Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.09.2014, Side 59
21.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Safn þjóðsagna frá Orkneyjum
er komið út á íslensku í þýð-
ingu Jónu G. Torfadóttur, en
Tom Muir safnaði sögunum
saman. Hér eru á ferð við-
burðaríkar sögur þar sem les-
andinn kynnist vættum lands
og sjávar, Finnfólki, nánykrum
og sætrítlum. Safn sem ætti
ekki að svíkja neinn því það er
afskaplega skemmtileg lesning.
Heimur þessara vætta er nokk-
uð öðruvísi en í íslenskum
þjóðsögum en margt er samt
ansi kunnuglegt. Öll þekkjum
við til dæmis sögur af hafmeyj-
um sem komu til lands, giftust
mennskum manni og áttu
börn, en gátu ekki gleymt
heimahögum og héldu aftur til
sjávar.
Skemmtilegt
þjóðsagnasafn
Í dag, 20. september, eru 100 ár liðin frá fæðingu Vil-
hjálms Hjálmarssonar á Brekku í Mjóafirði, lengi al-
þingismanns og ráðherra, sem og bónda og rithöfundar.
Hann hafði lengi fyrirhugað að Örnefni í Mjóafirði yrði
síðasta bók hans og var ætlunin að hún kæmi út á þessum
tímamótum. Vilhjálmur hafði sjálfur sagt
að annaðhvort yrði þetta afmælisrit eða
minningarrit og því miður fór það svo
að hið síðarnefnda varð niðurstaðan.
Hann lést 14. júní síðastliðinn, eða rúm-
lega tveimur mánuðum fyrir aldarafmæli
sitt. Þá hafði hann nýlokið við að fara yf-
ir síðustu próförkina af bókinni og því
gat hann farið nokkuð nærri um endan-
lega útkomu.
Örnefni í Mjóafirði verður vafalítið fróðleiksbrunnur
öllum þeim sem sækja Mjóafjörð heim og dvelja þar um
lengri og skemmri tíma. Einnig þeim sem áhuga hafa á ís-
lenskri náttúru og sögnum sem henni tengjast. Meginefni
bókarinnar er vönduð örnefnaskrá heimabyggðar hans,
sem og þjóðsögur, frásagnir af ýmsu tagi svo og fróð-
leikur sem tengist örnefnunum. Örnefnaskránni fylgja 30
litmyndir sem örnefni hafa verið merkt inn á, auk fjölda
annarra mynda.
GLÆSTUR ENDAPUNKTUR
Vilhjálmur á
Brekku.
Bókaforlagið Ugla hefur sýnt mikinn
metnað í útgáfu á þýddum bók-
menntum. Engin undantekning er frá
því þetta árið því von er á ýmsu góð-
gæti fyrir sanna bókmenntaáhuga-
menn. Þannig kemur út skáldsagan Út í
vitann eftir Virginiu Woolf og er
þetta fyrsta skáldsagan eftir hana sem
kemur út á íslensku. Áður hefur komið
út á íslensku bók Virginiu, Sér-
herbergi, þar sem hún fjallar á kröft-
ugan hátt um konur og skáldskap.
Frá Uglu er einnig von á síðustu bók-
inni í þríleik Lev Tolstoj sem hann
byggði á eigin ævi, og nefnist sú bók
Manndómsár, en áður hafa komið út
Bernska og Æska, hreint frábærar
bækur sem ástæða er til að mæla með.
Hin fræga og vinsæla bók Louise
Alcott, Yngismeyjar, verður svo
endurútgefin en hún kom út fyrst út á íslensku árið 1940. Sú bók hefur verið kvik-
mynduð oftar en einu sinni með stórleikkonum eins og til dæmis Katharine Hepb-
urn, Elizabeth Taylor, Winonu Ryder og Susan Saradon, en kvenpersónur
bókarinnar eru minnisstæðar og bjóða upp á góða túlkun
VIRGINIA OG FLEIRA GÓÐGÆTI
Skáldsaga eftir Virginiu Woolf kemur út í ís-
lenskri þýðingu, vonandi mörgum til gleði.
