Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.09.2014, Side 18
Ferðalög
og flakk
Ástralar fá fleiri frídaga
Morgunblaðið/Eggert
*Ástralar eru sagðir fá úthlutaðaflesta frídaga miðað við öll önnurlönd í heiminum. Samkvæmt ástr-ölskum lögum er hinum almennamanni í fastri vinnu úthlutað 22 dög-um að lágmarki í frí, auk þess að fá13 daga í launað leyfi á hátíðisdögum.
Ekki amalegt það. En er þjóðin fyrir
vikið dugleg að ferðast?
Ég flutti í Nørrebro-hverfið í Kaupmannahöfn fyrir rúmum mánuði og finnst alveg ynd-
islegt að búa hér, kannski af því það minnir mig óneitanlega á Kreuzberg í Berlín þar sem
ég ólst upp fyrsta hluta ævi minnar. Nørrebro verður seint lýst sem rólegu hverfi, en hér er
iðandi mannlíf allan daginn og sannkölluð múltí-kúltí-stemning, mikið um ungt fólk og
innflytjendur frá öllum heimshornum. Í gegnum hverfið teygir sig hin langa Nørrebro-
gade og þar má finna kebabstaði í hundraðatali auk annarra verslana og þjónustu. Hér
hjóla flestir og er umferðin á hjólastígunum á álagstímum gríðarlega mikil og eins gott að
hjóla-umferðarreglurnar séu virtar! Vanti mann meiri ró og næði er þó lítið mál að finna
græna bletti eins og Nørrebro park og Assistens-kirkjugarðinn sem eru vinsælir griðastað-
ir á góðviðrisdögum. Nørrebro er einnig þægilega nálægt miðbæ Kaupmannahafnar, en
það tekur okkur um það bil fimmtán mínútur að hjóla eða taka strætó niður á Strik.
Lena Mjöll Markúsdóttir Nørrebro park er dásamlegur garður. Kebab og mannlíf á Nørrebrogade.
Múltí-kúltí-stemning
Rjómablíða á mini-svölunum mínum.
PÓSTKORT F
RÁ KAUPMA
NNAHÖFN
N
ú er haustið skollið að mestu leyti á. Kólnandi veðurfar finnst vel á skinni og gott ef hrollur í
kroppnum er ekki hluti af morgunrútínunni. Miðað við þann stutta tíma sem Íslendingar fá
sólríka og hlýja daga er mun sniðugra að skella sér til útlanda í suðræna sól við upphaf hausts-
ins, í því skyni að lengja sumarið aðeins. Eða þá að fara í slíka ferð í byrjun vetrar til að brjóta
upp skammdegið.
Áfangastaðirnir eru endalausir. Comino, lítil smáeyja í eyjaklasa Möltu í Miðjarðarhafi, er tilvalinn stað-
ur til að njóta sólarinnar og fallegrar náttúru, sérstaklega á þessum tíma. Október er góður tími til að
heimsækja Comino en þá er ferðamannatíminn að líða undir lok og hótelgisting að lækka í verði.
Eyjan er á milli Möltu og Gozo-eyju. Til þess að komast í perlu sem þessa þarf hinsvegar að leggja á sig
smá ferðalag en það er þess virði.
Svo virðist sem Íslendingar séu ekki þeir einu sem eiga blátt lón. Slíkt lón er líka í Comino og lítil vík
sem er varin með tignarlegu klettabelti. Eitt og eitt gap milli klettanna gefur víkinni hins vegar gott flæði
frá ballarhafi og því verður stöðug endurnýjun á sjónum. Auk þess er lokað fyrir þau með kaðli til að
koma í veg fyrir að smábátar laumist í perluna. Allt er gert til að Bláa lónið í Comino haldist óspillt. Hvít-
ir sandar prýða ströndina og fallegt og fjölskrúðugt sjávarlíf. Hins vegar er erfitt að finna skjól og getur
það verið hálfgert lúxusvandamál á heitum dögum. Á ströndinni er hins vegar hægt að leigja sólhlíf og í
grennd eru nokkrar litlar sjoppur þar sem hægt er að finna ískaldan frostpinna og svalandi drykki. Bláa
lóninu í Comino hefur gjarnan verið líkt við póstkort og er það ekki að ástæðulausu.
Í MIÐJARÐARHAFINU LEYNIST ÖÐRUVÍSI BLÁTT LÓN
Hið suðræna bláa lón
BLÁA LÓN ÍSLENDINGA ER EKKI EINA BLÁA LÓNIÐ Í HEIMINUM.
SLÍKT FINNST NEFNILEGA Á LÍTILLI EYJU, COMINO, RÉTT HJÁ
MÖLTU Í MIÐJARÐARHAFINU. ÞAÐ ER ÞÓ GJÖRÓLÍKT ÞVÍ SEM
ÞEKKIST HÉR ENDA SUÐRÆNT LÓN SEM SÓLIN VERMIR MEIRA EÐA
MINNA ALLAN ÁRSINS HRING.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is