Morgunblaðið - 04.11.2014, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014
Karl Ágúst Úlfsson stendur í ströngu í bókaútgáfu þessa dag-ana. Hann er að undirbúa útgáfu bókarinnar Aþena, Ohio oger að fjármagna hana í gegnum Karolina Fund. „Fólk er að
veita mér stuðning við að koma bókinni í gegnum prentsmiðjuna. Ég
stefni að því að bókin komi út í byrjun desember og er bjartsýnn á að
það hafist. Þetta eru 75 örsögur um líf Íslendings í amerískum smábæ
sem þykir eitt og annað undarlegt í þessu framandi umhverfi. Bókin
er byggð á pistlum sem voru fluttir vikulega á Rás 2 fyrir 20 árum, en
þá var ég einmitt í námi í Aþenu í Ohio. Þessir textar hafa legið
óhreyfðir síðan og nú tók ég þá ákvörðun að gefa þá út á prenti.“
Bókaútgáfuna Undur og stórmerki hefur Karl Ágúst rekið í nokkur
ár. „Núna tekur bókaútgáfan mestan tíma minn, en ég er einnig að
gefa út fjórar nýjar bækur um Bjarnastaðabangsana og alls hafa þá
komið út 16 titlar um þá á íslensku. Svo reyni ég að skrifa eitt og ann-
að sem ég þarf að koma frá mér og við Spaugstofumenn erum dugleg-
ir að hittast – það er alltaf mikill hugur í okkur. Við erum ekki með
sjónvarpsþætti í vetur og erum að skoða ýmsa aðra möguleika. Okkur
liggur ennþá svo margt á hjarta og svo höfum við bara svo gaman
hver af öðrum.“
Karl Ágúst hefur ánægju af því að ganga á fjöll og reynir að nýta
hvert tækifæri til þess. „Ef veðrið verður jafn gott í dag og það var í
gær þá væri fínt að fara í fjallgöngu. Svo fæ ég mér líklega gott að
borða í tilefni dagsins en býst við að vera tiltölulega rólegur að flestu
leyti.“
Karl Ágúst Úlfsson er 57 ára í dag
Afkomandi víkinganna Karl Ágúst með Aþenu, Ohio í baksýn.
Spaugstofan gefst
aldrei upp
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hjördís Silja Karvelsdóttir, Dalía Pagzko og Sóldís Lára Sigurðardóttir héldu
tombólu hjá Krónunni í Rofabæ og gáfu Rauða krossinum ágóðann, 1.892 kr.
Hlutavelta
J
óhann Ólafur er fæddur á
Jarðbrú í Svarfaðardal
4.11. 1964 og ólst þar upp
á stóru heimili, gekk í
Húsabakkaskóla, lauk
grunnskólaprófi frá Gagnfræðaskól-
anum í Ólafsfirði og stúdentsprófi
frá MA 1985.
Veturinn eftir stúdentspróf vann
Jóhann Ólafur við löndun- og út-
skipun á Dalvík, við byggingar og
múrverk í Reykjavík veturinn 1986-
87, en vorið 1987 var hann ráðinn
blaðamaður að dagblaðinu Degi á
Akureyri. Þar starfaði hann sam-
fleytt fram á haust 1996 og var síð-
ustu tvö árin ritstjóri við hlið bróður
síns, Óskars Þórs.
Jóhann Ólafur starfaði sjálfstætt
við blaðamennsku og í almanna-
tengslum á árunum 1996-2001 og
stofnaði fyrirtækið Áform almanna-
tengsl ehf. Það fyrirtæki var sam-
einað Athygli ehf. árið 2000 og hefur
hann síðan verið hluthafi í Athygli
og stýrt starfstöð fyrirtækisins á
Akureyri.
Vinna og félagsstörf
Jóhann Ólafur hefur ritstýrt sjáv-
arútvegstímaritinu Ægi um árabil
sem og ýmsum öðrum blöðum sem
Athygli hefur gefið út. Meðal verk-
efna á almannatengslasviðinu má
nefna vinnu við sameiningar sveit-
arfélaga, m.a. verkefnisstjórn sam-
einingar fjögurra sveitarfélaga í
Vestur-Húnavatnssýslu sem nú
mynda Húnavatnshrepp.
Jóhann Ólafur Halldórsson, blaðam. og ritstjóri á Akureyri - 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Jóhann Gylfi, Katrín, Halldór Rafn, Úlfar Bjarki, Jóhann Ólafur og Inga Hildur.
Gegnheill Svarfdælingur
Blaðamaðurinn Jóhann Ólafur slappar af á ritstjórnarfundi hjá Degi árið 1987.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Þarftu að
framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Kvarnatengi
fyrir zetur og
sakkaborð
Til í þremur lengdum:
15,18 og 20 cm.
70 kr. stk.
Nýt
t