Morgunblaðið - 25.09.2014, Qupperneq 19
Þ
að fylgir sjómennskunni,
sem betur fer, að rólegar
stundir gefast inni á milli
vinnutarna. Þegar búið er
að ganga frá flökunarhnífnum og
hönskunum þarf að finna eitthvað
skemmtilegt að gera til að drepa
tímann.
Hér eru nokkrar hugmyndir að
skemmtilegum græjum, lesefni og
efnum til listsköpunar sem má
kannski setja í sjópokann til að
gera vistina um borð ánægjulegri.
Fables-teiknimyndasögurnar
Þessar mergjuðu teiknimynda-
sögur litu fyrst dagsins ljós árið
2002 og þykja með því besta sem
sést hefur í teiknimyndasögu-
heiminum upp á síðkastið. Þeir
sem lágu yfir Sval og Val, Andr-
ési önd og Ástrík á sínum yngri
árum ættu að hafa gaman af
þessum fullorðinslegu og spennandi
sögum.
Segja bækurnar frá kunn-
uglegum persónum úr heimi þjóð-
sagna og bókmennta, sem flúðu til
mannheima þegar ill öfl tóku yfir
heim töfra og huldufólks. Sjómenn
þurfa samt ekki að hafa áhyggjur af
að söguþráðurinn sé barnalegur, þó
að þar séu persónur á borð við
Mjallhvít, Rauðhettu og Þyrnirós í
aðalhlutverki. Hetjurnar eru nefni-
lega löngu vaxnar úr grasi og kalla
ekki allt ömmu sína.
Fyrir næsta túr er ekki úr vegi
að kíkja í nördabúðina Nexus og
kaupa nokkur eintök af Fables.
Spjaldtölva full af
kvikmyndum og þáttum
Plássið er oft af skornum skammti í
káetunni og spjaldtölvur því hent-
ugar úti á sjó. Hvað er betra en að
slappa af uppi í koju og horfa á has-
þáttaraðir af Seinfeld á leiðinni í
land, eða rifja upp kynnin við
James Bond? Allt þetta og meira til
ætti að geta komist fyrir á harða
diskinum.
Snjallsími með hljóðbókum
Góður snjallsími er hið mesta þarfa-
þing, sérstaklega ef búið er að hlaða
inn á símann skemmtilegum for-
ritum og upptökum. Auðvitað
má ekki vanta
nokkra
skemmtilega
leiki til að
grípa í þegar
svo ber undir,
en menning-
arlega hneigðir
sjómenn
ættu líka að
koma sér upp
góðu safni
hljóðbóka á
símanum.
Þegar verið
er að stafla
kössunum og
snyrta flökin
er tilvalið að
hlusta á heims-
bókmenntirnar
og koma í land
með skipið fullt
af fiski og hausinn
fullan af háfleygum bóka-
texta.
Er t.d. óhætt að mæla
með vefnum Librivox og
samnefndu forriti í app-
verslun Apple. Er þar
hægt að hlaða niður
ókeypis útgáfum af hljóð-
bókum sem flinkir sjálfboðaliðar
hafa lesið og tekið upp. Hvað um að
melta djúpar pælingarnar í Walden
eða færast í huganum til Suðurríkj-
anna í sögunni um Kofa Tómasar
frænda?
Stílabók, pensill og strigi
Það er ekki alltaf nóg að meðtaka
listir og afþreyingu. Stundum er
skemmtilegast að skapa.
Ef stílabók er við höndina er
hægt að hripa niður eins og eitt fal-
legt ljóð handa ástinni sem bíður
heima, eða máski skissa upp sum-
arbústaðinn sem gaman væri að
byggja við tækifæri. Svo dugar
stílabókin líka til að halda utan um
góðar hugmyndir og minnislista yfir
það sem gera þarf næst þegar bát-
urinn leggst að bryggju.
Þeir listfengustu gerast svo
djarfir að taka striga, pensla og
nokkrar túbur af málningu um
borð. Hver veit nema útkoman
verði hið fegursta listaverk sem
selja má á næstu tombólu kven-
félagsins, eða gefa mömmu gömlu
til að hafa sem stofustáss.
ai@mbl.is
Til að létta lífið um borð
armynd í tölvunni eða skemmtilega
sjónvarpsþætti. Er ekki upplagt að
reyna að komast í gegnum nokkrar
MORGUNBLAÐIÐ | 19
VELKOMIN TIL OKKAR
Í BÁS C40
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
32
69
Olís hefur í áratugi sérhæft sig í vönduðum rekstrarvörum og öðrum búnaði fyrir
sjávarútveginn. Í fyrra opnuðum við dótturfyrirtækið Rekstrarland utan um þessa
starfsemi, en fyrirtækið sinnir margvíslegum þörfum atvinnulífs og heimila.
Við bjóðum gesti sjávarútvegssýningar velkomna um borð í sameiginlegan bás
Olís og Rekstrarlands.