Músin sem gelti á alheiminn
geymir úrval úr prósaljóðum
Russells Edson í þýðingu Ósk-
ars Árna Óskarssonar sem
einnig ritar inngang.
Russell hefur verið kallaður
geimveran í bandarískum bók-
menntum en í ljóðum sínum
lýsir hann absúrd heimi þar
sem kaldhæðinn húmor leikur
lausum hala. Stórskemmtileg
lesning fyrir þá sem fylgja þeim
húmor, en aðrir eiga kannski
erfitt með að ná áttum.
Alveg einstak-
ur heimur
Russells Edson
Lífríki, skáld-
saga, þjóðsög-
ur og prósaljóð
NÝJAR BÆKUR
SANNKALLAÐ STÓRVIRKI LÍTUR DAGSINS
LJÓS MEÐ BÓKINNI LÍFRÍKIÐ. PRÓSALJÓÐ
RUSSELLS EDSON ERU HUGMYNDARÍK OG
STÓRSKEMMTILEG OG ÞJÓÐSÖGUR FRÁ
ORKNEYJUM ÆTTU AÐ GLEÐJA MARGA.
NÝ ÍSLENSK SKÁLDSAGA. LEIÐ, ER SVO
KOMIN ÚT.
Leið er fyrsta skáldsaga Heiðrúnar
Ólafsdóttur, en hún hefur áður gef-
ið út ljóðabækur. Heiðrún var til-
nefnd til Fjöruverðlaunanna árið
2013 fyrir ljóðabók sína Af hjar-
anum.
Þegar gömul vinkona birtist fyrir
tilviljun á tröppunum hjá Signýju
kviknar hjá henni hugmynd sem hef-
ur afdrifaríkar afleiðingar fyrir líf
hennar.
Fyrsta skáldsaga
Heiðrúnar
Lífríki Íslands - vistkerfi lands og sjávar - er stórvirki
eftir Snorra Baldursson líffræðing. Hann dregur saman
afar fjölbreyttan fróðleik um lífríki Íslands og gerir
grein fyrir öllum helstu rannsóknum á þessu sviði.
Fjöldi glæsilegra ljósmynda höfundarins prýðir bókina.
Hér er á ferð einstök bók, fræðileg og falleg, sem ber
vott um ríkulegan metnað höfundar og þeirra sem
komu að útgáfunni.
Stórglæsileg bók um
lífríki Íslands
* Ég geri kröfur af hógværð. Er alltafánægður með það besta.George Bernard Shaw BÓKSALA 11.-16. SEPT.
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 NáðarstundHannah Kent
2 AfdalabarnGuðrún Árnadóttir frá Lundi
3 Kjaftað um kynlífSigríður Dögg Arnardóttir
4 Lífið að leysaAlice Munro
5 Hvað gerist þá ?Tove Jansson
6 Fangi himinsinsCarlos Ruiz Zafón
7 Síðasti hlekkurinnFredrik Backman
8 Iceland Small World-small ed.Sigurgeir Sigurjónsson
9 Amma biður að heilsaFredrik Backman
10 Óvættaför 16 KimonAdam Blade
Kiljur
1 NáðarstundHannah Kent
2 AfdalabarnGuðrún Árnadóttir frá Lundi
3 VelúrÞórdís Gísladóttir
4 Tvífari gerir sig heimkominnAnton Helgi Jónsson
5 AtómstöðinHalldór Laxness
6 Megas - textar 1966-2011Magnús Þór Jónsson
7 Íslensk úrvalsljóðGuðmundur Andri Thorsson
8 Skólaljóð
9 HverafuglarEinar Georg
10 52 sonnetturÞórður Helgason
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Trúðu aldrei vini þínum
fyrir öllu.