Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 21

Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig?568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Flytjum gámana út um allt land Við getum líka geymt gáminn fyrir þig ❚ Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur ❚ Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma O kkar styrkur felst í mikilli reynslu starfsmanna og mjög öflugu verkstæði í viðgerðum og þjónustu á vökvakerfum og búnaði. Verkstæðið smíðar einnig vökvadælustöðvar, lokastýringar og fleira sem tilheyrir glussakerfum.“ Þannig mælir Ingvar Bjarnason, framkvæmdastjóri Landvéla, öflugs fyrirtækis í Kópavogi er þjónustar sjávarútveginn á ýmsa lund. Efldist það til muna er það sameinaðist Ís- tækni (rafsuðuvélar, verkfæri o.fl.) á árinu 2008 og Viðhalds- og iðn- aðartækni (SKF-legur og drifbún- aður) 2007. Þessi tvö fyrirtæki sameinuð und- ir merkjum Landvéla segir Ingvar renna sterkari stoðum undir mjög öflugan og víðtækan rekstur sem einn af lykilbirgjum á Íslandi með viðhalds-, viðgerða- og rekstr- arvörur fyrir iðnað og sjávarútveg. Hjá hinu sameinaða fyrirtæki starfa um þrjátíu manns. „Fyrirtækið Landvélar var stofn- að árið 1967 sem þjónustufyrirtæki fyrir landbúnað en í áranna rás hef- ur þungamiðjan færst yfir í þjón- ustu við íslenskan iðnað og athafna- líf í sinni víðustu mynd. Meðal viðskiptavina okkar eru flest sjávar- útvegs- og framleiðslufyrirtæki landsins, öll stóriðjan, orkufyr- irtækin, vélsmiðjur, verktakar, bændur og nýsköpunarfyrirtæki. Sú starfsemi Landvéla sem er flestum kunn er hönnun, smíði, pressun og samsetning á háþrýsti- slöngum, börkum og rörum. Að baki er áratuga reynsla þar sem skjót þjónusta samhliða breiðu vöruúrvali er í forgrunni. Við störfum á krefjandi markaði og leggjum til grundvallar áreið- anleika, þekkingu, gæði og þjón- ustulund. Vöruúrvalið er víðfeðmt en kjarnastarfsemin er þjónusta og ráðgjöf með há- og lágþrýstan drif- og stjórnbúnað ásamt tilheyrandi lagnaefni, slöngum, tengjum og fitt- ings. Það er okkur áskorun að þjóna þessum markaði af krafti, nú sem fyrr. Vera traustur bakhjarl við ís- lenskan iðnað og athafnalíf,“ segir Ingvar við Morgunblaðið. Áratuga reynsla Hann segir Landvélar sinna við- gerðarþjónustu fyrir flestar gerðir af vökvamótorum og vökvadælum og byggi þar á áratuga reynslu og þekkingu. Fyrirtækið þjónusti vökvakerfi í spilkerfum, vindum, krönum, lyftum o.fl. Smíði og setji saman dælustöðvar og stjórnlokur og sérsmíði og beygi háþrýstirör og lagnaefni. Verkstæðið sé vel tækj- um búið og meðal annars með öfl- ugan prufubekk fyrir vökvamótora og -dælur. Ingvar segir að að baki góðri þjónustu sé góð vara og þekking. Samstarfsaðilar Landvéla skipti hundruðum og séu margir í fremstu röð á sínu sviði. Fremst meðal jafn- ingja séu Bosch Rexroth, Parker, SKF, Dunlop Hiflex, Merlett, Hansa Flex, Kemppi, Elga og ABUS. Ljóst er af samtali við Ingvar að þjónustustarfsemi Landvéla er fjöl- breytt. „Landvélar eru viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili fyrir SKF- drifbúnað, legur, þéttingar og smur- kerfi. Áhersla SKF er á fyrirbyggj- andi viðhald og ástandsgreiningu drifbúnaðar, slit- og titringsmæl- ingar, afréttingu reimskífa, sjálfvirk smurkerfi o.fl. Jafnframt veitum við ráðgjöf við val á réttum verkfærum til að meðhöndla legur og annan drifbúnað. Öflugir norðan heiða Í seinni tíð höfum við markvisst byggt upp sölu og þekkingu á vatns-, loft- og efnadælum í öllum stærðum og gerðum og bjóðum í dag heildarlausnir fyrir iðnað, sjáv- arútveg, verktaka, heimili og sum- arhús. Til viðbótar erum við með öflugar háþrýstidælur og tilheyr- andi fylgihluti, þvottabyssur og lagnaefni,“ segir Ingvar. Hann segir að lokum að Land- vélar hafi ávallt lagt mikla áherslu á samstarf við vélaverkstæði og aðra þjónustuaðila á landsbyggðinni. Dótturfyrirtæki Landvéla á Ak- ureyri er Straumrás hf. Samhliða þekkingu og reynslu sé þar um að ræða rótgróið fyrirtæki sem þekki sinn heimamarkað og sé traustur þjónustuaðili fyrir öfluga útgerð og iðnað norðan heiða. agas@mbl.is „Reynsla starfsmanna okkar styrkur“ Landvélar hanna, teikna og smíða háþrýst vökvakerfi, vökvadælustöðvar og lokastýringar. Morgunblaðið/Þórður Metnaður „Það er okkur áskorun að þjóna þessum markaði af krafti, nú sem fyrr. Vera traustur bakhjarl við ís- lenskan iðnað og athafnalíf,“ segir Ingvar Bjarnason um stefnuna hjá Landvélum, því rótgróna fyrirtæki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.