Morgunblaðið - 03.11.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.11.2014, Blaðsíða 12
23 alvarleg eða óvænt atvik  Þrjú mál úr heilbrigðiskerfinu í rannsókn hjá lögreglu  Rannsóknirnar beinast að hjúkrunarfræð- ingi, ljósmóður og einstaklingum á LSH  Alls bárust 537 kvartanir á árunum 2011-2013 til landlæknis Morgunblaðið/Eggert Rannsóknir Þrjú mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meintra mistaka eða vanrækslu í heilbrigðiskerfinu. FRÉTTASKÝRING Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þrjú mál eru til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meintra mistaka eða van- rækslu í heilbrigðiskerfinu. Nokkur umræða hefur farið fram um það hvort að rétt sé að draga einstak- linga til ábyrgðar vegna mistaka á heilbrigðisstofnunum. Víða erlendis er ekki hægt að ákæra starfsmenn í heilbrigðisstéttum, en eins og lög- in eru hérlendis geta mistök ein- staklinga leitt til fangelsisvistunar. Úrbóta þörf í fjórum tilvikum Alls bárust 23 tilkynningar um óvænt eða alvarleg atvik til Land- læknis árin 2011-2013. Óvænt eða alvarleg atvik eru skilgreind í lög- um sem „atvik sem valdið hefur eða hefði getað valdið sjúklingi al- varlegu tjóni, svo sem dauða eða varanlegum örkumlum“. Skylt er að tilkynna þessi mál, bæði til við- eigandi yfirvalds sem og aðstand- enda. Samkvæmt lögum skal Land- læknir rannsaka alvarleg atvik til að finna á þeim skýringar og tryggja eftir því sem kostur er að slík atvik eigi sér ekki aftur stað. Í skriflegu svari frá Landlækni kem- ur fram að 16 atvikanna áttu sér stað á sjúkrahúsi. Þar af voru níu á Landspítalanum en sjö á öðrum sjúkrahúsum. Tvö atvikanna má rekja til heilsugæsla, eitt til hjúkr- unarheimila, þrjú til starfsstofa og eitt tilvik flokkast undir annað. Í fjórum tilvikum taldi Landlæknir að þörf væri á úrbótum í kjölfar at- viksins en í sextán þótti ekki vera ástæða til úrbóta. Í einu tilviki var erindi sent beint til yfirstjórnar og rannsókn tveggja atvika er ekki lokið. Samkvæmt upplýsingum frá Landlækni þótti ekkert óeðlilegt koma fram varðandi dreifingu at- vikanna. Ein ákæra verið gefin út Tvö þeirra þriggja tilvika sem eru til rannsóknar komu á borð lögreglu árið 2012. Í fyrra tilvikinu tilkynnti LSH um dauðsfall á spít- alanum sem hugsanlega mætti rekja til mistaka hjúkrunarfræð- ings og leiddi til andláts sjúklings sem var til meðferðar eftir skurð- aðgerð. Rannsókn er lokið og málið til meðferðar hjá ríkissaksóknara sem gaf út ákæru á hendur hjúkr- unarfræðingnum fyrr á þessu ári. Í síðara tilvikinu barst kæra frá að- standanda sextugs manns sem lést eftir skurðaðgerð á LSH árið 2011. Telur kærandi að um ranga sjúk- dómsgreiningu og meðferð hafi verið að ræða og það hafi leitt til ótímabærs andláts. Kæra í þriðja málinu kom fram á þessu ári en þá lagði kona fram kæru á hendur ljósmóður vegna meintra mistaka við fæðingarað- stoð þegar konan fæddi dreng á LSH árið 2011. Drengurinn hlaut varanlegan heilaskaða. Málið er í rannsókn. Eins hlutlaust og hægt er Að sögn Friðriks Smára Björg- vinssonar, yfirmanns rannsóknar- deildar hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, eru kærendur stundum ekki með það á hreinu hvert beina eigi kærunni, hvort sem hún beinist gegn stofnuninni í heild eða gegn einstaklingum innan hennar. „Rannsóknin beinist gegn ein- staklingum frekar en gegn stofn- unum í heild,“ segir Friðrik Smári. Hann segir að kalla þurfi til sér- fræðinga við slíkar rannsóknir. Þeir séu í sumum tilvikum tengdir þeim sem rannsóknin beinist að. „Þetta er náttúrlega lítið land og oft ekki um stóran hóp sérfræðinga að ræða. Þeir eru kannski teljandi á fingrum annarar handar í sumum tilvikum og eru óhjákvæmilega málkunnugir. En það er reynt að hafa þetta eins hlutlaust og óháð og hægt er,“ segir Friðrik Smári. Óhapp eða mistök í 10% tilfella Alls bárust 537 kvartanir og skyld erindi til Landlæknis á ár- unum 2011-2013. Eru þau frá því að vera samskipti við veitendur heilbrigðisþjónustu yfir í að vera tilkynningarskyld og óvænt alvar- leg atvik. Fram kemur á heimasíðu embættisins að áætlað er að um 10% sjúklinga á sjúkrahúsum á Vesturlöndum verði fyrir einhvers konar óhappi eða mistökum sem flokkast undir óvænt atvik. