Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 11

Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11 er frá bandaríska framleiðand- anum Fireaway. Eldur þarf þrennt til að lifa; súrefni, hita og eldsneyti, og Stat-X inniheldur háþróaða efnaformúlu sem rýfur brunaferlið og tekur þannig elds- matinn frá eldinum, hratt og örugglega.“ Í skipum yfir 24 metrum að stærð eru tveir valmöguleikar al- gengastir. „Annars vegar erum við með slökkvikerfi sem kallast Sapphire og er framleitt hjá Tyco. Sapphire-kerfin nota slökkvimið- ilinn Novec 1230 frá 3M. Novec er merkilegt efni sem hefur þann eiginleika að draga í sig hitann. Ef Novec er haft í glasi á borði með logandi kerti, og vökvanum hellt í annað glas, þá slokknar á kertinu. Sett er röralögn í skipið sem leiðir úðaefnið beint á þá staði þar sem þeirra er þörf, s.s. vélarrýmið, skorstein og tengd rými,“ útskýrir Jóhann. „Einnig er hægt að nota loft- blönduna Inergen sem dregur nið- ur súrefnisgildið í rýminu nógu mikið til að eldurinn kafni, en ekki svo mjög að við mannfólkið getum ekki athafnað okkur. Securitas býður upp á Inergen-slökkvikerfi frá Fire Eater í Danmörku.“ Sömu efni og í listasöfnum Öll eru þessi efni hér að ofan skaðlaus mönnum, lífríki og tækjabúnaði. Segir Jóhann að ef kerfið hefur farið af stað, hvort heldur til að slökkva eld eða fyrir misgáning, þurfi ekki að gera sér- stakar ráðstafanir vegna útloft- unar miðlanna. „Það er helst að smávegis duft geti komið úr Stat- X-kerfinu og þess vegna er það aðeins notað í minni skipum ef ske kynni að duftið gæti mögulega byrgt mönnum sýn í stærri vél- arrýmum og orðið til þess að þeir kannski hrösuðu eða rækju höf- uðið í.“ Sams konar efni eru notuð í slökkvikerfum listasafna og tölvu- sala en eins og lesendur geta ef- laust getið sér til um er þar gerð mikil krafa um skjótar eldvarnir sem skemma ekki viðkvæm mál- verk, styttur og tölvubúnað. Ekki má svo gleyma litlu slökkvitækjunum sem hafa þarf innan seilingar hér og hvar um borð. „Ekki dugar að nota hvaða slökkvitæki sem er um borð í skipum, þau verða að þola velting og erfiðar aðstæður. Við seljum þýsk tæki frá Gloria sem eru leið- andi í smíði slökkvitækja fyrir skip.“ ai@mbl.is Öruggt Hylki með Novec á sínum stað. Varnir Inergen hylki í röð. Inergen lækkar súrefnismagnið til að kæfa eldinn. Úði Stat-X slökkvibúnaður tilbúinn til skjótrar notkunar í vélarými báts.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.