Morgunblaðið - 04.11.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Demókratar og repúblikanar lögðu í gær kapp á
að auka fylgi sitt í tíu lykilríkjum sem talið er að
geti ráðið úrslitum í kosningum til öldungadeildar
Bandaríkjaþings í dag. Skoðanakannanir benda
til þess að fylgi repúblikana hafi aukist síðustu
daga og að þeim takist að ná meirihluta í deild-
inni. Til þess þurfa þeir að bæta við sig að
minnsta kosti sex þingsætum.
Kosið er um öll 435 sæti fulltrúadeildarinnar og
talið er að repúblikanar haldi meirihluta sínum
þar. Tekist er á um 36 sæti í öldungadeildinni að
þessu sinni, m.a. þrjú sæti sem losnuðu á kjör-
tímabilinu. Demókratar fengu 21 þessara sæta í
síðustu kosningum og repúblikanar fimmtán.
Að sögn The Washington Post stóð baráttan
einkum um þrettán sæti en talið er nú líklegt að
repúblikanar hafi þegar tryggt sér þrjú þeirra, í
Vestur-Virginíu, Montana og Suður-Dakóta.
Demókratar fengu þessi sæti í síðustu kosning-
um.
Demókratar eru því nú taldir eiga raunhæfa
möguleika á að sigra repúblikana í allt að tíu ríkj-
um sem gætu ráðið úrslitum í kosningunum. Á
meðal þessara tíu lykilríkja eru Iowa þar sem
repúblikaninn Joni Ernst hefur náð sjö prósentu-
stiga forskoti meðal allra kjósenda, ef marka má
könnun sem staðarblaðið Des Moines Register
birti á laugardaginn var. Munurinn var tólf pró-
sentustig meðal óháðra kjósenda. Tekist er á um
sæti sem demókratinn Tom Harkin hafði haldið í
29 ár, en hann sækist ekki eftir endurkjöri.
Í öðru ríki, Norður-Karólínu, er demókratinn
Kay Hagan með tveggja prósentustiga forskot, ef
marka má nýjustu könnun CNN-sjónvarpsins og
rannsóknafyrirtækisins Orc International. Repú-
blikaninn Mitch McConnell hefur náð naumu for-
skoti á keppinaut sinn í Kentucky. Haldi hann
þingsætinu og nái repúblikanar markmiði sínu
verður hann leiðtogi meirihlutans í öldungadeild-
inni. Hin lykilríkin sjö eru Alaska, Arkansas,
Colorado, Georgía, Kansas, Louisiana og New
Hampshire.
Stuðningsmenn Obama fældir frá?
Að sögn fréttaskýranda The Washington Post,
Chris Cillizza, hefur gætt vaxandi svartsýni með-
al frammámanna demókrata vegna þess að kann-
anir bendi til þess að staða þeirra hafi versnað
síðustu daga í baráttunni um öldungadeildina.
Hann telur ástæðurnar margar, meðal annars
áhugaleysi kjósenda og óánægju þeirra með
stjórnmálamennina í Washington. Hann bendir
einnig á „sex ára fiðringinn“, þá staðreynd að ef
forseti nær endurkjöri fylgir sá böggull skamm-
rifi að flokkur hans missir oft sæti á þinginu sex
árum eftir að forsetinn tekur við embætti, þ.e. á
miðju síðara kjörtímabili hans.
Cillizza segir þó að allir kosningasérfræðingar
demókrata séu sammála um að helsta skýringin á
slæmri stöðu demókrata sé óánægja kjósenda
með stefnu Baracks Obama. Fylgi forsetans er nú
43% í öllu landinu og mun minna í nokkrum af
lykilríkjunum tíu. „Þessar kosningar eru nánast
algerlega orðnar að þjóðaratkvæðagreiðslu um
Obama,“ hefur The Washington Post eftir einum
demókratanna.
Þetta hefur orðið til þess að margir frambjóð-
endur demókrata hafa þvegið hendur sínar af
Obama í kosningabaráttunni. Þetta gæti þó
reynst þeim dýrkeypt vegna þess að til að halda
meirihlutanum þurfa demókratar að tryggja
mikla kjörsókn meðal hefðbundinna stuðnings-
manna flokksins, en margir þeirra styðja enn
Obama og gætu reynst tregir til að kjósa fram-
bjóðendur sem gagnrýna hann.
Obama og sex ára fiðringur
demókrötum fjötur um fót
Repúblikanar í sókn síðustu dagana fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum
Repúblikanar
Repúblikanar
Þingkosningar í Bandaríkjunum
Texas
Colorado Kansas
Okla.
Minnesota
Iowa
M
iss
ou
ri
Ark.
Louisiana
Michigan
Kentucky
Mississippi
Alab.
Georgía
Idaho
Montana
S-Dakóta
Wyoming
Alaska
Hawaii
Nýja-
Mexíkó
Nebraska
V-
Virg.