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014 fi p y j g p C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa mauki Bruchetta íreymeð tv ðlatu hangikjöti, bal- samrau og piparrótarsósu heBruc ta með hráskinku, balsam rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g meti Krabba a- s a l ðboferskum kryddjurtum í brau Bruchetta rðameð Miðja hafs-tapende aRisa- rækj spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is Möndlu Mix og Kasjú Kurl er ekki bara hollt snakk. Líka gott í salatið. Hollt og gott frá Yndisauka. Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna Akureyri. Forseti Íslands og bæjarstjóri Akureyr- ar eru á meðal þeirra sem flytja ávörp á árs- og tengiliðafundi samtakanna Northern Forum sem hefst á Akureyri í dag og stendur fram á miðvikudag. Northern Forum er samtök hér- aða, borga og fyrirtækja á norður- hveli jarðar og hefur Akureyrar- bær átt aðild að þeim frá árinu 2003. Þau eru í víðtæku sambandi við aðra sem vinna að norðurslóða- málum bæði á sviði stefnumótunar og rannsókna. Northern Forum á t.d. áheyrnaraðild að norðurskauts- ráðinu að því er kemur fram í frétt á vef Akureyrarbæjar. Búist er við þátttakendum frá að- ildarsvæðum samtakanna, verk- efnastjórum og fleirum sem vinna að verkefnum innan þeirra, fulltrú- um fyrirtækja sem aðild eiga að samtökunum og gestum. Fulltrúar Northern Forum koma saman á fundi á Akureyri „Það hafa verið miklar umræður um það hvort að rétt sé að rann- saka slík atvik í heilbrigðiskerfinu sem sakamál. Í sumum löndum er það ekki gert. Í Bretlandi eru slík mál t.a.m. rannsökuð á annan hátt og beinist rannsóknin að vinnu- staðnum í heild. Margir hafa velt því fyrir sér hvort við eigum að taka slíkt upp hér. En auðvitað verðum við að styðjast við þau lög sem eru á Íslandi,“ segir Laura Scheving Thorsteinsson, verkefnastjóri hjá embætti Landlæknis. „Á sama tíma höfum við verið að berj- ast gegn þeim kúltur að rétt sé að reka fólk vegna mistaka. Við tölum ekki um mistök heldur atvik. Ástæðan fyrir því er sú að þessi atvik má oft rekja til þess að ekki eru nógu skýrar verklagsreglur, ekki nógu góðar starfslýsingar, ekki nægilega vel skil- greint hver á að taka ábyrgð og auk þess er mikið rætt um truflanir í starfi. Flækjustigið í heilbrigðis- kerfinu er hátt og truflanir eru mjög algengar og það er farið að horfa mjög mikið á þann þátt,“ Laura. Í fimm til sex verkum í einu Helga Bragadóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís- lands, hefur rannsakað srarf hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða með tilliti til öryggis sjúklinga og starfsmanna. „Það sem okkar rannsóknir staðfesta er að vinnan er flókin og það er sífellt verið að rjúfa vinnuna. Starfsfólkið skilgreinir þetta ekki endilega sem truflun en rannsóknirnar sýna að þú þarft sífellt að vera að beina athyglinni að einhverju nýju. Ég hef kafað ofan í rannsóknir á minni en slík- ar rannsóknir eru settar upp með tiltölulega ein- földum líkönum. Starf á spítala getur hins vegar verið talsvert flókið og t.a.m. er sá sem vinnur á bráðamóttöku oft að vinna að 5-6 hlutum í einu. Hvert verkefni er svo rofið oftar en einu sinni. Við vitum ekki hvaða áhrif þetta hefur,“ segir Helga. Truflanir í starfi algengt vandamál ER RÉTT AÐ GERA ATVIK Í HEILBRIGÐISKERFINU AÐ SAKAMÁLI? Laura Scheving Thorsteinsson Helga Bragadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.