Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2014 Laus er til umsóknar staða yfirvélaviðgerðamanns á verkstæði Golfklúbbi Reykjavíkur í Grafarholti. Starfssvið: • Umsjón, eftirlit- og viðgerðir á vélum félagsins. Menntun og hæfniskröfur; • Menntun í; Vélvirkjun, bifvélavirkjun eða önnur menntun í vélafræði. • Reynsla og þekking í: Almennum viðgerðum, rafmagns- viðgerðum, vökvakerfum. • Vinnuvélapróf. • Færni í mannlegum samskiptum. • Stundvísi, frumkvæði og metnaður til að ná árangri. • Vinnutími er frá kl. 7-15 mánudaga–föstudaga. • Góð laun í boði. Nánari upplýsingar um starfið veitir Garðar Eyland í síma 660-9755 eða á gardar@grgolf.is Golfklúbbur Reykjavíkur auglýsir eftir vélaviðgerðarmanni á verkstæði klúbbsins í Grafarholti. Vélaviðgerðarmaður Ó. Johnson & Kaaber ehf Óskar eftir sölumanni til starfa á Akureyri Starfið felst í kaffiþjónustu og sölu til fyrirtækja og stofnana. Viðkomandi þarf að vera drífandi og skipulagður auk þess að vera góður í mannlegum samskiptum. Gott væri ef viðkomandi hefði reynslu af sölu- mennsku til fyrirtækja eða kaffiþjónustu. Þeim sem hafa áhuga er bent að leggja inn umsókn og ferilskrá á póstfang ooj@ojk.is Fullum trúnaði heitið Hjúkrunarheimili Skjól hjúkrunarheimili Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík Iðjuþjálfi Óskum eftir iðjuþjálfa til starfa frá 1. febrúar 2015. Starfshlutfall samkomulag. Hæfniskröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af Heimssamtökum í iðjuþjálfun (WFOT) Umsóknir þurfa að berast fyrir 30. nóv. nk. Upplýsingar veita: Guðný H. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar. Sími 522 5600, netfang gudny@skjol.is eða Sigurbjörn Björnsson, framkvæmdastjóri lækninga. Sími 5225600 sigbb@skjol.is Skjól hjúkrunarheimili, Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík. Sími 522 5600. Skjól er reyklaus vinnustaður. Starf í Noregi Lyfsöluleyfishafi/lyfjafræðingur í Ditt Apotek Amfi Os Við leitum að lyfjafræðingi sem helst hefur reynslu sem yfirmaður. Hann þarf að vera metnaðargjarn og hafa mikla þjónustulund til viðskiptavina og samstarfsaðila í heilbrigðis- þjónustunni. Góð samskiptahæfni er mikilvæg í apótekinu. Starfsmenn verða að læra/kunna góða norsku bæði munn- lega og skriflega. Staðan er laus frá 1. febrúar 2015 eða eftir samkomulagi. Góð laun og vinnuskilmálar eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur: Sem fyrst Nánari upplýsingar veitir framkvæmda- stjórinn Håvard Røkke (+47-91104825) Umsóknir sendist til jobb@apovest.no Eftirlitsaðili skipasmíði í Kína Skipasýn ehf. auglýsir eftir aðila til að annast eftirlit vegna smíði tveggja ísfisktogara fyrir Vinnslustöðina hf. í Vestmannaeyjum og Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. á Ísafirði. Togararnir verða smíðaðir í skipasmíða- stöðinni Huanghai Shipbuilding Co. Ltd. í borginni Rongcheng, Shandong Province í Kína. Starfssvið: Starfið felur í sér yfireftirlit með smíði skipanna frá því smíði hefst fram að afhendingu skipanna til eiganda. Viðkomandi þarf að vera staðsettur í Kína á meðan á smíðinni stendur. Starfið krefst mikilla samskipta við fólk og þarf viðkomandi m.a. að vera í reglulegu sambandi við eigendur og hönnuði. Ráðningartími: Gert er ráð fyrir að eftirlitsaðili hefji störf um áramótin 2014-2015 og starfi fram á mitt ár 2016. Menntunar- og hæfniskröfur:  Vélfræði-, véltæknifræði- eða skipatæknifræði- menntun eða sambærileg menntun.  Góð tök á ensku.  Almenn tölvukunnátta.  Góð færni í rituðu máli, reynsla af skýrslugerð.  Reynsla af skipasmíði, að hafa starfað sem vélstjóri á fiskiskipi eða reynsla af eftirliti með skipasmíði er kostur. Umsóknir og fylgiskjöl sendist til Skipasýn ehf., Grandagarði 14, 101 Reykjavík, rafrænar umsóknir sendist á rakel@skipasyn.is. Einnig er hægt að óska eftir nánari upplýsingum um starfið sem veittar eru í samráði við eigendur á þetta sama netfang eða í síma 561 9595. