Morgunblaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ A ð mörgu þarf að huga þeg- ar kemur að öryggis- málum um borð í skipum. Ýmislegt getur komið upp á í veiðitúrum og þarf réttur bún- aður að vera til staðar svo hægt sé að bregðast rétt við. Sama gild- ir í landi; óhöppin gera ekki boð á undan sér og með réttu tækninni er oft hægt að fyrirbyggja meiri- háttar tjón. Jóhann Gunnar Sveinsson er viðskiptastjóri hjá Securitas. Hann segir m.a. þurfa að fylgja vandlega ákvæðum laga um brunavarnir en Securitas selur fullkomin slökkvikerfi fyrir skip og báta og hefur mikla reynslu í öryggismálum og brunavörnum í fiskvinnslum. Rými þar sem mikið gengur á Hann segir skip og fiskvinnslur krefjandi verkefni því þar eru að- stæður bæði breytilegar og óvenjulegar borið saman við t.d. heimili eða skrifstofuhúsnæði. „Sem dæmi eru þetta rými sem eru reglulega hreinsuð með há- þrýstiþvotti og geta vatnið og guf- an haft áhrif á skynjarana. Í vinnslusölum fiskvinnsla er oft notast við svokallaða hitastrengi, sem er strengur með leiðurum sem gefa boð við ákveðinn hita og eru ekki jafnviðkvæmir fyrir um- hverfisáhrifum og hefðbundnir skynjarar. Einnig er möguleiki að nota sambyggða hitaskynjara og optíska skynjara, og þá er hægt að stilla búnaðinn þannig að á ákveðnum tímum notar bruna- viðvörunarkerfið aðeins upplýs- ingar úr hitaskynjunarhlutanum og á öðrum tímum er bæði hita- og reykvöktun virk.“ Bæði í landi og um borð í skip- um færist í aukana að myndavéla- kerfi vakti helstu vinnusvæði. Jó- hann segir þetta m.a. gert vegna þeirrar kröfu í matvælafram- leiðslu að óviðkomandi hafi ekki aðgang að framleiðslusvæðum en líka sé um að ræða eftirlitstæki sem geri stjórnendum kleift að sjá strax ef eitthvað hefur komið upp á eða ef stefnir í óefni. „Skipstjór- inn getur verið í stýrishúsinu og séð strax ef eitthvað hendir ann- ars staðar í skipinu, brugðist við um leið s.s. með því að senda menn á staðinn, kalla eftir aðstoð eða setja þar til gerð kerfi í gang.“ Undraduft sem bjargar lífi Góðar eldvarnir eru mjög mik- ilvægar um borð í skipum og seg- ir Jóhann að framfarir í gerð slökkviefna hafi aukið mjög á skilvirkni og öryggi slökkvikerf- anna. Það hvaða lausn verður fyrir valinu ræðst m.a. af stærð skipsins. „Í skipum upp að 24 metrum að lengd eru notuð svokölluð „aerosol“-slökkvikerfi. Við selj- um kerfi sem kallast Stat-X og Morgunblaðið/Þórður Undur „Ef Novec er haft í glasi á borði með logandi kerti, og vökvanum hellt í annað glas, þá slokknar á kertinu,“ segir Jóhann Gunnar Sveinsson um vinsælt slökkviefni. Háþróaðar efnablöndur slökkva elda hratt og örugglega Vöktun Myndavéla- kerfi um borð auka mjög á öryggi áhafn- arinnar. Sést strax ef slys hendir og hægt að grípa til viðeig- andi ráðstafana. Slökkvikerfi um borð í skipum ýmist ræna eldinn eldsmatnum, taka í sig hita eða lækka súrefnisgildið. Efnablöndurnar eru hvorki skaðlegar fólki, fiski né tækjabúnaði. Brunavarnir í fiskvinnslum kalla á sérstaka skynjara sem þola m.a. hitasveiflur og gufu. Myndavélakerfi gefa bætta yfirsýn og þýða skjótari viðbrögð. Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.