Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2014
Sérfræðingur á
stjórnsýslusviði
!"#$ %
' (
)* +
( &
/ 3 )7/+ )
8: (
:*
;
*
/
*
* *
*
-
*
*
<
7+ +
=
+
+
>
Ábyrgðarsvið:
:
7
?+
(*
7*
7 7+ 7
?+
*
7
B
(+
:
7
7
/ /
(
?
*
(
D
+
?+
Menntunar- og hæfniskröfur:
• D
:
•
?+
• F
* • F
+ ;
+
• D
;
•
&
• >
7
<
• =+ I<J M :
7
:
• N )&
: (Orra) er kostur
• =
7
• =
7
;
7+ +
• =
• N
X
:
7
Y
7+
:
3
7
3
1. desember 2014
3
/
&
Ríkisendurskoðunar, Bríetartúni 7, 105 Reykjavík
#
postur@rikisend.is Z
( 7
3
"
>
;;
:
8[ 8 Y*
* \" %$\]*
^ _ ` N q* &
* \" %$] *
^ _ `
Ríkisendurskoðun er sjálfstæð stofnun sem starfar á
vegum Alþingis samkvæmt lögum nr. 86/1997. Stofn-
unin endurskoðar ríkisreikning og reikninga ríkisaðila,
!
" #
$
%
& " # & '
( ) *
samtals 43. Sjá nánar: www.rikisend.is
fasteignir
Skorað er á sveitarfélögin að veita
fulltrúum sínum í launanefndum
heimild til að koma með raunhæfar
tillögur um að leiðrétta kjör kennara
í tónlistarskólum og að tryggja eðli-
lega launaþróun til frambúðar. Þetta
segir í ályktun Kennarafélags
Reykjavíkur sem samþykkt var í vik-
unni.
Minnt er á að gróska í íslensku
tónlistarlífi hafi ekki orðið til af sjálfu
sér. Hana megi fyrst og fremst þakka
margra ára þrotlausu uppbygging-
arstarfi í tónlistarskólum. Kennurum
þar sé annt um nemendur og þeir
hafi metnað fyrir hönd þeirra, skól-
anna og menntunar í landinu. And-
varaleysi viðsemjenda um launakjör í
tónlistarskólum og niðurskurður á
fjármunum til tónlistarskóla sé alvar-
legt samfélagsmein og ekki einkamál
þeirra sem í skólunum starfa.
Hafa setið eftir í launum
„Ljóst er að tónlistarskólakennarar
hafa setið eftir í launum miðað við
aðra hópa í kennarasamtökunum. Slík
mismunun í launum er algerlega óá-
sættanleg. Hún er einnig í andstöðu
við markmið Sambands íslenskra
sveitarfélaga um að sambærileg og
jafnverðmæt störf séu launuð með
sama hætti,“ segir Kennarafélag
Reykjavíkur sem vill að tónlistar-
kennslu sé gert jafnhátt undir höfði
og öðru námi í skólakerfinu. Laun
tónlistarskólakennara eigi að vera
sambærileg því sem aðrir hafa.
sbs@mbl.is
Aðgerðir Tónlistarkennarar í Reykjanesbæ voru með þögla mótmælastöðu við upphaf
bæjarstjórnarfundar þar í bæ sl. fimmtudag. Með því lögðu þeir áherslu á kröfur sínar.
Reykjavíkur-
kennarar styðja
Metnaður og
menntun
Tónlistarkennarar séu jafnsettir
Morgunblaðið/Golli
Tónaflóð Grósku í íslensku tónlistarlífi má fyrst og fremst þakka margra ára starfi í
tónlistarskólum, segir Kennarafélag Reykjavíkur. Stéttin stendur þétt saman í verkfalli.
Liðlega 50 manns frá 18 íslenskum fyr-
irtækjum mættu til leiks á kynningarbás
Íslandsstofu á einni stærstu ferðasýn-
ingu heims, World Travel Market, sem
var í dögunum í London. Íslandsstofa
skipulagði þátttöku fyrir hönd íslenskra
ferðaþjónustufyrirtækja. Uppi voru um
700 sýningarbásar og á svæðinu voru
fulltrúar 5.000 fyrirtækja frá 186 lönd-
um. Áætlað er að sýningargestir hafi ver-
ið um 50 þúsund.
Í fréttatilkynningu er haft eftir Ingu
Hlín Pálsdóttur, forstöðumanni ferða-
þjónustu og skapandi greina hjá Íslands-
stofu, að á sýningunni hafi mátt greina
mikinn áhuga á Íslandsferðum. Hafi
fulltrúar íslenskra fyrirtæka enda fengið
góðar viðtökur.
Tvenn verðlaun til Bláa lónsins
Bláa lónið var á sýningunni tilnefnt til
verðlauna á fyrstu Global Wellness Tra-
vel Awards sem fór fram í tengslum við
sýninguna. Hlaut viðurkenningu fyrir
Best for mineral or Hot Spring og einnig
sem Country winner fyrir Skandinavíu.
sbs@mbl.is
Mikill áhugi á Íslandsferðum
Morgunblaðið/Eggert
Mývatn Forvitnar ferðastúlkur leita að réttu leiðinni í Íslandsleiðangri nú í haust.
Húsasmiðjan og Vesturport
hafa gert með sér samstarfs-
samning sem felur í sér að fyr-
irtækið verður bakhjarl leik-
hússhópsins næstu tvö árin.
Mun Húsasmiðjan útvega efni
í sviðsmyndir, bæði leikin verk
á sviði, í sjónvarpi og kvik-
myndaverkefni. Fjölmörg
verkefni eru framundan hjá
leikhópnum.
Vesturport hefur frá stofn-
un vakið athygli fyrir nýstár-
legar og framsæknar leik-
myndir og hlaut m.a. Elliot
Norton-verðlaunin í Boston
árið 2013 fyrir sviðsmyndina í
Hamskiptunum. Vesturport
var stofnað 2001 og vakti fljótt
athygli landsmanna, segir í til-
kynningu. Leikhópurinn sló í
gegn eftir að hann setti á fjal-
irnar nýstárlega uppfærslu á
leikriti Shakespeares, Rómeó
og Júlíu. Hefur síðan þá flutt
hvert stórverkið á fætur öðru
jafnt á Íslandi sem erlendis. Í
vor hlaut uppsetning Vest-
urports á Hróa hetti, The He-
art of Robin Hood, tvenn verð-
laun vestanhafs.
Áhugi á skapandi listum
„Vesturport hefur gert frá-
bæra hluti með leikhúsformið
og við teljum að fyrirtæki eins
og okkar eigi að leggja sitt af
mörkum til menningar og lista
– í þessu tilfelli með því að út-
vega nagla, spýtur og sög og
sitthvað fleira. Allt þarf þetta
að vera til staðar til að færa
leikverk á svið fyrir áhorf-
endur og við erum stolt af því
að eiga þátt í því,“ segir Árni
Stefánsson, forstjóri Húsa-
smiðjunnar, í tilkynningu. Þar
segir ennfremur, haft eftir
Gísla Erni Garðarssyni hjá
Vesturporti, að gaman sé að
finna áhuga Húsasmiðju-
manna á skapandi listum.
Komi sér vel að geta leitað til
þeirra um efni og ráðlegg-
ingar þegar kemur að því að
smíða næstu verkefnum um-
gjörð. sbs@mbl.is
Útvega nagla, spýtur og sög
Húsasmiðjan styður Vesturport Eru að gera frábæra hluti
Bygging Árni Stefánsson t.v.
og Gísli Örn Garðarson