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2014. GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ! MOGGINN Í IPADINN WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD Um síðustu áramót voru 27.447 innflytjendur á Íslandi eða 8,4% þeirra sem landið byggja. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar innflytjendur voru 8,1% landsmanna eða 25.926 manns. Í annarri kyn- slóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, í henni voru 3.204 í fyrra en 3.532 nú. Samanlagt var fyrsta og önn- ur kynslóð innflytjenda 9,5% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall einungis verið hærra árið 2009, eða 9,6%. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytj- endum, fjölgaði einnig lít- illega milli ára, voru 6,4% mannfjöldans í fyrra en eru 6,5% nú. Innflytjandi er ein- staklingur sem er fæddur er- lendis og á foreldra sem einn- ig eru fæddir í útlöndum, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Í annarri kynslóð innflytjenda eru ein- staklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bak- grunn ef annað foreldrið er erlent, segir í frétt á vef Hag- stofu Íslands. Eins og síðustu ár eru Pól- verjar langfjölmennasti hóp- ur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn var 10.141 hér á landi sem átti uppruna sinn í Póllandi eða 36,9% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytj- endur frá Filippseyjum og Litháen, 5,2% frá hvoru land- inu. Þann 1. janúar síðastliðinn bjuggu 20.689 fyrstu og ann- arrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu, 66,8% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall þessa hóps af heild- armannfjölda var hæst á Vestfjörðum, en þar eru 13,2% íbúanna innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Suð- urnesjum þar sem 13,1% mannfjöldans er innflytj- endur eða börn þeirra. Lægst er þetta hlutfall á Norður- landi vestra, en þar eru um 4,5% mannfjöldans innflytj- endur eða börn þeirra 597 fengu ríkisborgararétt í fyrra Í fyrra fengu 597 ein- staklingar íslenskan rík- isborgararétt og er það nokk- ur fjölgun frá fyrra ári, þegar 413 einstaklingar fengu ís- lenskt ríkisfang. Af þeim 597 einstaklingum sem fengu ís- lenskt ríkisfang voru flestir frá Póllandi og Filippseyjum, eða 89 frá hvoru landi um sig. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Rósa Braga Innflytjendur Fólk af erlendum uppruna er í aðalhlutverki til dæmis í framleiðslugreinum svo sem matvælavinnslunni. Innflytjendum fjölgar áfram  Eru orðnir 8,4% þjóðarinnar  Flestir á höfuðborgarsvæðinu Þekkingarsetur Suðurnesja, ásamt stoðstofnunum þess, Náttúrustofu Suðvesturlands og Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Suðurnesjum, varð á dögunum 71. aðili að INT- ERACT (International Net- work for Terrestrial Rese- arch and Monitoring in the Arctic). Það er er alþjóðlegt net rannsóknastöðva á norð- lægum slóðum sem fengið hefur peninga úr ramma- áætlunum Evrópusambands- ins um rannsóknir og þróun. Meginhlutverk INTERACT er að byggja upp aðstöðu og þekkingu til að skilgreina og bregðast við umhverfisbreyt- ingum á norðlægum slóðum. Erlent samstarf Í aðild Þekkingarsetursins að INTERACT eru sögð fel- ast margs konar tækifæri fyrir starfsemi í Sandgerði, auk samstarfsmöguleika við fjölmarga erlenda vís- indamenn og rannsókna- stofnanir á norðurslóðum. Tvær aðrar íslenskar rann- sóknastöðvar eru aðilar að INTERACT; stöðvarnar á Litla-Skarði í Borgarfirði og á Raufarhöfn. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Vísindi Úr heimsókn Terry Callaghan, umsjónarmanns INT- ERACT, í Þekkingarsetrið í Sandgerði á dögunum. Aðild opnar tækifæri  Þekkingarsetur Suðurnesja til samstarfs á vettvangi INTERACT

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.