Ill
in
oi
s
New Hampshire
Oregon Massachusetts
S-Karólína
N-Karólína
Virg. Maryland
Delaware
Maine
Rhode Island
Demókratar
Demókratar
2 óháðir
(hafa stutt demókrata)
Öldungadeildin
Tekist á um
435 sæti
Barist er um 36 af 100 sætum deildarinnar
Fulltrúadeildin
53 45
Ekki kosið
Lykilkjördæmi
RepúblikanarDemókratar
Laus sæti
3Skipting nú
Kosningaspár
Kannanir benda til þess að repúblikanar
bæti við sig 6-9 þingsætum
199 233
183 22824
Heimild: RealClearPolitics
Skipting þingsæta nú
Flokkur með
gott forskot
Lykilríki
Repúblikanar reyna að ná meirihluta í báðum deildum
Norður-Kórea er líklega eitt af þeim
löndum sem eru ólíklegust til að
verða fyrir barðinu á ebóluveirunni,
vegna einangrunar landsins. Ofsa-
hræðsla hefur þó gripið um sig þar
vegna mikillar umfjöllunar fjölmiðla
landsins um ebólu. Þeir lýsa henni
sem enn einni erlendu vánni sem
steðji að landinu. Yfirvöld gripu til
þess ráðs að banna hópferðir er-
lendra ferðamanna til landsins.
Seinna voru gefin fyrirmæli um að
setja alla útlendinga sem kæmu til
landsins í sóttkví. „Þetta er ebólu-
sefasýki,“ hefur The Guardian eftir
útlendingi sem kom til landsins áður
en fyrirmælin voru gefin út. Talið er
að yfirvöldin hafi áhyggjur af því að
heilbrigðiskerfi landsins sé illa í
stakk búið til að takast á við ebólu ef
sjúkdómurinn berst þangað.
Ofsahræðsla
við ebólu
AFP
Smithætta Hjálparstarfsmaður í
hlífðarbúningi á æfingu í Sviss.
Breski auðkýf-
ingurinn Richard
Branson, stofn-
andi Virgin Gal-
actic, segir að
sprenging hafi
ekki valdið því að
geimflaug fyrir-
tækisins brot-
lenti í vikunni
sem leið. Nokkrir
sérfræðingar
hafa haldið slíku fram. Branson
segir að sönnunargögn sýni að
sprenging hafi ekki orðið í flaug-
inni eins og „sjálfskipaðir sérfræð-
ingar“ haldi fram. Einn lést og ann-
ar slasaðist alvarlega í slysinu.
Harðneitar því að
sprenging hafi orðið
GEIMFLAUG BROTLENTI
Richard Branson
Hreinsanirnar hófust í fyrravetur og
síðan þá hefur samþykktum náms-
bókum fyrir fjórtán milljónir skóla-
barna Rússlands fækkað um rúman
helming.
Margar ástæður voru gefnar fyrir
því að námsbókum var hafnað, en
þrjóska skriffinna kom þó oftast við
sögu, að sögn The New York Times.
Til að mynda fékk einn útgefend-
anna þá skýringu að honum hefði
láðst að geta undirtitils bókar þegar
hann sótti um að hún yrði samþykkt
sem kennslubók. Yfir 40 bækur
fundu ekki náð fyrir augum skrif-
finna vegna þess að útgefendur
sendu ekki frumrit gagna til stuðn-
ings umsóknunum, heldur aðeins af-
rit. Þá var litskrúðugri kennslubók í
stærðfræði hafnað vegna þess að í
henni voru myndir af persónum í
vinsælum erlendum barnasögum og
ævintýrum. Ekki þótti við hæfi að
nota myndir af útlendum persónum
á borð við Mjallhvít því þær eru
„varla til þess fallnar að stuðla að
föðurlandsást“ meðal ungmenna í
Rússlandi, að því er The New York
Times hefur eftir sérfræðingi sem
lagði mat á stærðfræðibókina.
Að sögn blaðsins hafa bókahreins-
anirnar raskað kennslu í skólum
landsins og vakið gremju meðal for-
eldra, skólastjóra og kennara. Eitt
fyrirtæki hefur þó notið góðs af
þessum hreinsunum, bókaútgáfa
sem var áður í eigu ríkisins og einok-
aði námsbókamarkaðinn í Rúss-
landi. Stjórnarformaður útgáfunnar,
Arkadí R. Rotenberg, er gamall vin-
ur Vladímírs Pútíns Rússlands-
forseta og æfði júdó með honum í
æsku í Pétursborg. Eftir að bókaút-
gáfan var einkavædd hefur stjórn
Pútíns séð til þess að skriffinnar
bregði fæti fyrir keppinauta hennar,
að sögn The New York Times.
Bókahreinsanir
fyrir vin Pútíns
Samþykktum námsbókum fækkað
AFP
Vinur vina sinna Vladimír Vladim-
íróvítsj Pútín, forseti Rússlands.
Opið: mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00-18.00, föstudaga kl. 8.00-16.30
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is2012
Vertu með gott
grip allt árið
Vredestein Federal Vredestein Apollo Federal