg-
um afslætti af tekjuskatti fyrstu árin í
landinu.“
Halldór nefnir fleiri atriði, stór og
smá. Þannig getur verið snúið að selja
til neytenda á hinum sterka banda-
ríska markaði, þegar seljandinn er
staðsettur á Íslandi. „Stórir söluaðilar
á borð við Amazon og Google styðja
t.d. ekki við útgreiðslur á sölum til Ís-
lands, og ef selja á beint til notandans
eru sumir með greiðslukortin sín
þannig stillt að ekki er hægt að nota
þau til að greiða til seljenda utan
Bandaríkjanna.“
Einnig getur fjarlægðin frá virkustu
hátæknikjörnum verið hindrun. „Við
erum að þróa hugbúnað sem byggist á
eiginleikum og getu nýrra raftækja og
þurfum að ganga úr skugga um að for-
ritin okkar virki sem skyldi með t.d.
nýjustu sjónvarpstækjunum. Að panta
slík tæki til landsins er hægara sagt en
gert, og ef þau eru t.d. ekki með CE
vottun má búast við því að þeim verði
annað hvort snúið við í tollinum eða
fargað.“
Listinn gæti orðið enn lengri, og
nefnir Halldór m.a. áhrif gjaldeyr-
ishaftanna, veikburða fjárfestaum-
hverfi og ýmsar skattalegar hindranir
sem aðrar þjóðir hafa losað sig við.
„Segja má að umgjörðin utan um ný-
sköpun og rekstur sé öll gerð með
sjávarútveg og stóriðju í huga og henti
ekki vel fyrirtækjum sem fást við að
smíða hugverk,“ útskýrir hann.
Stíga í vænginn við sprotana
Ekki nóg með að margt gæti verið
betra í rekstrarumhverfi íslenskra
sprotafyrirtækja, heldur eru mörg
lönd að sækjast eftir því með virkum
hætti að fá efnileg fyrirtækin til sín.
Halldór nefnir Kanada og Bretland
sem dæmi um lönd sem láta ekki duga
að skapa fyrirtækjum lifvænleg
rekstrarskilyrði heldur beinlínis stiga í
vænginn við sprotafyrirtæki í há-
tæknigeiranum. „Án þess að leita eftir
því höfum við fengið að hlusta á fjórar
kynningar á mörgum kostum landa
sem vilja fá okkur til sín, og okkur ver-
ið gerð kostaboð til að gera flutningana
enn meira freistandi.“ ai@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Haldór segir App Dynamic hafa fengið freistandi tilboð frá ýmsum löndum.
Tilneydd að
fara úr landi
Önnur lönd leggja nánast
út rauða dregilinn fyrir
íslensk tæknifyrirtæki
og margt heimafyrir ýtir
fyrirtækjunum burtu.